Land & synir - 01.08.2001, Blaðsíða 10
mitt hlutverk að leita skýringa, heldur eingöngu
að varpa ljósi á ákveðinn veruleika. Einhverja
smáveröld sem hann býr í. Mér leiðast myndir
sem hafa einhverja pólitíska réttlætingu að
leiðarljósi. Kvikmyndagerðarmaður með
skoðun er eitthvað sem að ég hef ekki áhuga á.
"Ég ætlaði að spyrja um hvaða rétt maður hefði
varðandi sjúkra-dagpeninga...Aftur ítímann... En
nú hafa menn fengið það.... Ja, nei ekki þeir sem
hafa verið í fangelsi.... Ég veit um einn sem var á
skíðum og hann bara labbaði þarna inn í
Trygginga-stofnun ríkisins og talaði við einhverja
yfirmenn þar og... Er engin yfirmaður þarna sem
maður getur talað við þarna? Nú er þannig sko að
ég á þvott niðri á Hótel Lind sko sem kostar 500
kall.
En get ég ekki náð í neinn núna? Er sem sagt...
Á maður engan rétt?"
Lalli Johns
Ég fann það líka með félagsmálastofnun og
félagsþjónustuna að þeir voru bara ekkert til
viðtals. Þeir vildu ekki að ég væri að gera þessa
mynd. Ég fann það líka með fangelsismála-
stofnun. Þeir vildu ekki að ég væri að gera þessa
mynd.
Þeir vildu ekki hleypa mér inn þegar Lalli var
inni. Á meðan spígsporaði Jón Ársæll Þórðar-
son frá Stöð 2 og gerði þáttaröð sem átti að vera
vika Jóns Ársæls í fangelsinu, en var í raun og
veru ekld nema tveir dagar. Hann kom inn í
íslandi í dag kvöld eftir kvöld í viku að segja frá.
Spígsporandi þarna um með míkrafóninn og
talandi við hina og þessa fanga. Ég fékk það
ekki. Af hverju fékk ég það ekki? Af því að þeir
vildu ekki að ég væri að gera þessa mynd. Af því
að þeir eru litlir smákóngar í kerfinu. Þeir ráða
hverjir fara inn og hverjir ekki. Þetta eru bara
geðþóttaákvarðanir yfirmanna. Þetta er ákveðið
vald sem þeir nota og beita. Og ég get sagt þér
margar sögur um það. Hins vegar fór ég inn í
fangelsið þegar Lalli var laus. Þá gat ég farið og
myndað hann inní fangaklefanum. Ekki fyrr.
Það er nefnilega ekki sama Jón eða séra Jón.
"Góðan daginn" (Lalli Johns)
"Sæll vertu kallinn minn. Hvern ertu með þér?"
(Lögreglumaður)
"Þetta er heimildakvikmyndamaður. Það er
kannski vont að fá hann í þessa deild hérna?"
"Já. Hann er ekki leyfilegur hingað inn. Hann
getur beðið fyrir utan bara meðan við ræðum
málin."
"Já."
"Eru þeir að gera heimildarmynd um þig?"
"Já, já og engin fíkniefni."
"Heyrðu! Þá lokum við bara.Takk fyrir."
[Mynd af lokuðum dyrum.]
Ég vildi ekki taka þetta lengra og eyða orku í
það. Þá hefði myndin bara breyst. Maður hefði
farið í annan farveg. Það má kannski orða það
þannig að ég var kominn í spor Lalla Johns að
þessu leitinu til gagnvart kerfinu. Ég fann fyrir
kerfinu. Það var ekkert hrifið af því sem ég var
að gera. Það voru ákveðnir menn innan
MYNDIN SEM KERFIÐ VILDI EKKIAÐ YRÐI GERÐ:
"Ég fann það líka með félagsmálastofnun og
félagsþjónustuna að þeir voru bara ekkert til
viðtals. Þeir vildu ekki að ég væri að gera
þessa mynd. Ég fann það líka með fangelsis-
málastofnun. Þeir vildu ekki að ég væri að
gera þessa mynd" segir Þorfinnur Guðnason
meðal annars.
sannleikur, vegna þess að þær
ákvarðanir sem þú tekur við
klippiborðið eru þess eðlis að
það er aldrei hægt að segja alla
söguna. Sannleikur plús eða
mínus er ekki sannleikur. Hann
er teintaður (veill). Maður er að
reyna að varpa ljósi á sann-
leikann en maður er aldrei að
reyna að segja hann allann.
Þetta er svolítið atriði því að það
er í höndum leikstjórans eða
klipparans að ákveða hvað
áhorfendur fá að sjá.
"Ég var búinn að vera á flakki í
þrjú ár, þá vinnur mamma stóran
vinning í Happdrætti Háskólans
[...] Þá keypti hún sér íbúð og við
fluttum inn til hennar. Það var
rosalega gaman. Kábojar og
indjánar og ég, Buffalo Bill frá A til
Ö. Hold it, stick'em up. Bang."
Lalli Johns
Ég gæti klippt á þar sem Lalli
segir “Ekki setja þetta inní
myndina” eða “Ég var bara að
ljúga” og ég gæti presenterað
það sem heilagan sannleik, þó
hann væri bara að ljúga. Mér
finnst þetta vera svolítið málið í
heimildarmyndagerð af þessum
toga. Menn mega ekki búast við
því að allt sé hreinn og beinn
sannleikur vegna þess að plús
eða mínus einn af þessum 100%
sannleik hann gerir sannlerkinn
fangelsismálastofnunar sem reyndu beinlínis að
setja stein í götu mína þegar ég var að gera
myndina.
"Ég er tækifærissinni, en ekki þjófur."
Lalli Johns
teintaðan, hann verður aldrei
hreinn sannleikur. Þannig að það eina sem þú
getur gert er að reyna að varpa ljósi á hann í
gegnum þessa frásögn sem klippingin er.
Menn voru með allskonar vandlætingu
gagnvart öðrum kvikmyndagerðarmönnum á
þessum cinéma vérité tímabili og menn fóru
svona í ýmsar áttir í þessu observational dæmi.
Þessi rammaffysting í myndinni markast af
því að annað hvort var spólan ónýt eða biluð á
ákveðnum tíma. Þannig að ég varð að frysta
rammann eða fara út í svart. Þannig að þetta
var bara spurning um það eða að sleppa
atriðinu algjörlega. Þetta er bara hrá mynd. Ég
bara reyndi með öllum ráðum að segja þessa
sögu. Það var því engin djúp hugsun þar að
baki. Það er svolítið gaman að segja frá því að
þegar myndin fór í gegnum tækniskoðun hjá
Sjónvarpinu þá hringdu þeir í mig og bentu mér
á galla sem var reyndar mjög djúpt hugsaður.
Þá hafði ég klippt mjög hratt og látið myndina
óma í endurtekningu. Þeir bentu mér á þennan
“galla”. Ég hins vegar benti þeim á að þetta væri
listræn úrlausn.
Þegar menn eru að rökræða um sannleikann
í kvikmyndagerð og sérstakleg í svona
observational myndum. Þá er það alveg svart á
hvítu að það er enginn sannleikur til í raun og
veru. Enginn heilagur, einn hreinn, heilagur
Menn voru t.d. með ákveðnar reglur eins og
cinema direct þar sem að þú varðst að klippa
allt eftir tímaröð. Máttir ekki færa tímann til og
frá. Allir þessir vandlætingasinnar sem töluðu
með kyndilinn í hendinni og töluðu um leitina
að sannleikanum - að þetta væri sannleikur en
hitt lygi. Það er bara bull að mínu mati.
Sannleikurinn er bara í einhverju núi. Þú getur
ekki endursagt sannleika. Sannleikurinn er hér
og nú. Þú endursegir hann ekki. Allar
hugmyndir um háheilagleika eru bara bull.
"Gangi þér vel Lalli. Passaðu að lenda ekki
inni!"
N.N. vinur Lalla Johns
VIÐTAL: SIGURJÓN BALDUR HAFSTEINSSON
sbh@kvikmyndasafn.is
10 Land & synir