Víkurfréttir - 21.12.2017, Blaðsíða 56
56 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. desember 2017 // 50. tbl. // 38. árg.
Stærstu styrktaraðilar jóladaga eru:
Það hefur verið ómissandi þáttur í jólaundirbúningi Betri bæjar í Reykja-
nesbæ að fá jólasveinana og jólahljómsveit Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar í heimsókn niður í bæ á Þorláksmessu.
Jólasveinar munu gefa börnunum nammipoka og halda uppi fjöri og
jólastemmningu með jólahljómsveitinni rétt áður en jólin ganga í garð.
Opið í verslunum 22. desember til kl. 22:00,
Þorláksmessu til kl. 23:00 og á aðfangadag kl. 10:00 - 12:00.
Gleðileg jól í Betri bæ
Jólasveinar og jólahljómsveit
mæta á Hafnargötuna
niður í b á Þorláks essu.
fj
er í flestu verslunu 20., 21., . desember til kl. 22:00,
Grunar að minn innri
maður tali þýsku
- GUÐMUNDUR EGILL VINNUR HJÁ EA GAMES
Guðmundur Egill Bergsteinsson býr í Köln í Þýskalandi en hann er fæddur
og uppalinn Grindvíkingur. Guðmundur er að upplifa draum margra
ungra einstaklinga en hann starfar hjá tölvuleikjafyrirtækinu EA Games
og var meðal annars að leggja lokahönd á nýjasta FIFA leikinn. Við fengum
Guðmund til að svara nokkrum laufléttum spurningum fyrir okkur.
Hvar býrð þú og hvað ertu að gera?
Þessa dagana bý ég í Köln í Þýska-
landi og starfa hjá fyrirtækinu EA
Games þar sem við vorum að leggja
lokahönd á nýjasta FIFA leikinn.
Ekkert að þakka.
Hvers vegna fluttir þú út?
Ég fór út í leit að innri manni og mig
grunar að hann tali þýsku.
Hverjir eru kostirnir við það að búa
erlendis?
Kostirnir við það að búa erlendis eru
að ég fæ að soga í mig aðra menn-
ingu, kynnist nýju fólki og síðan fæ
ég líka að upplifa og læra nýja hluti
á hverjum einasta degi. Maður hatar
líka ekki að opna sér einn kaldan með
strákunum úr vinnunni, áfengið er
rosa ódýrt hérna í Deutschland.
Saknar þú einhvers á Íslandi?
Sakna aðallega að geta eytt köldu
vetrarkvöldunum með elsku Stefaníu
minni.
Mælir þú með því að flytja erlendis?
Hef alltaf haldið mikið upp á það sem
pabbi sagði við mig þegar ég var yngri,
„að vera out er að vera in“. Það þýðir
sem sagt að fara út fyrir þægindaram-
mann sinn og ekki elta aðra, hugsa
fyrir sjálfan sig. Þannig já ég mæli
með þessu fyrir alla sem því þora.
Hvernig er „týpískur“ dagur hjá þér?
Tökum klassískan mánudag:
Vakna, snooze, snooze, snooze, dæli í
mig morgunkorni, hjóla í vinnu, vinn,
bumbuboltast, ætla að fara að
sofa snemma, er alltof lengi í
tölvunni og fer þar af leiðandi
að sofa alltof seint.
Stefnir þú á að flytja aftur
heim til Íslands?
Ég flutti út með það að mark-
miði að finna sjálfan mig. Ég
flyt heim þegar það hefur tek-
ist. Ef ég finn ekki sjálfan mig
þá kaupi ég mér bara hund.
rannveig@vf.is