Land & synir - 01.08.2001, Blaðsíða 2

Land & synir - 01.08.2001, Blaðsíða 2
Land & synir Nr. 30 - 4. tbl 7. árg. JÚLÍ/ÁGÚST2001. Útgefandi: Félag kvikmyndagerðarmanna í samvinnu við Kvikmyndasjóð fslands, Framleið- endafélagið SfK og Samtök kvikmyndaleikstjóra. Ritstjóri: Ásgrímur Sverrisson. Ábyrgðarmaður: Björn Brynjúlfur Björnsson. Ritnefnd: Anna Th. Rögnvaldsdóttir, Ari Kristinsson, Björn Brynjúlfur Björnsson, Friðrik Þór Friðriksson, Hrafn Gunnlaugsson, Ólafur H. Torfason, Þorfinnur Ómarsson. Prentun: Prentkó. Land & synir kemur út annan hvern mánuð. Tölvupóstur: olla.asi@simnet.is. Sagan og safnið lega hljóta afgreiðslu frá Alþingi á hausti komanda er nauðsynlegt að hafa ( huga að þau lög ná líka yfir starf- semi Kvikmyndasafns Islands. Á þeirri stofnun er griðarlegt starf óunnið eins og fram kemur í grein Sigurjóns Baldurs Hafsteinssonar forstöðumanns safnsins hér ann- arsstaðar í blaðinu. Verði frum- varpið að lögum hefur safnið ágæta möguleika til að gegna hlutverki sínu með sóma. Starfsemi Kvikmyndasafnsins má skipta gróflega í fjóra megin- þætti; söfnun, varðveislu, skrán- ingu og sýningarhald. Vegna fjár- skorts hingað til má segja að eini liðurinn sem sinnt hefur verið af alvöru er sá fyrstnefndi, söfnunin. En einnig þar er ástandið alls ekki nógu gott. Til dæmis er frumefni fjölmargra (slenskra bíómynda ekki geymt þar likt og eðlilegt hlýtur að teljast. Sú spurning vaknar hvar það sé niðurkomið. Full ástæða er til að hvetja fram- leiðendur íslenskra bíómynda til að taka til hendinni í þessum málum hið allra fyrsta svo einhver framtíðar Árni Magnússon þurfi ekki að ríða um héruð og draga gamlar filmudósir útúr rykföllnum kompum í kapphlaupi við eyði- leggingaröfl tima og sinnuleysis. Slíkt er með öllu óþarfi. íslensk kvikmyndasaga er stutt og okkur ekki ofvaxið verk að halda utan um hana frá byrjun. Hinsvegar verður það ögn erfiðara með hverju árinu sem Ifður án þess að nokkuð sé gert. Filmur þarfnast sérstakrar geymslu og meðhöndl- unar, eigi þær ekki að skemmast fljótt. Það viðhorf hefur of lengi ráðið ríkjum að varðveisla kvikmynda- arfsins sé eitthvað sem mæta megi afgangi. Slikt er auðvitað argasta skammsýni, Líkt og Martin Scorsese hefur bent á eru kvikmyndirnar einhver skýrasti vitnisburður um viðhorf og lífsstil síns tima sem finna má. Því hljóta skyldur kvikmyndaframleiðenda gagnvart sögunni að teljast miklar. Ný lög um skylduskil til safna munu vonandi ná að kippa hlutunum i lag varðandi myndir framtíðarinnar en hvað eldri myndir varðar liggur ábyrgðin hjá framleiðendum þeirra. Þó að segja megi að söfnunin sé ákveðin frumforsenda hinna þáttanna í starfsemi safnsins, þjónar hún litlum tilgangi ef ekki er vel staðið að varðveislu, skráningu og sýningarhaldi. Þessi starfsemi er undirstaða kvik- myndamenningar í landinu, brúin milli fortíðar og framtíðar. Á Kvikmyndasafninu er geymd sú fjársjóðskista sem auðgar hugarheim komandi kynslóða. Vonandi bera menn gæfu til að fela henni í auknum mæli umsjón með þeim dýru gripum sem gefa henni gildi. STJÓRNIR FÉLAGANNA STJÓRN FÉLAGS KVIKMYNDAGERÐARMANNA: Formaður: Björn Br. Björnsson. Varafor- maður: Jón Karl Helgason. Ritari: Kristín Erna Arnardóttir. Gjaldkeri: Katrín Ingvadóttir. Með- stjórnendur: Anna Dís Ólafsdóttir, Ingvar Á. Þórisson, Hjálmtýr Heiðdal. Varamenn: Kristín María Ingimarsdóttir, Hildur Bruun. STJÓRN FRAMLEIÐENDAFÉLAGSINS SÍK: Formaður: Ari Kristinsson. Varaformaður: Jón Þór Hannesson. Gjaldkeri: Snorri Þórisson. Meðstjórnendur: Friðrik Þór Friðriksson og Guðmundur Kristjánsson. Varamenn: Viðar Garðarsson og Hrafn Gunnlaugsson. STJÓRN SAMTAKA KVIKMYNDALEIKSTJÓRA: Formaður: Friðrik Þór Friðriksson. Gjaldkeri: Hilmar Oddsson. Ritari: óskar Jónasson. Varamenn: Hrafn Gunnlaugsson, Kristín Jóhannesdóttir, Jón Tryggvason. TIÐ N D I Ú Itfl .......... KMYNDAHEIMINUM Jákvæð viðbrögð gagnvart hinu nýja kvikmyndalagafrumvarpi Meðal kvikmynda- gerðarmanna virðist ríkja almenn sátt við hið nýja frumvarp um kvikmyndalög sem nú er í meðförum Alþingis og kemur að öllum líkindum til atkvæðagreiðslu í haust. Fari svo munu lögin komast til framkvæmda á næsta ári. Frumvarpið ásamt fylgi- gögnum var birt í heild sinni í síðasta tölublaði L&S en það er einnig hægt að nálgast á vef Alþingis. Forstöðumaður hefur ákvörðunarvald í nýju lögunum er gert ráð fyrir stofnun Kvikmyndamið- stöðvar íslands. Ráðinn verður forstöðumaður til fimm ára og hefur hann ákvörðunarvald varðandi hverskonar íjárstuðn- ing við íslenskar kvikmyndir af öllu tagi. f reglugerð sem menntamálaráðherra setur er gert ráð fyrir að kveðið verði á um ráðningu úthlutunarnefnda eða kvikmyndaráðgjafa, for- stöðumanni til aðstoðar. Úthlutað árið um kring? Talið er líklegast að lendingin verði sú að forstöðumaður ráði sér ráðgjafa sér við hlið og þannig verði fyrirkomulag íjárveitinga úr Kvikmyndasjóði í svipuðum farvegi og víðast hvar á Norðurlöndum og í Evrópu. Þetta þýðir væntanlega að úthlutað verður árið um kring, líkt og nú tíðkast þegar hjá stuttmynda- og heimildar- myndadeild sjóðsins undir stjórn Kristínar Pálsdóttur. Ályktun SÍK Framleiðendafélagið SÍK ályktaði nýlega um frumvarpið og segir þar m.a.: “Stjórn félags- ins hefur skoðað frumvarpið ítarlega og lýsir hér með yfir ánægju með frumvarpið í heild. Það er álit stjórnar SfK að mikil þörf hafi verið á nýju frumvarpi um kvikmyndamál, vegna þeirra miklu breytingar sem átt hafa sér stað á starfsumhverfi kvik- myndaframleiðenda á undan- förnum árum. Vel virðist hafa tekist til með frumvarpið, enda hefur við gerð frumvarpsins verið tekið tillit til flestra ábendinga kvikmyndagerðar- manna.” Fimm handrit fá framhaldsstyrki frá Kvikmyndasjóði Handritanefnd hefur veitt eftirfarandi fimm verkefnum framhaldsstyrk að upphæð kr. 300.000,- hvert: Barndómur eftir Karl Ágúst Úlfsson Búktalaraást eftir Kristínu Ómarsdóttur og Oddnýju Eir Ævarsdóttur Napóleonsskjölin eftir Arnald Indriðason Skuggar eftir Jón Steinar Ragnarsson Snjódóníu eftir Ragnar Bragason 2 Land & synir

x

Land & synir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.