Víkurfréttir - 25.01.2018, Side 6
6 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 25. janúar 2018 // 4. tbl. // 39. árg.
Íbúar Reykjanesbæjar almennt ánægðir
með þjónustu sveitarfélagsins
Reykjanesbær kemur vel út í nýrri
þjónustukönnun Gallup og hækkar
um 0,2 stig í sjö þjónustuþáttum og
0,3 stig í einum af samtals tólf sem
kannaðir voru. Markmið könnunar-
innar var að kanna ánægju með
þjónustu stærstu sveitarfélaga
landsins og gera samanburð þar
ásamt því að skoða breytingar frá
fyrri mælingum.
Þeir þjónustuþættir sem eru kannaðir
eru; ánægja með sveitarfélagið sem
stað til að búa á, þjónusta grunnskóla
sveitarfélagsins, þjónusta við barna-
fjölskyldur, eldri borgara og fatlaða,
gæði umhverfisins í nágrenninu og
ánægja með þjónustu sveitarfélags-
ins í heild.
Almenn ánægja með skipulagsmál í
sveitarfélaginu hækkar um 0,3 stig
og er munurinn tölfræðilega mark-
tækur þar, ásamt hækkun á þjónustu
grunnskóla og þjónustu sveitarfélags-
ins í heild.
Þjónusta Reykjanesbæjar er yfir
meðaltali sveitarfélaga í átta flokkum
af tólf, á pari við meðaltal í þjónustu
sveitarfélagsins á heildina litið og
undir landsmeðaltali í sorphirðu,
gæðum umhverfis og ánægju með
sveitarfélagið sem stað til að búa á. Í
tveimur af þessum þremur flokkum
hefur sveitarfélagið bætt sig frá því í
fyrra en alltaf er tækifæri til að gera
enn betur.
Íbúar eru ánægðastir með aðstöðu til
íþróttaiðkunar í bæjarfélaginu, sem
fær 4,2 stig af fimm mögulegum, en
ánægjan er minnst í skipulagsmálum,
3,3 stig.
Könnunin var framkvæmd af Gal-
lup á tímabilinu 3. nóvember til 17.
desember 2017. Um síma- og net-
könnun var að ræða og bárust alls
299 svör.
Ragnheiður Elín vill bjarga sundlaug
Keflvíkingurinn og fyrrum ráðherr-
ann Ragnheiður Elín Árnadóttir
berst núna fyrir framtíð Sund-
hallar Keflavíkur. Ragnheiður hefur
stofnað hóp á fésbókinni undir heit-
inu „Björgum Sundhöll Keflavíkur“.
„Þessi hópur er settur á laggirnar
með það að markmiði að koma í
veg fyrir niðurrif gömlu Sund-
hallarinnar í Keflavík, sem er ein
þriggja bygginga í Reykjanesbæ sem
teiknuð er af Guðjóni Samúelssyni
húsameistara ríkisins. Tillaga þess
efnis bíður afgreiðslu í umhverfis- og
skipulagsráði Reykjanesbæjar. Næsti
fundur nefndarinnar er 13. febrúar
þannig að mikilvægt er að vinna
hratt og vel.
Þessi síða er opin öllum og verður
vettvangur umræðu, upplýsinga og
aðgerða og með því að gerast með-
limur í hópnum lýsir þú stuðningi
við málstaðinn,“ segir í kynningu á
síðunni.
Framkvæmdir eru hafnar við
íþróttamannvirki í Grindavík.
Hluti af gamla íþróttahúsinu hefur
verið rifinn og jarðvinnuverktaki
á fullu að undirbúa verkið fyrir út-
boð en á svæðinu er nú myndarleg
hola þar sem nýtt íþróttahús mun
rísa.
„Framkvæmdin er enn í útboði og
gert er ráð fyrir að opna tilboð þann
20. febrúar nk., gert er ráð fyrir að
framkvæmdir hefjist fljótlega í kjöl-
farið af því,“ segir Ármann Hall-
dórsson sviðsstjóri skipulags- og
umhverfissviðs Grindavíkur.
Á fyrstu hæð hússins er gert ráð
fyrir forrými sem tengir íþrótta-
miðstöð og tengigang við nýjan
íþróttasal ásamt búningaaðstöðu,
áhaldageymslu, afgreiðslurými o.fl.
Á annari hæð verður meðal annars
fjölnota salur en mikil uppbygging
hefur verið í íþróttalífinu í Grinda-
vík á undanförnum árum og fjöl-
breytnin er mikil. Íþróttir eins og
og júdó, taekwondo og fimleikar
blómstra í bæjarfélaginu, ásamt
körfu, knattspyrnu og sundi. Hér mun nýtt íþróttahús rísa í Grindavík.
VF-mynd: Hilmar Bragi
NÝTT ÍÞRÓTTAHÚS RÍS Í GRINDAVÍK
„Fjárhagsáætlun bæjarins stenst ekki“
„Ég benti á það á fundi þar sem
fjármálaáætlun Reykjanesbæjar
var kynnt bæjarbúum að það væri
óábyrgt að gera ráð fyrir tekjum
af fyrirtækjum “United Silicon og
Thorsil” sem að ekki væru í rekstri
og yrðu hugsanlega ekki í rekstri“,
þetta segir Þórólfur Júlían Dags-
son á Facebook-síðunni Reykja-
nesbær - gerum góðan bæ betri.
Þórólfur segir að í ljósi nýjustu
fregna af gjaldþroti United Silicon
og ákvörðum Umhverfisstofnunar
að ef verksmiðjan verður keypt þá
þurfi þeir fjárfestar að fá öll til-
skyld leyfi aftur og þá þurfi einnig
nýtt umhverfismat að fara fram.
Hann segir einnig að það séu litlar
líkur á því að þetta fyrirtæki fari
aftur í rekstur næstu tvö árin í
það minnsta.
„Nú stenst fjárhagsáætlun bæjar-
ins engan veginn og ágætt væri að
fá endurreiknaða áætlun í hend-
urnar þar sem þessi tvö fyrirtæki
eru ekki tekin með inn í reikn-
inginn í ljósi nýjustu fregna.“
Þórólfur segir einnig að þetta
hafi áhrif á 1200 milljóna króna
framkvæmd við Helguvíkurhöfn
sem er inn í fjárhagsáætluninni.
„Ég tel að falla ætti frá þeim fram-
kvæmdum því ekki er forsenda
fyrir þeim lengur.“
TÖLUVERÐ AUKNING
GESTA Í VATNAVERÖLD
Gestir Vatnaveraldar árið 2017
voru 147.262 á síðastliðnu ári.
Um er að ræða aukningu á gestum
en 153.146 sóttu Vatnaveröld árið
2016. Þetta kemur fram í fundar-
gerð Íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjanesbæjar þann 17. janúar sl.
Hafsteinn Ingibergsson, forstöðu-
maður íþróttamannvirkja í Reykja-
nesbæ, sagði frá auknum gestafjölda
á fundinum, þá voru starfsmenn
Reykjanesbæjar 6.270 en þeir fengu
sundkort í jólagjöf.
Deiliskipulagstillaga fyrir
Hafnargötu 56 Reykjanesbæ
Deiliskipulagstillaga fyrir Hafnargötu 56 Reykjanesbæ
Reykjanesbæ, 31. janúar 2018.
Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst
eftirfarandi deiliskipulagstillaga:
Markmið deiliskipulags er að skilgreina reit á lóðinni fyrir nýbygg-
ingu fyrir verslun, skrifstofu- og þjónustuhúsnæði, hótel og gisti-
starfsemi eða íbúðir í samræmi við skilmála Aðalskipulags
Reykjanesbæjar 2015 –2030. Hús sem fyrir er á lóðinni er varðveitt,
en heimilt að breyta innra fyrirkomulagi.
Tillögur verða til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12
frá og með 31. janúar 2018 til 9. mars 2018. Tillögur eru einnig aðgengi-
legar á heimasíðu Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur
á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til að skila inn athuga-
semdum er til 9. mars 2018. Skila skal inn skriflegum athugasemdum
á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ eða á
netfangið gunnar.k.ottosson@reykjanesbaer.is
Skipulagsfulltrúi