Land & synir - 01.02.2003, Qupperneq 11

Land & synir - 01.02.2003, Qupperneq 11
KVIKMYNDASJÓÐUR I N M E M 0 R I A M Hagsmunafélög kvikmyndagerðar- manna ná saman um samningsmark- mið og í desember er undirritað sam- komulag milli ráðuneytisins og stjórnar sjóðsins um fjármögnun sjóðsins til næstu íjögurra ára. Var miðað við að sjóðurinn allt að íjórfaldaðist í áföngum á tímabilinu, að styrkhlutfallið hækkaði uppí 40% að meðaltali og að styrktar yrðu allt að fimm myndir á ári. Jafn- framt var kveðið á um stofnun sér- stakrar deildar innan sjóðsins sem styrkja ætti heimildar- og stuttmyndir. Sú deild hóf göngu sína fyrir tveimur árum og hefur átt nokkurn þátt í þeirri miklu grósku sem nú einkennir heim- ildarmyndageirann. Þessu tímabili er nú lokið. Alls hafa 28 verkefni fengið styrk eða vilyrði á tímabilinu en þó á eftir að klára 12 þeirra sem flest hafa fengið styrk eða vilyrði á seinni hluta þess. Af þessum 12 hafa 3 verk skilað aftur styrk eða vilyrði þar sem ekki tókst að ljúka íjármögnun. Önnur 3 eru ýmist í undirbúningi eða í eftirvinnslu en á þessu stigi er ekki útséð með hvað verður um hin verkefnin 6. Meðaltalið á tímabilinu er því tæplega sex myndir ár hvert en athygli vekur að styrkhlutfallið hefur ekkert hækkað. Rök má færa fyrir því að hið lága styrk- hlutfall eigi nokkurn þátt í því hversu óljóst er um aðra fjármögnun þeirra verkefna sem ólokið er, ekki síst þar sem verið er að styrkja fleiri verkefni en áður sem síðan leita eftir fjármagni á svip- uðum slóðum. Þessi úthlutunarstefna hefur verið harðlega gagnrýnd af fram- leiðendum. Hinsvegar er hægt að benda á ýmislegt sem áunnist hefur á tímabilinu. Ný kynslóð leikstjóra, framleiðenda og handritshöfunda hefur komið fram og er hinn nýji hópur álíka stór og sá sem fyrir var. Ýmsar myndanna sem sýndar voru á þessum árum náðu ágætis árangri, ýmist aðsóknarlega eða í góðu gengi erlendis. Fleiri fletir á erlendu samstarfi hafa opnast og líklegt er að á næstu árum nái ýmsir íslenskir kvik- myndagerðarmenn frekari fótfestu á Börn náttúrunnar veröur að teljast tímamótamynd í ísl- enskri kvikmyndasögu, enda varð hún til þess að koma íslenskri kvikmyndagerð “á kortið” í aiþjóðiegu samhengi og þá sérstaklega hvað varðar feril Friðriks Þórs og fyrirtækis hans, íslensku kvikmyndasamsteypunnar. Hér er Friðrik í Hollywood að heilsa uppá Úskar kunningja sinn, en sá mæti maður bauð Friðriki í heimsókn til sín árið 1992. alþjóðlegum vettvangi. í heildina litið má einnig segja að tök íslenskra kvik- myndagerðarmanna á forminu hafí stórum batnað þó enn skorti nokkuð á markvissari og áræðnari vinnubrögð hjá mörgum þeirra, ekki síst hvað varðar handritsgerð. FORTÍÐIN ER FORMÁLI Á líftíma sínum styrkti sjóðurinn rúmlega sjötíu bíómyndir og líklega annað eins af heimildarmyndum, stutt- myndum og hreyfimyndum. Hvað bíómyndirnar varðar þá gerir þetta um þrjár myndir á ári að með- altali. Hin síðari ár hefur þetta meðaltal hækkað uppí fjórar á ári og enn meir ef miðað er við allra síðustu ár. Styrk- hlutfallið hefur oftast verið í kringum 20-25% ef miðað er við opinberar kostnaðaráætlanir myndanna, en hefur farið niður í aðeins örfáein prósent á köflum. Líklegt er þó að styrkhlutfallið hafi verið mun hærra að jafnaði ef miðað er við raunkostnað. Sú staðreynd að langflest þeirra verka sem hlutu styrk urðu að veruleika gefur vísbendingar í þá átt. Viss ævintýraljómi var ávallt viðloð- andi Kvikmyndasjóð Islands, enda snerist erindi hans um fjármögnun drauma og annarra næringarefna sálar- innar. Þessi ljómi hefur þó gjarnan verið því meiri sem viðkomandi hefur staðið fjær sjóðnum og stundum hefur virst sem ýmsir tryðu því að fjárframlag úr honum jafnaðist á við lottóvinning. Raunin var þó gjarnan svolítið önnur og oft hefur komið upp sú staða hjá styrkhöfum að vita ekki hvort skyldi nú hlæja eða gráta. Um leið stóð stöðugur styr um sjóðinn allan þennan tíma, sem og vinnubrögð þar á bæ. Ásakanir um “áskrift” sumra kvikmyndagerðar- manna að sjóðnum voru uppi með reglulegu millibili, samfara lífseigum grun um óeðlileg afskipti stjórnmála- manna og annarra af úthlutunum. Sumarið 2002 varð stjórnarformaður sjóðsins uppvís að einmitt slíku. Þá var stöðugt var kvartað yfir of lágum styrkjum til einstakra verkefna, sem gerði heildarfjármögnun flókna og erfiða. Og þar sem ekki var gefinn kostur á að halda uppi einhverskonar samskiptum við úthlutunarnefndirnar var oft þungt hljóðið í þeim sem ekki fengu brautargengi hverju sinni. ÁEFTIRVORI KEMUR... Úr ösku Kvikmyndasjóðs rís Kvik- myndamiðstöð íslands, að ýmsu leyti svipuð stofnun þó að hugmyndin sé að standa öðruvísi að mörgum málum. Með gildistöku nýrra kvikmyndalaga er t.d. gert ráð fyrir mjög breyttu fyrir- komulagi styrkveitinga. Jafnframt hillir undir stofnun sérstaks sjóðs fyrir leiknar sjónvarpsmyndir, sem hefur alla möguleika til þess að gerbylta starfs- umhverfi greinarinnar og skjóta rótum undir reglulega starfsemi fýrirtækja innan hennar. Þessar breytingar munu gera mikJar kröfur til bæði mið- stöðvarinnar og kvikmyndagerðar- manna um markviss og fagleg vinnu- brögð. LAND&SYNIR, 11

x

Land & synir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.