Land & synir - 01.08.2001, Blaðsíða 4

Land & synir - 01.08.2001, Blaðsíða 4
HANDRITIÐ SKRIFAÐL GUÐSPJALLAMAÐURINN LÚKAS Bíóið er musteri og hýsir fjölmennustu andlegu samkomur okkar tíma. Ogflest kvikmyndahandrit eru byggð á hugmyndum sem hafa skolast til höfundanna úr Biblíunni, Kóraninum, Úpanisjödunum, Bókinni um veginn eða öðrum slíkum pælingum. Allar bíómyndir eru vitnisburður um eða athugasemdir við siðaboðskap, trúarbrögð og lífsskoðanir. Hver er öflugasti boðskapurinn í samtímanum? NOKKRAR VINSÆLUSTU BÍÓMYNDIR ALLRA TÍMA 1 Titanic (1997), J. Cameron 2 Star Wars (1977), G. Lucas 3 Star Wars: The Phantom Menace (1999),G. Lucas 4 E.T.(1982), S. Spielberg 5 Jurassic Park (1993), S. Spielberg 6 Forrest Gump (1994), R. Zemeckis 7 The Lion King (1994), R. Allers/R. Minkoff 8 Return of the Jedi (1983), R. Marquand 9 Independence Day (1996), R. Emmerich 10 The Sixth Sense (1999), M. Night Shyamalan 11 The Empire Strikes Back, (1980), I. Kershner Aths.: Hér er miðað við dali í kassann, þ.e. greiddan aðgangseyri í kvikmyndahúsum á verðlagi hvers tíma. Röðin verður önnur ef tekið er tillit til verðbólgu. Erfitt að gera svona samanburð nákvæman og nægilega upplýsandi af ýmsum orsökum, heimildir eru stundum eldki áreiðanlegar og hér er ekki tekið tillit til sölu myndbanda og geisladiska og áhorfs á þá. Eitt af því sem vekur athygli er hve mörg verkanna snerta ögurstundir og endalok, smæð mannsins gagnvart j óvæntum atvikum, en ekki síst návist hins óútskýranlega j og "yfirnáttúrlega". Trú og bíó Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Martin Scorsese (f. 1942) er af ítölsku foreldri og þefaði af kaþólskum prestaskóla í New York áður en hann sneri sér að kvikmyndanámi. Ein af frægustu stuttmyndum sögunnar er skólaverk hans Raksturinn mikli (The Big Shave,1967) þar sem maður sker sig við rakstur en heldur áfram og úthellir blóði sínu stöðugt í hvítan vaskinn og loks um allt baðherbergið á svo yfirgengilegan máta að fæstum er rótt í kvið. Þótt Scorsese segist í Rakstrinum hafa verið að mótmæla Víetnamstríðinu leikur lítill vafi á því að þessi blóðfórn kallast á við blóðhefð kristninnar. Fyrsta stýrða mynd Scorsese sem hann var að gera á sama tíma og Raksturinn, Hver ber að dyrum? (I Call First (1967) / Who's that Knocking at My Door (1968)), endar á því að aðalpersónan kyssir fætur Krists á róðukrossi í kirkju og blóð tekur að renna úr fætinum. Raksturinn á sér þannig sama uppruna og Krossvísur Jóns biskups Arasonar á 16. öld: "fyrir þann dýra dreyrafoss / er dundi af sárum þín / blessað benja vín". Enn skýrari er samlíkingin við Passíusálma sr. Hallgríms Péturssonar á 17. öld: "opinbert sáu allirþar / útrunninn dreyra foss". Eins og Scorsese segir: "Blóð er mjög mikilvœgt í kirkjunni. Blóðið er lífskrafturinn, kjarninn, fórnin."1 Og hann sagði á árinu 1997: “Ég sé ekki andstæður milli trúar og kvikmynda, hins helga og hins verald- lega. Auðvitað er ýmislegt sem skilur á milli, en ég get líka séð líkindi með kirkju og kvikmyndahúsi. Á báðum stöðum kemur fólk saman til að deila sameiginlegri reynslu. Ég trúi því að andlega reynslu sé að finna í kvikmyndum, þó hún komi ekki í stað trúar. Ég hefkomist að því gegnum tíðina að margar kvikmyndir höfða til hins andlega í náttúru mannsins, allt frá Intolerance Griffiths, gegnum Þrúgur reiðinnar [eftirj John Ford, Vertigo [eftirj Hitchcock til 2001 [eftir] Kubrick... ogsvo margar fleiri. Það er eins og kvikmyndir hafi svarað hinni cevafornu leit okkar að sameiginlegu algleymi. Þær uppfylla hina andlegu þörf fólks til að deila sameiginlegum minningum".2 Scorsese segist síðast hafa skriftað hjá presti 1965 en síðan skriftað í myndum sínum (skyldi kaþólilddnn Lars von Trier vera að gera það sama?) og að gamlir félagar hans í prestastétt hafi skilning á þessu. Scorsese segir: "...ég get ekki hætt að vera trúaður. Ég er að leita að sambandinu milli Guðs og manns eins og allir aðrir."3 Tvær bíómynda Scorsese snúast beinlínis um trúarleg efni, Síðasta freisting Krists (The Last Temptation of Christ, 1988) og Kundun (1997), sem skýrir frá tíbetska Búddistaleiðtoganum Dalai Lama.4 Sú fyrrnefnda lýsir m.a. manneðli Krists á opinskáan hátt og mætti harðri andstöðu ýmissa siðapostula. Hún var sýnd athugasemdalítið í bíói hérlendis en tekin fyrirvaralítið af dagskrá Sjónvarpsins fyrir nokkrum árum vegna mótmæla ónafngreindra þrýstara og hefur ekki enn sést á skjáum landsmanna. Kvikmyndin er kirkja Ásgrímur Sverrisson (f. 1964)5 kvilcmyndaleikstjóri og ritstjóri Lands & sona hefur teldð enn dýpra í árinni um hliðstæður kirkju og kvikmynda heldur en Scorsese: “Kvikmyndin er kirkja. Staður til að eiga sameiginlegan fund með guði, en um leið einkafund, með okkar persónulega guði. Til hvers segjum við sögur? Sögur eru lækningfyrir sálina. Tilraun til að skilja, skilgreina, hrífast, komast í algleymið. Kvikmyndin, líkt og trúin, er aðferð til að skoða mannskepnuna að innan og utan, vonir og þrár, drauma og martraðir, tengsl hennar við umhverfi sitt. Kvikmyndastjörnurnar eru dýrlingarnir, íkonarnir, birtingarmynd hinna háleitu markmiða sem okkur dreymir um. Poppið og kókið - oblátan og vínið? Ég trúi á kvikmyndina. Ég trúi á mátt hennar til að hreyfa við okkur, snerta okkur. Ég trúi á Chaplin og Hitchcock, John Ford, Orson Welles, Woody Allen og Billy Wilder, Kieslowski og Bergman, Scorsese og jafnvel Friðrik Þór. Kvikmyndasýningin er altarisganga. Við játumst töfrum hennar sam- eiginlega og um stund opnast okkur himnarnir.”6 4 Land & synir

x

Land & synir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.