Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.01.2018, Qupperneq 14

Víkurfréttir - 25.01.2018, Qupperneq 14
14 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 25. janúar 2018 // 4. tbl. // 39. árg. Sunnudaginn 14. janúar sl. var frumsýnd heimildarmynd eftir Guðmund Magnússon kvikmynda- gerðarmann. Sýnt var í samkomusal Gerðaskóla. Myndin fjallar um lífshlaup Guðna Ingimundar- sonar frá Garðstöðum í Garði. Myndinni var vel tekið. Guðni á trukknum – heimildarmynd sýnd á miðvikudagskvöld Guðni Ingimundarson, Guðni á trukknum. Listasafn Reykjanesbæjar og Norræna húsið í Færeyjum verða í samstarfi með stóra ljósmyndasýningu sem haldin verður á Ljósanótt 2018 í nokkrum sýningarsölum Duus Safnahúsa. Færeyingar leggja til sýninguna „Föroyar i et år“ sem samanstendur af rúmlega 600 ljósmyndum sem íbúar eyjanna tóku og lýsa daglegu lífi þeirra í eitt ár á sama tíma og ljósmyndasýningin „Eitt ár á Suðurnesjum“ verður opnuð í Listasal Duus Safnahúsa. Listasafn Reykjanesbæjar býður öllum þátttöku í Ljósanætursýningu safnsins haustið 2018 „Eitt ár á Suður- nesjum“. Hvað hefur gerst á árinu? Safnaðu saman ljósmyndunum þínum sem teknar voru á Suðurnesjum á tímabilinu 17. júní 2017 til 17. júní 2018. Hver og ein myndanna segir sína sögu af lífi þínu á árinu og saman segja allar innsendar myndir, allra þátt- takenda eina góða sögu af daglegu lífi á Suðurnesjum. Allar myndir boðnar velkomnar sem teknar eru á Suður- nesjum á þessu tímabili. Hvað gerðist á Suðurnesjum þetta ár? Hvað vorum við að gera? Börnin og gamla fólkið, fólkið og dýrin, hversdagurinn og há- tíðarhaldið, pólitíkin og trúarbrögðin, bæjarlífið og náttúran, fjölskyldan og vinnan eða hvað annað sem talist gæti hluti af okkar daglega lífi. Nánari upplýsingar um skil verða auglýstar vel eftir áramótin. Hver og einn má senda inn mest 10 myndir. Þar sem myndirnar eru hugsaðar á sýningu er nauðsynlegt að þær séu í mjög góðri upplausn svo möguleiki sé á að prenta þær út í góðri stærð. Því er æskilegt að myndirnar séu ekki minni en 4 MB en þó er hægt að hlaða inn myndum í öllum stærðum. Skilafrestur er til 1. júlí 2018. Allar innsendar myndir verða sýndar á Ljósanætursýningunni, þær bestu útprentaðar en hinar á skjám. Á meðfylgjandi slóð má senda myndir á sýninguna: http://listasafn.reykja- nesbaer.is/ljosmyndasamkeppni Athugið að einungis er hægt að hlaða inn þremur myndum í einu og síðan er hægt að endurtaka leikinn þar til 10 myndum hefur verið hlaðið inn. LJÓSMYNDASÝNINGIN „EITT ÁR Á SUÐURNESJUM“ Norðurljós við bæjardyrnar. Ljósmyndari: Hilmar Bragi Bárðarson „Engin þörf á orðum“ heitir þessi mynd frá Færeyjum. Ljósmyndari: Elinborg Christel Nygaard Tjáum líf okkar í myndum - Ljósanætursýningin 2018 Myndin hefur verið í vinnslu undanfarin ár, byggir á frásögn Guðna, viðtölum við sam- ferðamenn og fjölbreyttu myndefni, gömlu og nýju. Hörður Gíslason gerði handrit. Guðni er fæddur árið 1923, gerði út trukk með lyftibúnaði og loftpressu og sá um fleygun og sprengdi jarðveg á Suðurnesjum um hálfrar aldar skeið. Að því loknu hefur hann gert upp á annað hundrað véla af mörgum gerðum, gert þær gangfærar að nýju. Vélarnar eru til sýnis í Byggðasafninu í Garðinum. Þá kom Guðni með trukkinn að fjölda verkefna í höfnum á Suðurnesjum, tengt framkvæmdum við hafnar- mannvirki eða við lagfæringu og tilfærslu báta. Þá var hann kvaddur til aðstoðar við lausn á fjölbreyttum verkefnum tengt viðgerðum og flutningi á margs konar búnaði. Gjarnan fór hann um vegi á Suðurnesjum í óveðrum til aðstoðar áður en björgunarsveitir náðu nú- verandi styrk. Um árabil glímdi hann við að ná málmum í fjörum úr skipum sem þar urðu til og útbjó sig með búnað til þess. Fór með trukkinn á fjöru allt út í Flasarhaus á Garðskaga og var ætíð kominn með búnað sinn að landi áður en flæddi. Hreinsun málma úr fjörum má flokka með umhverfisvernd. Guðni var vitavörður á Garðskaga og Hólms- bergi í 25 ár. Heimildarmyndin um Guðna verður sýnd öðru sinni miðvikudaginn 24. janúar í skólanum í Garðinum kl. 19:30. Styrktaraðilar myndarinnar eru Sveitarfélagið Garður, Uppbyggingasjóður Suðurnesja, Isavia, Axel Jónsson, Sigurður Ingvarsson, Tómas Knútsson og fjölskylda Guðna.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.