Víkurfréttir - 21.12.2017, Side 49
49MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. desember 2017 // 50. tbl. // 38. árg.
kvöldmatinn okkar sáum við glitta
í nokkrar hýenur sem höfðu fundið
matarlyktina og fylgdust aðeins með
okkur. Svo heyrðum við í ljónum í
nokkur hundruð metra fjarlægð. Þessi
safaríferð var eins og að vera staddur
í einhverri Planet Earth mynd.“
Ferðin reyndist þó ekki eingöngu
dans á rósum, þar sem Páll var að
öllum líkindum bitinn af kónguló.
„Ég fékk blöðrur og varð mjög aumur
í höndinni þar sem bitið var.“
Algjörlega þess virði að
upplifa sandstorm
Í þorpinu Massai í Tansaníu býr einn
stærsti ættbálkur landsins en það var
næsti staður sem strákarnir heim-
sóttu. „Þegar við höfðum séð inn í
kofana sem fólkið býr í tókum við eftir
því að risastór sandstormur stefndi
í áttina til okkar. Hann skall svo á
nokkrum mínútum síðar,“ segir Páll
og lýsir því þannig að næstu dagar
hafi einkennst af skítugu hári og
særindum í augum. „En það var al-
gjörlega þess virði að fá að upplifa
sandstorm.“ Hann segir einnig að
þeir hafi verið einstaklega heppnir
með þessa safaríferð og séð öll dýr
sem hægt hefði verið að sjá.
Þjófóttir apar stálu ávöxtum
Næst var stefnan sett á paradísar-
eyjuna Zanzibar þar sem strákarnir
slökuðu á, snorkluðu, syntu með höfr-
ungum og nutu lífsins.
Malawi var svo næsti áfangastaður
þar sem strákarnir vörðu meðal ann-
ars nokkrum dögum á ströndum Lake
Malawi þar sem þeir til dæmis spiluðu
fótbolta með heimamönnum. „Við
héldum svo til Zamibíu og gistum
á tjaldsvæði í litlum þjóðgarði þar.
Á tjaldsvæðinu var nóg af þjófóttum
öpum sem stálu ávöxtunum manns
um leið og maður leit undan.“
Afríkuferðin endaði svo hjá Viktoríu-
fossum þar sem strákarnir fóru meðal
annars í teygjustökk úr 111 metra
hæð. „Það var það erfiðasta sem við
höfum gert.“
Eftir ferðalagið um Afríku er reynsla
strákanna af heimsálfunni mjög góð.
„Fólkið er svakalega vinalegt og mjög
nægjusamt. Þau búa flest í moldar-
kofum en eru með bros á vör nánast
alltaf þrátt fyrir að hafa ekki mikið
á milli handanna.“
Eftir Afríku var ferðinni heitið til Sri
Lanka.
Vildu leyfa fólkinu sínu að
fylgjast með
„Við vorum í nokkra daga á suður-
ströndinni þar sem við eyddum
mestum tíma í sjónum á brim-
brettum. Eftir það héldum við norður
í átt að fjallgörðum Sri Lanka.“ Þar
gistu strákarnir á gistiheimili sem
var lengst uppi í fjöllum eða í yfir
þúsund metra hæð. „Andrúmsloftið
var mjög rólegt og hægt var að slaka
vel á meðan maður naut útsýnisins.
Við vorum í fjóra daga þar en fórum
svo aðeins norðar til þess að klífa
Sigiriya-klettinn sem við gerðum
fyrripart dags því seinnipartinn
flugum við yfir til Tælands.“
Áhugasamir geta fylgst með ferðalagi
Arons, Ivans og Páls á Snapchat, en
þeir segjast hafa ákveðið að stofna
aðganginn svo fólkið þeirra heima
á klakanum gæti fylgst með þeim.
„Okkur langaði líka að sýna fólkinu
heima hvernig þessir staðir eru og þá
getur það kannski lært smá af okkar
reynslu.“
Á meðan við borðuðum
kvöldmatinn okkar sáum
við glitta í nokkrar hýenur
sem höfðu fundið matar-
lyktina og fylgdust aðeins
með okkur. Svo heyrðum
við í ljónum í nokkur
hundruð metra fjarlægð.
Magnaður staður í Sri Lanka.
Klettur sem sjö búddistar búa á og hugleiða.
Páll Erlingur spilar fótbolta með strákunum á ströndinni við Lake Malawi. Mynd: Aritta.
Mynd: Issy. Mynd: Issy.
Mynd: Issy.
Mynd: Issy.
Sendum bæjarbúum okkar bestu óskir
um gleðileg jól og farsælt komandi ár