Land & synir - 15.04.2002, Page 12
MINI” - NORDISK PANORAMA:
FINNLAN
Autobonus / Bílabónus
2001
Amerískur draumur í Finnlandi. Splunkunýr bíll og 150 þús.
evrur í mánaðarlaun. Viljo og Kaisu Mikkonen töpuðu aleigunni
í kreppunni 1991 og núna þykir þeim erfitt að komast aftur á
vinnumarkaðinn. Tilboð frá bandarískri markaðssetningarkeðju
er freistandi: Notið vörur íyrirtækisins, ráðleggið þær vinum
ykkar og þið getið fengið allt sem ykkur hefur dreymt um.
Leikstjóri: Mika Ronkainen (f. 1970). Hann starfar í Oulu í N.-
Finnlandi og hefur leikstýrt nokkrum heimildarmyndum, m.a.
Fyrir flóðið (2000), Feðradagur (1997) og Oulu brennur (1997).
59 mín. Digi-Beta.
• •••••••:••'••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
FINNLAND - STUTTMYN
Onnenpeli / Ferjuekjan
2001
Mynd um einhleypinga og pör. Reetta vill mann. Hún heldur í
24 stunda ferjusiglingu til að finna hinn eina rétta en endar í
klefa með hjónum sem eru að halda upp á brúðkaupsafmæli.
Leikstjóri Aleksi Salmenpera (f. 1973). Hann lærði arkítektúr
áður en hann fór í kvikmyndaleikstjórnarnám í UIAH. Ferju-
ekjan er önnur mynd Aleksi en sú fyrsta var Rajatapaus
(Trespassing) sem hefur hlotið mörg verðlaun á hátíðum.
33 mín. 35mm. Skálduð.
N0REGUR - TVÆR STUTTMYNDIR SAMAN
Eðlileg gleraugu / Natural Glasses
2001
Mynd um mann sem vildi að dagurinn væri fegurri.
Leikstjóri: Jens Lien (f. 1967). Lauk vænlegum trymbilsferli til
að læra leikstjórn í London Int. Film School (1990-93).
Margverðlaunuð útskriftarmynd hans Montana hefur víða verið
sýnd á hátíðum. Jens starfar við gerð auglýsinga og heimildar-
mynda fyrir sjónvarp.
1 mín. 35mm. Skálduð.
Hormoner og andre demoner / Hvatar og aðrir satanar
2000 - Leikstjóri: Sara Johnsen
Eduarda vill verða kona en hvað gerir manneskju að konu?
Kannski er til bóta að hafa brjóst? Hún fer í frí með fjölskyld-
unni og hittir Lúkas. Því miður er hún ekki eina persónan úr
íjölskyldunni sem vill vera aðlaðandi. Erum við í raun og veru
skilgreind af sjónarhóli annarra?
Sérstök viðurkenning dómnefndar.
26 mín. Beta. Skálduð.
12 LAND & SYNIR