Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 12.03.2018, Blaðsíða 9
Don't enlarge the this template. The size of this template can be reduced. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 KOMDU OG REYNSLUAKTU NÝJUM NISSAN MICRA NISSAN MICRA VERÐ FRÁ: 2.190.000 KR. HUGVITSSAMLEG NEYÐARHEMLUN ELDSNEYTISNOTKUN FRÁ: DÍSIL 3,2 L/100 KM.* BENSÍN 4,4 L/100 KM.* AKGREINAVIÐVÖRUN OG LEIÐRÉTTING E N N E M M / S ÍA / N M 8 6 5 2 6 N is s a n M ic ra 5 x 2 0 a lm e n n f e b *M ið að v ið u pp ge fn ar tö lu r f ra m le ið an da u m e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tr i. Fjölmennu og afar vel heppn-uðu flokksþingi Framsóknar lauk í gær. Yfirskrift þess var Framsókn til framtíðar. Við höfum í hendi okkar hvernig við vinnum úr tækifærum framtíð- arinnar og hvernig sú saga verður skrifuð. Á kjörtímabilinu verður unnið að því að byggja upp gott og samkeppnishæft samfélag. Engum vafa er undirorpið að ríkuleg verð- mæti felast í því að landið allt sé í blómlegri byggð. Við eigum að vera í fremstu röð hvað jöfnuð snertir og skapa hvata til að laða ungt vel menntað fólk til þess að setjast að á landsbyggðinni. Sýn Framsóknarflokksins er að íbúar landsins hafi jöfn tækifæri hvar sem þeir búa á landinu. Sem dæmi má nefna að íbúar á Raufar- höfn eða Þingeyri eiga rétt á að hafa sama aðgengi að grunnþjónustu og Reykvíkingar. Jöfn tækifæri Samfélagið er á fleygiferð. Framund- an er tæknibylting sem breytir því hvernig við lifum og störfum. Störfin munu breytast og þau munu færast til. Tæknin tengir saman byggðir og Ísland við umheiminn. Ljósleiðar- inn og verkefnið Ísland ljóstengt er gott dæmi um framsækna stefnu okkar framsóknarmanna. Heilbrigðiskerfið þarf að standast samanburð við það sem best gerist í heiminum. Þjónustan á að vera sem mest í nærsamfélaginu, en jafnframt þarf að vera gott aðgengi að henni á höfuðborgarsvæðinu. Aldrei hefur verið jafn mikil þörf á að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu. Aldrei hefur verið jafn mikil þörf á að spyrna við fæti á svæðum sem búa við fólks- fækkun og einhæft atvinnulífi. Um allt land er verk að vinna. Menntamál Á aldarafmæli Framsóknarflokks- ins, í desember 2016, var sem fyrr horft til framtíðar og settur á fót menntastefnuhópur til að móta nýja stefnu flokksins í mennta- málum. Stefnan var síðan kynnt á nýliðnu flokksþingi. Því miður eru mennta- og skóla- mál víða í ólagi og starfsumhverfi skólanna þarf að bæta. Skólinn á að vera eftirsóttur vinnustaður. Það er skylda okkar að efla skóla- starfið á öllum stigum. Kennarar verja margir hverjir meiri tíma með börnunum en foreldrar. Þeir hafa áhrif á mannauð framtíðarinnar. Okkur ber skylda til þess að styðja betur við kennarana, en hér þurfa ríki og sveitarfélög að koma að. Við megum ekki missa fleiri störf úr landi. Það þarf að efla nýsköpun og þróun á öllum skólastigum enda er menntun kjarninn í nýsköpun til framtíðar. Við erum í sam- keppni við aðrar þjóðir um störfin okkar. Hvernig okkur tekst til mun ráða miklu um framtíðarlífskjör á Íslandi. Samgöngur Við vitum líka að vegakerfið er grundvöllurinn að búsetu, atvinnu- lífi um land allt. Samgöngur eru hreyfiafl samfélagsins hvernig sem á það er litið. Við viljum og þurfum að komast leiðar okkar. Sum okkar eru einnig háð því að samgöngur á sjó séu skilvirkar. Frá og með deg- inum í dag verður sama fargjald og er til og frá Landeyjahöfn, þó siglt sé í Þorlákshöfn. Það er byggðastefna í verki. Vegakerfið hefur setið á hakanum og krefst risavaxinna fjármuna. Í sáttmála ríkisstjórnarinnar segir að hraða eigi uppbyggingu í vega- málum. Vegakerfið var ekki byggt fyrir þá umferð sem við horfum nú upp á. Við höfum ekki undan við að endurbyggja þjóðvegina og koma þeim í það horf sem nútíma þjóð- félag krefst. Ástæðurnar eru öllum kunnar: Of lág fjárframlög til vega- mála, stóraukin umferð og álag á vegakerfið. Verkefnið er stórt og við ætlum í uppbygginu, enda veitir ekki af. Við ætlum einnig að gera innan- landsflugið að raunhæfari kosti fyrir íbúa í dreifðum byggðum og tengja byggðir landsins saman með almenningssamgöngum. Aukin notkun mun stuðla að fjölgun ferðamanna um landið, allt árið um kring. Húsnæði Framsóknarflokkurinn hefur áorkað miklu í húsnæðismálum. Lög um fyrstu fasteign skiluðu góðum árangri fyrir fyrstu kaup- endur. Húsnæðissamvinnufélög fengu betri umgjörð. En við viljum gera betur og halda áfram að styðja við ungt fólk. Við höfum horft til annarra þjóða í þeim efnum. Og hvernig við getum lært af þeim sem hafa glímt við sams konar vanda og fundið á honum lausnir. Staðan er alvarleg, ekki bara á höfuðborgar- svæðinu heldur einnig vítt og breitt um landið. Ísland í fremstu röð Fyrir kosningar lögðum við áherslu á að bankarnir nýttu strax það svig- rúm sem þeir hafa til að greiða arð í ríkissjóð. Við stöndum við það loforð. Við ætlum að nýta fjármagn frá bönkunum til að byggja upp vegakerfið. Innviðir er slagæðar samfélagsins. Án þeirra drögumst við aftur úr öðrum þjóðum og sam- keppnishæfni landsins minnar. Framsóknarflokkurinn ætlar að koma Íslandi í fremstu röð. Fram- sókn til framtíðar. Framsókn til framtíðar Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Fram- sóknarflokksins Á kjörtímabilinu verður unnið að því að byggja upp gott og samkeppnishæft sam- félag. Engum vafa er undir- orpið að ríkuleg verðmæti felast í því að landið allt sé í blómlegri byggð. S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 9M Á n u D A G u R 1 2 . M A R S 2 0 1 8 1 2 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 2 A -7 3 4 8 1 F 2 A -7 2 0 C 1 F 2 A -7 0 D 0 1 F 2 A -6 F 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.