Víkurfréttir - 21.12.2017, Blaðsíða 24
24 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. desember 2017 // 50. tbl. // 38. árg.
Björg Sigurðardóttir hefur unnið sem ljósmóðir í þrjátíu og fimm ár eða
frá árinu 1982. Hún hefur farið víða um í starfi sínu unnið á nokkrum
stöðum á Íslandi, svo sem í Grænlandi, Færeyjum og Noregi. Björg fór
ásamt Jökli, eiginmanni sínum, til Grænlands í fyrra þar sem hún vann
sem ljósmóðir í eitt ár. Þar upplifðu þau ýmis ævintýri en þau telja að
allir hafi gott af því að breyta um umhverfi og prófa eitthvað nýtt.
Í dag vinnur Björg sem ljósmóðir
á sjúkrahúsinu á Akranesi, en hún
settist niður með blaðamanni Vík-
urfrétta og sagði frá Grænlands-
ævintýrinu sínu og starfi sínu sem
ljósmóðir.
FÉKK GRÆNLANDSBAKTERÍUNA
Ferð Bjargar til Grænlands í fyrra var
fimmta ferð hennar þangað, en hún
fór fyrst til að starfa sem ljósmóðir
á Grænlandi árið 2010. Í fyrstu ferð-
inni var hún tvo mánuði, svo tvisvar
sinnum í mánuð og svo einu sinni í
viku. „Fyrir sjö árum síðan barst kall
um það að það vantaði ljósmæður til
Grænlands og þá var kannað hvort
það væru einhverjar íslenskar ljós-
mæður tilbúnar að fara. Við vorum
þrjár sem hoppuðum á það. Ég var
búin að vera með þetta í huganum í
mörg ár og þarna fékk ég tækifærið
og sló til. Ég hef eignast góða vini í
ferðum mínum og Grænland er stór-
kostlegt land á sinn einstaka hátt. Ég
held líka að annað hvort fái maður
Grænlandsbakteríu eða ekki,“ segir
hún.
FERÐUÐUST UM Á SNJÓSLEÐUM
Björg og Jökull eiga þrjú uppkomin
börn, einn strák sem býr á Íslandi og
tvær stelpur sem búa í Danmörku.
Yngri stelpan þeirra kom til Græn-
lands í fyrra um jólin og fékk að upp-
lifa Grænland. „Við fórum með hana
á hundasleða og það var ansi kalt
daginn sem við fórum út á sleðann,
ég held að það hafi verið um 30 gráðu
frost en veðrið var samt gott og það
var blankalogn. Við erum svo heppin
að eiga góðan vin sem á hundasleða
og tók okkur með. Það var stórkost-
legt að fara með innfæddum manni
á sleða.“
Eins og fyrr segir fóru þau hjónin
bæði til ársdvalar og gerðu ekki ráð
fyrir að koma heim nema eitthvað
kæmi upp á. „Við fengum raðhús sem
var alveg niður við sjóinn og vorum
því með fallegt útsýni yfir hafið, þar
sáum við skipa- og bátaumferðina þar
sem veiðimenn komu með aflann að
landi og skipin með vörur til og frá
bænum. Það kemur flutningaskip á
viku til tíu daga fresti til bæjarins
og þar er höfnin opin allt árið, en
norðar eru hafnirnar bara opnar á
sumrin og fram á haust. Við vorum
því heppin að fá ferskvöru á viku til
tíu daga fresti.“
Rannveig Jónína
Guðmundsdóttir
rannveig@vf.is
VIÐTAL
Björg Sigurðardóttir starfaði sem ljósmóðir á Grænlandi
„Grænlenskar
konur eru mjög
hraustar“
- Mælir með því að fólk breyti um umhverfi
og víkki sjóndeildarhringinn
Björg og Jökull í vélsleðaferð.
Reffilegur sleðahundur.