Land & synir - 01.08.2001, Blaðsíða 14

Land & synir - 01.08.2001, Blaðsíða 14
555-6160 "Takk fyrir að hringja í Bæjarbíó, kirkju kvikmyndanna. EFTIR SIGURJÓN BALDUR HAFSTEINSSON forstöðumann K v i k m y n d a s a f n s íslands “What we're actually talking about is the destruction ofa culture. Certainfilms made during the Thirties, Forties or Sixties can tell you more about the attitudes and lifestyles of a country ihan anything else. But thesefilms are really being used as disposable art. ..in-built obsolescence, where a color print fades after only two years and the negative fades after six or seven. It's an outrage. ...Áll of our agonizing labor and creative effort isfor nothing because ourfilms are vanishing.” annig kemst bandaríski leikstjórinn Martin Scorsese að orði í blaðagrein frá 1980, en hann hefur verið ötull talsmaður þess að þjóðir heims hugi að kvikmyndaarfi sínum og geri ráðstafanir til þess að honum sé bjargað frá glötun. Annar kvikmyndaleikstjóri, Steven Spielberg, hefur einnig verið talsmaður kvikmyndavarðveislu og fjármagnaði m.a. byggingu kvikmyndasafns í ísrael. Ef slíkra manna nyti ekki við væri hætta á að margar háskóladeildir sem stunda sagnfræði, félags- vísindi, hugvísindi einsog bókmennta- og kvik- myndafræði þyrfti að leggjast niður vegna þess einfaldlega að það er ekki til neitt sem heitir kvikmynd - nema þá í munnmælasögum eða sem stafir á bók sem lýsa listformi sem hrifið hefur fólk allt frá fyrstu tíð. Tíminn hefur lagt filmur og myndbandsmerki að velli, og sú hætta er viðvarandi. Söfnun kvikmynda Þó svo að Islendingar hafi verið tiltölulega fljótir að komast í kynni við kvikmyndalistina, en elstu heimildir um sýningar á kvikmyndum er að finna frá árinu 1903, og verið farnir að fást sjálfir við kvikmyndatökur um 1904, var það ekki fyrr en um 70 árum síðar sem farið var að huga að því að safna þessum menningarsögu- legu minjum með skipulögðum hætti. Er það nokkuð seinna en í nágrannalöndunum. Sem dæmi má nefna að Svíar hófu sína söfnun árið 1933 og var það tveimur árum áður en Þjóðverjar, Bretar, Frakkar og Bandaríkjamenn stofnuðu sín söfn. Að mörgu leyti má segja að sögu kvikmyndasafha í Evrópu svipi saman, en mörg þeirra hafa byrjað fýrir tilstilli áhuga- samra einstaklinga sem vakið hafa athygli á því að kvikmyndir eyðileggjast (t.a.m. er áætlað að 75 tO 80 prósent af þöglum myndum sem gerðar hafa verið í heiminum séu glataðar) og að það þurfi að koma til samstillt átak samfélagsins til þess að bjarga þeim frá glötun. Á sama hátt og Frakkar eiga Henri Langlois, stofnanda franska cinemateksins (en hann geymdi meðal annars kvikmyndaarfinn í bað- karinu heima hjá móður sinni), geta íslendingar teflt fram Erlendi Sveinssyni sem ósérhlífnum upphafsmanni að samfelldri söfnun á kvikmyndaarfi þjóðarinnar. Fleiri komu að þeirri söfnun, einsog Knútur Hallsson í menntamálaráðuneytinu, en það var fyrir vitund og þekkingu þessara manna á eyðingar- mætti tímans sem íslendingar geta nú horft inní fortíðina á slökkviliðsæfingu í Reykjavík frá árinu 1906 eða á svipmyndir úr Reykjavík um 1920. Sem dæmi um þær hættur sem steðja að filmuefni má nefna nitrat filmubasann, en hann er eldfimur og þurfa þær filmur því sérstaka meðhöndlun svo ekki fari jafn illa og þegar Cineteca Nacional í Mexíkó brann til kaldra kola á áttunda áratugnum og stór hluti af Mexíkanskri kvikmyndasögu, filmum og gögn- um, glataðist fýrir fullt og allt. Annað dæmi um hættur er vinegar syndrómid, en það lýsir sér sem efnalosun og veikir mjög filmuefnið, með þeim afleiðingum að endurgera (kópíera) þarf myndina. Og í þriðja lagi má nefna dofnun á litum í handlituðum filmum eða litfilmum, en litasamsetningar á filmubasa (hvort sem það er nitrat, acetat eða polyester) eru mun við- kvæmara efnasamband en svart hvítar filmur. Segja má að Kvikmyndasafn Islands standi einna helst framrni fyrir tveimur síðastnefndu vandamálunum á næstu árum. Þessi þrjú dæmi sýna okkur að leggja þarf í gríðarlegan kostnað við að búa þessum minjum viðunandi aðstöðu til að varna hættum og hrörnun á efninu, og er það hægt með réttum umbúðum sem filmurnar eru geymdar í og hita- og rakastýringu í geymslurýminu. Einnig þarf töluverða fjármuni í að endurgera myndefhi sem látið hefur á sjá vegna mikillar notkunar (rennsli í gegnum sýningavélar), lélegra geymsluaðstæðna í marga áratugi, vegna vatnstjóns osff., osfr.. Kostnaður við söfnun, varðveislu og endur- gerðir er flestum einstaklingum og fýrirtækjum hér á landi (og í flestum Evrópulöndum) of mikill til þess að þeim sé þetta mögulegt. Bretar stóðu frammi fyrir samskonar vandamáli og árið 1948 skrifaði starfsmaður British Film Institute, Ernest Lindgren, að vegna stærðar vandamálsins er lýtur að söfnun og varðveislu þessa menningararfs“yrði þjóðarátak að koma til. Árangur Breta á því að safna kvikmyndum og varðveita þær hefur verið mjög góður, en Kvikmyndasafn Islands á nokkuð í land þar til ásættanlegum árangri er náð. Sem dæmi má nefna að af þeim rúmlega 60 bíómyndum sem gerðar hafa verið frá kvikmynd Reynis Oddsonar, Morðsögu (1977), eru einungis að finna frumefni innan við 10 mynda á safninu og þá í flestum tilvikum aðeins hluta þess. Frum- efni myndanna Hrafninn flýgur, Atómstöðin og Börn náttúrunnar er meðal þess sem varðveitt er á Kvikmyndasafni Islands. Varðveisla og skráning Aðeins hefur verið minnst á nauðsyn þess að búa filmum góðar varðveisluaðstæður og er óhætt að segja að sú aðstaða sem Kvik- myndasafn Islands hefur á undanförnum 5 árum haft, er einsog þær gerast bestar í heiminum. Það hefur hins vegar nokkuð vantað uppá að filmurnar fái að njóta til fullnustu aðstæðnanna og kemur það til af því að safnið hefur fyrst og fremst verið rekið sem móttökusafn fyrir filmuefni og er það í takt við þrönga túlkun á lagaákvæðum frá 1984 um markmið safnsins. Kvikmyndaefni hefur þvi hlaðist upp í geymslum safnsins en ekki reynst ráðrúm til að sinna einsog best verður á kosið hverjum ramma sem safninu hefur áskotnast. Einnig hafa stöðugildi verið í lámarki, en það er ekki fyrr en á síðast ári sem stöðugildunum fjölgaði um helming, frá einum og hálfum starfsmanni til þriggja. Til samanburðar má geta þess að hjá Ríkisútvarpinu starfa um 12 manns við söfnun, varðveislu, skráningu og tækniskoðun á hljóð- og myndefni stofnun- arinnar. Af þessum sökum er hægt að spyrja hvers vegna og í hvaða tilgangi á að safna ef Kvik- myndasafni Islands reynist svo um megn að sinna efninu sem skyldi. Eina svarið við þeirri spurningu er að þannig eru meiri líkur á að efninu sé forðað frá glötun, en um leið verður svarið hálf hjákátlegt ef á það er bent að varðveisla sem slík, er til lítils gagns ef ekki kemur til að hægt sé að skoða efnið. Hægt er að líkja því við söfnun á bókum sem enginn hefur aðgang að til að lesa. Einnig er varðveisla til lítils gagns fyrir efnið sjálft ef stofnuninni er ekki gert kleyft að tækniskoða það þ.e. kanna með nákvæmum hætti hvernig ástandið er á filmunni, en slík skoðun er forsenda fyrir upplýstri ákvörðun um hvort filman þurfi endurgerðar við eða ekki. Varðveisla og skrán- ing haldast þannig í hendur og er frumforsenda fyrir vel reknu kvikmyndasafni. En varðveisla og skráning snúa ekki eingöngu að þjónustu við filmurnar sjálfar. Mikil ásókn er í eldra mynd- efni sem varðveitt er á safhinu og fer sú ásókn vaxandi með aukinni framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis. Þekking á myndefninu sjálfu, hverjir stóðu að gerð þess, hvenær það var gert og hvar það hefur verið sýnt áður, eru oft á 14 Land & synir

x

Land & synir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.