Land & synir - 01.08.2001, Side 8
Þorfinnur Guðnason segir allt af létta um gerð myndarinnar
"Þorfinnur Guðnason kynn[ir] til sögunnar
mann sem er lifandi goðsögn í undirheimum
Reykjavíkur. Hann á að baki langan og óslitinn
sakaferil sem hófst árið 1969. Síðan þá hefur hann
hlotið 35 refsidóma fyrir ýmiskonar smáafbrot.
Hann hefur setið á bakvið lás og slá í samtals 17
ár. Og nú er hann búin að fá nóg. Hann ætlar að
snúa við blaðinu, og hætta öllu. Hætta að drekka,
dópa og stela."
Upphafsskilti í Lalla Jones (2001)
" [Lalli Johns] er bara svo léttur á því. Maður
eiginlega fattar það ekki beint hvernig hann getur
komið fram."
N.N. vinur Lalla Johns
Eg heimsótti Lalla Johns. Sýndi myndina
fyrir fullu húsi á Litla Hrauni. Og hérna,
það var nú ekki alveg að marka Lalla,
hann var svolítið stoned. En, það voru þarna
einir fjórir menn sem voru með aukahlutverk í
myndinni. Ég náði tali af tveimur þeirra sem
tóku þessari mynd afskaplega vel. Einn þeirra er
dópfíkill í myndinni. Hefur snúið baki við því
núna og er orðinn AA maður. Er svona að reyna
að byggja sig upp og ætlar ekki að fara aftur út í
þjóðfélagið með sama gamla hugarfarið. Hann
sagði einmitt að þetta væri mjög góður spegill
fyrir sjálfan sig. Hann, og reyndar annar,
morðinginn í myndinni sem að strauk af Litla
Hrauni með Lalla, sögðu báðir nokkurn veginn
það sama að þetta væri mjög heiðarleg mynd.
"Númer eitt, tvö og þrjú að hata engan. Nema
þá sjálfan sig. En það er fyrirgefið...!"
Lalli Johns
Þeir voru mjög sáttir við sitt hlutverk í
myndinni, sem kom mér reyndar mjög á óvart.
En þetta eru náttúrulega harðjaxlar sem hafa
farið inn og út um hliðið á Litla Hrauni
sennilega undanfarin tuttugu ár. Það verður
gaman að fylgjast með þvi hvort að Haukur, en
það kemur fram í myndinni hvað hann heitir,
standi við sín stóru orð um að snúa baki við
þessu líferni og hefja nýtt líf. Hann segist vera
orðinn þreyttur á þessu. Þetta eru einu
viðbrögðin sem að ég hef fengið frá öðru
fólki. Jú, reyndar fékk ég einnig á
frumsýningunni viðbrögð en það
8 Land & synir
komu tveir til mín sem
voru með pínulítil
hlutverk og þeir
óskuðu mér
hjartanlega til
hamingju
með mynd-
ina.
É g
nefnilega
bjóst við að
hugsanlega
gæti þetta
haft einhvers-
konar eftirmála.
Að það yrði ein-
hver eftirsjá hjá
fólki. En hingað til hef
ég ekki heyrt í neinum
sem kemur fram
myndinni að hann sjái
eftir því að taka þátt í
henni.
"Hverskonar djöfuls
sígaretta er þetta?"
Lalli Johns
1 minningunni var þetta erfitt
verkefni. Þetta tók tíma. Það voru
nokkrir úr kunningjahóp Lalla sem
vildu alls ekki vera með og þá voru þeir bara
sniðgengnir. Þeir voru ekkert með. Ég spurði
alla sem ég var að mynda hvort þeim væri ljóst
hvað ég væri að gera. En effir að hafa setið að
sumbli með Lalla og haft tökuvélina með mér í
eitt ár eða svo þá var kjarninn kominn af þeim
sem ætluðu að vera með. Þetta fjallar svolítið
um það að ná trausti fólksins. Það þýðir ekkert
að labba inná svona stað eins og
Keisarann með yfirlæti eða hroka
eða með einhverskonar fýrir-
fram ákveðnar hugmyndir
um þetta fólk. Það verður
að setjast niður með
því. Það verður
að sumbla
ð