Víkurfréttir - 21.12.2017, Síða 18
18 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. desember 2017 // 50. tbl. // 38. árg.
Halla Þórðardóttir eða Halla Togga
býr í Grindavík ásamt Sigurjóni
manninum sínum og sonum þeirra
í Grindavík. Hún er annálað jólabarn
og þarf maðurinn hennar oft á tíðum
að stöðva hana þegar hún ætlar að
setja jólaskrautið upp í október. Máni
sonur þeirra fæddist í desember og
segir Halla að hann sé meira jóla-
barn en hún, en sjálf var hún oftast
veik á Þorláksmessu eftir spennufall
aðventuhátíðarinnar. Halla heldur í
gamlar hefðir á jólunum en hefur
prófað nýjungar við matarborðið og
hefur komist að því að hamborgar-
hryggurinn sé jólamaturinn þeirra.
Halla svaraði nokkrum jólaspurn-
ingum fyrir okkur.
Hvers vegna ertu svona mikið jóla-
barn?
„Ég veit það bara ekki. Ég skil ekki
af hverju ALLIR eru ekki svona mikil
jólabörn.
Ég hef bara alltaf verið svona mikið
jólabarn. Þegar ég var yngri varð ég
undantekningarlaust veik á Þorláks-
messu/aðfangadag vegna spennufalls.
En ég myndi segja að gleðin sé bara
svo mikil, í dimmu amstri hversdags-
leikans og rútínu lifnar allt við, ljósin,
fegurðin og ilmurinn meira að segja.
Gleðin og spennan var of mikið fyrir
litlu mig að höndla en nú í dag er þetta
hamingjusamasti tími ársins.
Þegar aðrir sjá stress og geðveiki sé
ég glimmer gosbrunna og hamingju.“
Hvenær byrjar þú að skreyta fyrir
jólin?
„Ég vil helst byrja að skreyta í októ-
ber. En ég reyni að hemja mig til 1.
nóvember. Ef kallinn minn er á sjó í
nóvember eru útiljósin komin upp í
lok október.“
Hver er uppáhalds jólahefðin þín?
„Þetta er erfið spurning. Fyrir utan
allt sem kemur börnunum við er það
að skreyta jólatréð og að heyra kirkju-
klukkurnar í útvarpinu á aðfangadag.
Það var eins og að bíða eftir flugelda-
sýningu hjá okkur sem barn. Ég man
enn eftir því hvernig hjartað sprakk
út í hamingju.“
Áttu þér uppáhalds jólaskraut?
„Uppáhalds jólaskrautið er daga-
talið hennar ömmu minnar. Hún
saumaði það út sjálf og ég fékk það
eftir hennar tíma. Jólasængurfötin
frá ömmu Sigurjóns eru ómissandi á
jólunum hjá okkur, hún handmálaði
þau og á aðfangadag eru þau alltaf
nýþvegin og fín. Það jafnast ekkert á
við það að skríða upp í hreint ból á
aðfangadag og matarstellið hennar
er líka uppáhalds.“
Hvað ertu með í matinn á aðfanga-
dag?
„Ég hef prófað að breyta út frá ham-
borgarhryggnum með hreindýri, önd
og gæs. En humar, hamborgarhryggur
og ís er minn og okkar jólamatur.“
Hvað er uppáhalds jólalagið þitt?
„Ég á nokkur uppáhalds jólalög, „Þú
og ég og jól“ með Svölu, „Ég hlakka
svo til“, „Dansaðu vindur“ og „All i
want for Christmas“, það lag á sér-
stakan stað í hjarta mínu en þann
19. desember fyrir tólf árum síðan þá
lágu leiðir okkar Sigurjóns saman.“
Bakar þú smákökur fyrir jólin?
„Já, ég baka alltaf sörur og nóg af
þeim, þeim bakstri fylgja alltaf lak-
krístopparnir og svo fer það bara allt
eftir því í hvernig stuði ég er. Svo sl.
fjögur ár bættist við enn stærra jóla-
barn í fjölskylduna svo hér er alltaf ein
afmælisveisla á aðventunni.“
Ertu með einhverja skemmtilega jóla-
sögu handa okkur?
„Ég á þær alveg nokkrar, en held að ég
eigi fleiri þýðingarmikil tímamót frá
þessum tíma. Eins og ég kom að áðan
hittumst við maðurinn minn fyrir
tólf árum á þessum tíma og akkúrat
átta árum síðar fæðist okkar yngsti
drengur, hann Óskar Máni, undir
gulum fallegum desember mána.“
Rannveig Jónína
Guðmundsdóttir
rannveig@vf.is
VIÐTAL
-Halla jólabarn vill helst
setja jólaskrautið upp í október
VARÐ ALLTAF VEIK Á ÞORLÁKSMESSU
VEGNA SPENNUFALLS
ÓTRÚLEGT JÓLAGJAFAÚRVAL Í DRAUMALANDI
Georg Jensen og Rosendahl gjafavörur
Sængurföt og rúmteppi frá Mette DietmerKerti og úrval af smávörum Tjarnargötu 3 - sími 421-3855
HÖ
NN
UN
: V
ÍK
UR
FR
ÉT
TIR