Land & synir - 15.04.2002, Page 7
SPÁNN/MEXÍKÓ/USA/FRAKKLAND
A propósito de Bunuel / Svo minnst sé á Bunuel
2000 - Stjórn: José Luis López-Linares og Javier López Rioyo
Þetta er nákvæm heimild um feril spænska leikstjórans Luis
Bunuel með mörgum einstæðum viðtölum við vini hans, sam-
starfsfólk í kvikmyndagerð og súrrealismanum. Margt nýtt kom
þar fram, sérstaklega varðandi atvik úr ævi hans sem hann flétt-
aði síðar inn í myndirnar. Þau atriði eru sýnd jafnharðan og
þannig má fá nýja sýn á sköpunargáfu og aðferðir leikstjórans.
Þrátt fyrir flóð bók og heimildarmynda heillast fólk enn af
gátunni Bunuel. Sá arfur sem hann lét eftir sig verður um langa
hríð uppspretta fyrir kvikmyndasagnfræðinga og kenningasmiði.
Fólk þarf að hafa ríkan áhuga á Luis Bunuel og verkum hans til
að njóta myndarinnar til fulls en hún er líka til þess fallin að
kveikja slíkan áhuga.
1:45 klst. 35mm.
FRAKKLAN D
Un Ticket De Bains-Douche / Baðmiði
2000 - Stjórn: Didier Cros
Heimildarmyndir hafa löngum snúist um félagsleg vandamál
og afhjúpað óréttlæti, valdníðslu og misnotkun enda hefur verið
sagt að heimildarmyndin sé bálkur (genre) fórnarlambanna. En
með því að skilgreina persónu sem fórnarlamb er hætta á því að
hún sé einfölduð og smælekuð. Baðmiðinn fjallar um jaðarhóp,
hina allra fátækustu, þá heimilislausu. En viðfangsefni myndar-
innar er ekki hlutskipti fórnarlamba heldur reisn, vilji og sjálfs-
virðing. Hún sýnir tvö opinber baðhús og notkun þeirra. I
algerri fátækt er ein grundvallarforsenda þess að halda sjálfs-
virðingu sinni og sjálfsvitund að vera hreinn, sómasamlegur.
49 mín, Beta SP.
■••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
• •
EISTLAND
Autoportree emaga / Sjálfsmynd með mömmu
2000 - Stjórn: Edvard Oja
Þetta er mynd um frelsun og glötun og hefst á því að maður
fær sér sopa úr bjórflösku. Hann talar til myndavélarinnar og
upplýsir að þessi mynd fjalli um hann, mömmu hans og ákveðið
vandamál. Maðurinn er Edvard Oja, kvikmyndatökumaður og
alkóhólisti. Hann er kominn á það stig að vilja frelsast af fíkn-
inni, ætlar ”að gera við sig sjálfur” eins og hann orðar það og
hefur ákveðið að taka heimildarmynd af ferlinu. Edvard gerir
tilraun og mamma hans og myndavélin horfa á. Þetta er opin og
persónuleg mynd gerð af hreinskilni og auðmýkt.
55 mín, Beta SP.
LAND & SYNIR 7