Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.01.2018, Síða 30

Víkurfréttir - 25.01.2018, Síða 30
30 ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 25. janúar 2018 // 4. tbl. // 39. árg. „Ég hef tækifæri til að gera það sem ég elska“ - Valur Orri er slakur að spila körfubolta í Bandaríkjunum Körfuboltinn gengur vel hjá Vali Orra Valssyni, en hann er búsettur í Banda- ríkjunum þar sem hann stundar nám í viðskiptum hjá Florida Institude of Technoligy og spilar körfubolta samhliða. „Ég er búinn að kynnast mörgum hérna úti, enda eru Kanarnir ekki hræddir við að vaða í mann og byrja að spjalla eins og maður hafi þekkt þá í þrjátíu ár. Mér finnst það bara skemmtilegt, þá líður manni eins og maður sé velkominn hér,“ segir Valur en Bandaríkin eru að hans sögn mjög ólík Íslandi. „Kanar elska Ameríku og sjá ekkert annað. Við Íslendingar elskum landið okkar en viljum alltaf vera annars staðar. Það er svo margt ólíkt með þessum stöðum. Hérna eru mjög margir út- lendingar og maður eignast vini frá ýmsum stöðum í heiminum.“ Það besta við að búa í Bandaríkj- unum segir Valur vera veðrið. „En fyrir utan það þá er það sennilega rútínan sem maður er í. Ég hef tæki- færi til að gera það sem ég elska allan daginn. Svo er það auðvitað gráðan sem maður horfir til.“ Strákarnir í liðinu eru góðir saman og verja þar af leiðandi miklum tíma saman. „Á meðan maður er í körfunni og skólanum er rosalega takmarkaður tími til að gera eitthvað annað, en við reynum að kíkja út annað slagið, annars erum við bara slakir. Svo er alltaf hægt að kíkja til Orlando í versl- unarmiðstöðvarnar og einhverjar afþreyingar.“ Hefðbundinn dagur hjá Vali hefst um átta leytið á morgnana, en hann kemur sér í skólann og borðar al- mennilegan morgunmat. Hann mætir í alla tímana sína og æfir körfubolta oftast á milli klukkan þrjú og sex. Eftir æfingarnar tekur lærdómurinn við. „Ég reyni að hugsa lítið um það hvað hvað ég ætla að gera eftir skólann og leyfi því frekar að koma bara til mín. Ég ætla að klára þetta fyrst og svo set ég mér ný markmið og nýja stefnu.“ HS Veitur hf óska eftir að ráða sérfræðing á fjármálasvið á starfsstöð sína í Reykjanesbæ Hjá HS Veitum starfar framsækinn hópur starfsfólks sem kappkostar að ea sig í star með frumkvæði, fagmennsku og framúrskarandi vinnubrögðum. Fyrirtækið varð til 1. desember 2008 þegar Hitaveitu Suðurnesja hf var skipt upp. HS Veitur annast raforkudreingu á Suðurnesjum, í Hafnarrði, í hluta Garðabæjar, í Vestmannaeyjum og í Árborg. HS Veitur annast hitaveiturekstur á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum og vatnsveiturekstur að stórum hluta á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum. Starfsstöðvarnar eru órar, í Reykjanesbæ, Hafnarrði, Vestmannaeyjum og í Árborg. Hjá fyrirtækinu starfa um 100 starfsmenn. Menntunar- og hæfniskröfur: - Haldgóð reynsla af sambærilegu starfi - Viðskiptafræðimenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi - Góð bókhaldsþekking og skilningur á fjármálum - Þekking og reynsla af Microsoft Dynamics AX eða sambærilegu kerfi kostur - Góð greiningarhæfni og tölvukunnátta - Frumkvæði í starfi og öguð vinnubrögð - Færni í samstarfi og samskiptum HS VEITUR HF www.hsveitur.is Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Eyjólfsdóttir mannauðsstjóri. Umsækjendur sækja um störfin á heimasíðu fyrirtækisins www.hsveitur.is. Umsóknarfrestur er til og með 12 febrúar 2018. Starfssvið: - Færsla bókhalds, afstemmingar og aðstoð við uppgjör - Greiðslumóttaka frá bönkum og innheimtuaðilum - Móttaka reikninga frá lánardrottnum - Skýrslugerð og upplýsingamiðlun til aðila innan og utan fyrirtækis - Umsjón með rekstrarsamningum - Önnur almenn störf á fjármálasviði RÁÐNINGARÞJÓNUSTA Ráðningarþjónusta HH Ráðgjöf • Fjarðargata 13 - 15 • 220 Hafnarörður • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is Nánari upplýsingar um störfin er að finna á heimasíðu HH Ráðgjafar www.hhr.is og eru áhugasamir beðnir um að sækja um störfin þar. Framleiðslustörf Íslandshús ehf. óska eftir að ráða starfsmenn í framleiðslu forsteyptra eininga í steypustöð. Vinnutími er frá kl. 08:00 til kl. 17:00. Hæfniskröfur · Lyftarapróf kostur · Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð · Áreiðanleiki, stundvísi og reglusemi Íslandshús ehf. er nýsköpunarfyrirtæki sem þróar og framleiðir forsteyptar einingar s.s. stólpa og undirstöður fyrir skjólgirðingar, sólpalla, smáhýsi ofl. Íslandshús framleiðir "DVERGANA" sem eru vinsælustu smástólpar á íslenskum markaði og seldir í öllum byggingavöruverslunum landsins. B Í L A V E R K S T Æ Ð I S t a r f s m e n n ó s k a s t W A R S Z T A T S A M O C H O D O W Y Z a t r u d n i p r a c o w n i k ó w Nýsprautun ehf er bíla- og réttingarverkstæði í Reykjanesbæ. Vegna aukinna verkefna vantar okkur nú þegar starfsmenn í eftirtaldar stöður: • Starfsmann í móttöku/skrifstofustarf • Málara á sprautverkstæði, helst vanan • Starfsmann í almennar viðgerðir/þrif/standsetningu Nýsprautun ehf warsztat mechaniki samochodowej oraz blacharsko lakierniczy w Reykjanesbæ. W związku ze zwiększonymi projektami potrzebujemy pracowników na następujących stanowiskach: • Pracownik recepcji / pracownik biurowy • Lakiernik samochodowy z doświadczeniem • Pracownik w zakresie napraw ogólnych / myjnia / demontaż i montaż. Nýsprautun ehf. • Njarðarbraut 15 • 260 Reykjanesbæ Upplýsingar: Sverrir s. 896-1717 • nysprautun@nysprautun.is LÍNURNAR TEKNAR AÐ SKÝRAST FYRIR KNATTSPYRNUSUMARIÐ Undirbúningur fyrir knattspyrnusumarið sem er framundan er hafinn og eru Suðurnesjaliðin í óðaönn að semja við leikmenn fyrir átökin. PEPSI-DEILDIN Grindavík hefur samið við Aron Jó- hannsson frá Haukum og Jóhann Helga Hannesson sem kom frá Þór. Markakóngur Pepsi-deildarinnar í fyrra, Andri Rúnar Bjarnason, er farinn til Helsingborg, Aron Freyr Róbertsson hefur samið við Keflavík og Gylfi Örn Á Öfjörð er genginn til liðs við ÍR. Hákon Ívar Ólafsson, Juanma Ortiz og Maciej Majewski eru allir samings- lausir hjá liðinu. Enginn leikmaður er farinn frá liði Keflavíkur og er Aron Elís Árnason samningslaus. INKASSO-DEILDIN Njarðvík hefur samið við Helga Þór Jónsson frá Víði Garði og Sigurbergur Bjarnason er kominn í grænu treyj- una en hann kom frá Keflavík. Þá er Gualter Aurelio Oliveira Bilro farinn til Portúgal. Gunnar Þorsteinsson framlengir við Grindavík Gunnar Þorsteinsson fyrirliði Grindvíkinga í Pepsi-deild karla í knattspyrnu framlengdi samn- ing sinn við knattspyrnudeildina um tvö ár og er nú samnings- bundinn félaginu til loka ársins 2020, þetta kemur fram í frétta- tilkynningu frá félaginu. Jónas Þórhallson formaður ásamt Gunnari við undirritun samningsins.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.