Land & synir - 01.08.2001, Síða 6
1 Magnoliu (2000) eftir P.T. Anderson er verið að f)alla um
guðdóminn, guð sem frelsar alla úr haldi og ánauð og gefur von. Myndin
lýsir lífi fólks sem sjónvarpsiðnaðurinn í Los Angeles hefur komið á
kaldan klaka. Bent er á utangarðsfólkið sjúka og sorgmædda og að því sé
gleðiboðskapurinn ætlaður, til að byggja upp affur það sem brotnað
hefur. Eitt frægasta atriðið úr myndinni er froskaplága, þegar froskum
rignir af himni, sem er vísun til annarrar plágunar í annarri Mósebók (2.
Mós. 8.1-15).
Allmargir kvikmyndagerðarmenn hafa fengist við dauðasyndirnar sjö
og munu myndir Pólverjans Krystofs Kieslowskis einna þekktastar.
Spennuhrollvekjan Sjö (Se7en, 1995) eftir David Fincher vísar til
dauðasyndanna sjö. Þar telur andlega truflaður en trúarlega sinnaður
maður sig vera sendiboða Guðs til að benda heiminum á hve hann sé
ömurlegur og gerir dauðasyndirnar að þema hvers ódæðis. Svíinn
Richard Hobert (f. 1951) lauk sjö mynda röð sinni um dauðasyndirnar
árið 2000. Sú fyrsta var Gládjekallan (1993) og sú sjöunda Födelsedagen
(2000).
Handritabankinn mikli
Dr. Carl E. Skrade, lútherskur prófessor í trúarbragðafræðum í Ohio,
skrifaði 1970:
“Nútíma kvikmyndagerðarmenn knýja áhorfendur sína ekki aðeins til að
grandskoða ferli eyðileggingar og skyggnast í djúp mannlegs vanda heldur
setja þeir líkafram í kvikmyndaforminu tákn endurnýjunarinnar.” "
Stjörnustríðs-
myndirnar eru einna
skýrustu dæmin um
meðvitaða og
skipulagða boðun
skoðana-
og siðakerfis.
Úr Star Wars: The
Phantom
Menace.
Oft er bent á hefðbundinn kristilegan lista með sautján grundvallar-
þáttum sem nota má sem eldsneyti á persónur í drama. Hvort sem
handritshöfundar nota listann eða ekki þurfa þeir óhjákvæmilega að hafa
nasasjón af og skilning á innihaldi hans til að skerpa persónur.
Neikvæðu þættirnir eru náskyldir dauðasyndunum sjö:
Dramb, ágirnd, hégómi, ofmcelgi, sjálfsblekking, fall fyrir freistingum,
óhlýðni.
Jákvæðu þættirnir sem persónur geta túlkað eru samkvæmt þessari
uppskrift:
Lítillœti, hófsemi, þolinmœði, sakleysi, samúð,
miskunn, réttlæti, hugrekki, skilningur á nauðsyn
ogfrjáls vilji.
Kvikmyndalistin er einn algengasti farvegur samtímans fyrir
vangaveltur um dyggðir og syndir. Hugtakalistar í siðakerfi kristninnar og
annarra trúarbragða og lífsskoðanakerfa eru eins og innkaupalistar yfir
byggingarefni handa höfundum kvikmyndahandrita. Þetta þarf ekki að
koma á óvart. 1 aldanna rás hafa trúarbrögðin þróað aðferðir til að
skyggna og spanna öll helstu birtingarform mannlegrar breytni og
afstöðu til þeirra. Þarna er reynsluinnistæða mannkynsins, handrita-
bankinn mikli.
Persóna sem hefur brotið reglur, eða langar til að gera það, er heppileg
í söguþráð og flækjur bíómyndar. Fólki er off best lýst með því að sýna
hvernig það bregst við úrlausnarefnum, "verknaðurinn er persónan"
(action is character) eins og Alfred Hitchcock sagði. Þetta verður mun
auðveldara ef hetjan er annað hvort gagntekin af réttlætistilfinningu eða
sektarkennd - eða stendur frammi fyrir freistingum til að gera eitthvað
sem er bannað eða utan hefðar, t.d. vegna trúarskoðana eða embættis.
Af þessum sökum hefur oft reynst árangursríkt til að skapa dramatíska
spennu í bíómynd að höfða til trúarbragða sem fela ríkulega í sér
táknræna helgisiði, leyndardóma og skýrar hefðir um sekt, iðrun og
aflausn. Þetta er skýringin á því að kaþólskir prestar og kirkjur þeirra eru
miklu algengari í bandarískum bíómyndum en mótmælendaprestar og
guðshús þeirra, enda þótt mótmælendur séu miklu fjölmennari í
Bandaríkjunum en kaþólikkar.
Dauðasyndirnar sjö í kaþólskri hefð eru: Dramb, ágirnd, óskírlíft, öfund,
óhóf í mat og drykk, reiði og leti.
Gagnstæðar dyggðir eru: Auðmýkt, gjafmildi, siðsemi, góðvild, hófsemi,
gæflyndi og dugnaður.
Guðspjallamaöurinn Lucas
“Georg Lucas (f. 1944) hefur með
Stjörnustríðsmyndunum hrært í trúar- og
tilvistarhugmyndum mannkynsins af meira afli
en aðrir kvikmyndagerðarmenn og kannski
meira en nokkur annar einstaklingur í
samtímanum. Þessi ferna úr smiðju hans (Star
Wars, 1977, The Empire Strikes Back, 1980,
The Return of the Jedi, 1983 og Star Wars:
Phantom Menace, 1999) er í hópi allra
vinsælustu bíómynda sögunnar og hefur því
haft gífurleg áhrif á hugsun og skilning
jarðarbúa.
Stjörnustríðsmyndirnar eru einna skýrustu
dæmin um meðvitaða og skipulagða boðun
skoðana- og siðakerfis. í þeim eru kenningar
svissneska sálkönnuðarins Carls Gustavs Jungs
(1875-1961) meðvitað og markvisst
framreiddar við hæfi samtímans og
tilgangurinn að koma boðskapnum til sem
flestra. Lucas þróaði gangverkið í Stjörnu-
stríðsmyndunum upp úr hugmyndum
Bandaríkjamannsins Josephs Campbell (1904-
1987) og túlkunum hans á goðsagnafræðum Jungs. Lucas hefur verið
stjórnarformaður Campbell-stofnunarinnar um árabil og er nú í
ráðgjafanefnd hennar (Board Of Advisors).
I frægu viðtali Bill Moyers í Time Magazine í apríl 1999 sagði Lucas að
hann hefði ekki hugsað sér að Stjörnustríðsmyndirnar leystu eldri
trúarbrögð af hólmi né heldur vildi hann viðurkenna að Asíuboðskapur
eins og Hindúismi og Búddismi stæði gyðingdómi og kristni framar (en
það var aftur á móti skoðun Campbells). Lucas sagði orðrétt:
“Ég lít ekkifyrst og fremst á Stjörnustríðsmyndirnar sem trúarleg verk. Ég
lít svo á að þær taki til meðferðar öll viðfangsefni sem trúarbrögð snúast um
og reyni að einfalda þau oggera að heldur aðgengilegra kerft - og boða að það
sé einhver stærri leyndardómur þarnafyrir handan. - Ég setti Máttinn (The
Force) í myndina til að vekja ákveðna gerð af andlegheitum í ungu fólki -
fremur trú á Guð en trú í samræmi við eitthvert sérstakt trúarbragðakerfi.”12
í Stjörnustríðsmyndunum er stöðug barátta milli góðs og ills, sagt er
fýrir um ragnarök eða heimsendi sem hinir trúuðu munu lifa af með
hjálp Máttarins (Guðs). Messíasargervingur kemur fram (Luke) og í
hinum nýja heimi mun réttlæti ríkja en refsað verða fyrir misgerðir. Eins
og í Biblíunni er í þeim fall, þrautaganga, endurlausn og endurkoma. 1
burðargrindum sagnanna eru notast við andstæður tækni og mannlegs
eðlis.
Lúkas himinfari (Luke Skywalker, oft ranglega nefndur Logi
geimgengill á íslensku) er ekki bara nafni framleiðandans og leikstjórans
Georgs Lucas. Heiti hans er nokkuð augljós vísun til guðspjallamannsins
6 Land & synir