Land & synir - 01.08.2001, Blaðsíða 3

Land & synir - 01.08.2001, Blaðsíða 3
Á skrifstofu Böðvars Bjarka Péturssonar í Kvikmyndaskóla l'slands hangir stórt plakat úr La Strada Fellinis og blæs honum hetjudáðir í brjóst á hverjum degi. Bjarki og gæsirnar hans Böðvar Bjarki Pétursson hefur ásamt samstarfs- fólki sínu nýlokið tökum á kvikmynd sem ætluð er til sýninga í kvikmyndahúsum. Myndin, sem kallast “Gæsapartí”, er tekin upp á stafrænt mynd- band (DV) og er stefnan að frumsýna hana í Háskóla- bíói um miðjan októbermánuð. Myndin er framleidd af 20 geitum í samvinnu við kvikmyndaklúbbinn Filmund sem einnig stóð fyrir sýningum á heim- ildarmynd Þorfmns Guðnasonar, “Lalli Johns” við miklar vinsældir síðastliðinn vetur. Auk þess koma ýmsir styrktaraðilar að myndinni en hún er unnin afar ódýrt. “Gæsapartí” var tekin upp á aðeins níu dögum og fóru upptökur fram að mestu á Mótel Venusi við Borgarnes. Að sögn Böðvars Bjarka kom hugmyndin til hans þegar hann lenti óvænt í gæsapartíi á Hyrnunni í Borgarnesi og upplifði hina villtu Fellini stemmningu sem slíkar veislur bera með sér. Myndin þallar um konu sem ætlar að giftast inní sértrúarsöfnuð. Bróðir hennar, sem ér í sama söfnuði og mannsefnið, ætlar að sjá til þess að veislan sem kolgeggjaðar vinkonur hennar halda henni sé Guði þóknanleg. Sem mótspil við afskiptum safnaðarins sýna vinkonurnar henni rækilega fram á hverskonar lífi hún er að fórna fýrir hnapphelduna. Hennar er valið en þegar maður er lauf í vindi er erfitt að komast leiðar sinnar. Böðvar Bjarki Pétursson framleiðir myndina og Ieikstýrir jafnframt. Hann gerir einnig handritið ásamt Pétri Má Gunnarssyni. Guðmundur Bjartmars- son sér um kvikmyndatöku, Árni Pétur Guðjónsson er aðstoðarleikstjóri, um klippingu sér Gunnþóra Halldórsdóttir, Sigurður Pálmason er framkvæmda- stjóri og Inga Rut Sigurðardóttir sér um leikmynd og búninga. Með aðalhlutverk fara Oddný Guðmundsdóttir og Magnús Jónsson. Leikaraval fór fram í Borgarfirði og koma flestir leikaranna þaðan. Undirbúningur að Eddu 2001 hafinn Undirbúningur Eddunnar, íslensku kvik- mynda- og sjón- varpsverðlaunanna er hafinn. Hátíðin fer fram í nóvember eins og fyrr og líklega í fyrrihluta mánað- arins. Ekkert hefur enn verið ákveðið hvar herlegheitin fara fram en Sjónvarp- ið mun sýna beint frá verðlaunaafhend- ingunni líkt og í fyrra, þegar hvorki meira né minna en 65% þjóðarinnar sátu límd við skjáinn. Heyrst hefur að helstu fatahönnuðir þjóðarinnar hafi þegar fengið margar pantanir vegna hinnar væntanlegu hátíðar og því Ijóst að Eddan hefur unnið sér sess sem einn af hápunktum sam- kvæmislífsins. Tveir nýjir flokkar munu bætast við næstu Eddu, verðlaun fyrir handrit ársins, hvort sem er í kvik- mynd eða sjónvarpi og verðlaun fyrir fréttamann ársins, sem valinn verður af sérstakri nefnd í samráði við fag- aðila. Sem fyrr eru þau verk sem sýnd eru í kvikmyndahúsum frá 1. nóv- ember 2000 til 31. október 2001 gjaldgeng í keppni en hvað varðar sjónvarpsverk gildir tímabilið 1. okt- óber 2000 til 30. september 2001. Innan tíðar verður framleiðendum sendar upplýsingar þar sem þeim er gefinn kostur á að leggja verk sín fram til tilnefningar. Síðustu styrkirnir úr stuttmynda- og heimi Idarmyndadei Id Þann 10. júlí s.l. voru veittir tveir styrldr úr Stutt- og heimildarmyndadeild Kvikmyndasjóðs til neðantalinna verkefna. Ekki verður úthlutað til fleiri nýrra verkefna á vegum þessarar deildar Kvikmyndasjóðs í ár. Einungis verður úthlutað til verkefna sem þegar hafa fengið undirbúnings eða handritsstyrki, enda er þegar búið að ráðstafa mestum hluta þess sem til ráðstöfunar er í ár og stórum hluta af fjármagni næsta árs. Tekið verður við nýjum umsólm- um en þær eldd afgreiddar fyrr en í upphafi næsta árs. a arinu Umsækjandi Stjórnandi Verkefni Tegund Handr. & þr. 01 Framleiðsla 01 Framleiðsla 02 SamsLhópur um betri horg Helen Stefánsdóttir Föstudagur Stuttmynd 700.000 Nýja bíó Anna Þóra Steinþórsdóttir Ema bittir frænku Heimildarmynd 500.000 SAMTALS: 1.200.000 Land &. synir 3

x

Land & synir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.