Fréttablaðið - 05.04.2018, Qupperneq 10
Ford KA+ er snjall bíll með litríkan persónuleika sem skín í gegnum
nýtt útlit hans með töffaralegu Ford grilli og rennilegum framljósum.
Ford KA+ er svo snjall að í honum getur þú með raddstýringu
hringt og svarað símtölum, hlustað á sms skilaboð eða
spilað uppáhalds tónlistina þína.
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16
23.215 kr.
• Miðað við 80% Lyk
illán
• Kaupverð 1.790.00
0 kr.
• Útborgun 358.000
kr.
• Vextir 7,95%
• Lánstími 84 mánuð
ir
• Árleg hlutfallstala k
ostnaðar 9,64%
Mánaðargreiðsla:
FORD KA+
SNJALLASTUR!
VERÐ FRÁ:
KR.
Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford KA+
1.790.000
ford.is
Ford_KA+_Snjallastur_Ongoing_5x15_20180213_END.indd 1 20/02/2018 10:01
LýðheiLsa „Það eru stórar stofnanir
sem fylgjast með þessu og auglýsing-
ar og markaðssetning á áfengi hefur
áhrif til aukinnar neyslu, það er alveg
klárt. Hún færir ekki bara neysluna
milli tegunda,“ segir Rafn M. Jónsson,
verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna
hjá Embætti landlæknis.
Ólafur Stephensen, framkvæmda-
stjóri Félags atvinnurekenda, sagði
meðal annars í gagnrýni sinni á
áfengisauglýsingabannið á Íslandi
í Fréttablaðinu í gær að rannsóknir
frá öðrum ríkjum sýndu að áfengis-
auglýsingar leiddu ekki til aukinnar
neyslu heldur hefðu fremur áhrif á
hvaða tegunda fólk neyti. Bannið
væri gagnslítið og leiddi til mismun-
unar gagnvart innlendum framleið-
endum. Ólafur benti líka á að félagið
hefði gert drög að siðareglum sem
félagsmenn myndu gangast undir og
miða að því að beina auglýsingum
ekki að ungmennum né fegra neyslu
eða áhrif áfengis.
Rafn segir það hafa sýnt sig í
Evrópu að iðnaðinum sé ekki
treystandi til að hafa eftirlit með
sjálfum sér. Þar sé þróunin í þá átt
að herða reglur um markaðssetn-
ingu áfengis fremur en að slaka á.
Grænland, Finnland og Eistland
hefðu til dæmis sett sérstakar reglur
um markaðssetningu á samfélags-
miðlum og netinu.
„Það myndi skjóta skökku við hjá
okkur að fara í hina áttina og leyfa
enn frekari auglýsingar.“
Rafni hugnast því ekki tillögur
nefndar um bætt rekstrarumhverfi
fjölmiðla sem liggja nú á borði
mennta- og menningarmálaráð-
herra um afnám áfengisauglýsinga-
bannsins. Lilja Alfreðsdóttir sagði í
Fréttablaðinu að lýðheilsusjónar-
mið muni þar ráða för og að góð rök
þyrfti til að breyta núverandi banni.
Ólafur taldi slík rök liggja fyrir, Rafn
er á öndverðum meiði.
„Fagráð áfengis- og vímuvarna
fundar sérstaklega um þetta í næstu
viku þannig að við myndum klárlega
leggjast gegn þessari rýmkun,“ segir
Rafn og bætir við að ef eitthvað er
ætti að herða áfengislöggjöfina og
skerpa á ákveðnum greinum henn-
ar. Meðal annars hinni umdeildu
léttölsholu sem framleiðendur hafa
hingað til nýtt sér til að skauta fram
hjá banninu.
„Skilgreining á léttöli er hvergi
til í áfengislögum, léttöl er ekkert
endilega óáfengur drykkur. Meðan
sú skilgreining er ekki til staðar
þá halda þessar léttölsauglýsingar
ekki. En menn eru meðvitað að fara
í kringum þetta. Þessa grein áfengis-
laganna má alveg uppfæra og herða
til að taka betur á markaðssetningu,
fremur en bara auglýsingum.“
Aðspurður hvort hann eigi þá
ekki von á því að afnámið nái fram
að ganga segir Rafn að miðað við
þá þekkingu sem til staðar sé og
þær breytingar sem séu að verða
í Evrópu yrði það misráðið. Verið
sé að herða áfengislöggjöf í Evrópu
og víða sé horft til Íslands í þeim
efnum.
„Það er horft til okkar með einka-
söluna og auglýsingabannið. Þetta
yrði ljóður á okkar annars ágætu
áfengisstefnu út á við.“
mikael@frettabladid.is
Fagráð á móti afnámi
auglýsingabanns
Verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna hjá Landlækni segir klárt að auglýsingum
og markaðssetningu á áfengi fylgi aukin neysla. Misráðið væri að slaka á áfengis-
löggjöf hér á sama tíma og verið sé að herða hana í mörgum löndum Evrópu.
Farið verður yfir tillögu um afnám banns við áfengisauglýsingum í fjölmiðlum
á næstunni. Sitt sýnist hverjum. Fréttablaðið/Ernir
Aðalfundur Félags íslenskra rafvirkja verður haldinn
fimmtudaginn 12. apríl 2018, kl. 18.00,
á Stórhöfða 27, sal Rafiðnaðarskólans.
(gengið inn Grafarvogsmegin)
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning kjörstjórnar FÍR skv. 38. grein laga félagsins.
3. Kosning fulltrúa á ársfund Birtu lífeyrissjóðs.
4. Lagabreytingar.
5. Atkvæðagreiðsla um tvö sæti í trúnaðarráði.
6. #Metoo kynnt frá lagalegri hlið af
Ólafi Eyjólfssyni lögfræðingi RSÍ.
Á aðalfundinum verða tveir menn kosnir til eins árs
í trúnaðarráð. Þeir sem hyggjast bjóða sig fram þurfa
með framboði sínu að leggja fram lista með 18 með-
mælendum á fundinum.
Boðið verður uppá hamborgara og fermingafranskar
frá kl 17:45 á fundinum
Kveðja, stjórnin
AÐALFUNDUR 2018
Fagráð áfengis- og
vímuvarna fundar
sérstaklega um þetta í næstu
viku þannig að við myndum
klárlega leggjast gegn þessari
rýmkun.
Rafn M. Jónsson, verkefnisstjóri
áfengis- og vímuvarna
sKaTTaR Úrskurðarnefnd umhverfis-
og auðlindamála (ÚUA) hefur fellt
úr gildi álagningu skipulagsgjalds á
ker- og steypuskála Rio Tinto Alkan
(RTA) í Straumsvík. Félagið þarf því
ekki að greiða rúmlega 49 milljónir
vegna þeirra.
Árið 2007 gekk í gildi breyting á
samkomulagi RTA við ríkið þar sem
fyrirtækið gekkst undir almennar
skattareglur hérlendis. Fasteignamat
var unnið fyrir verksmiðju fyrirtæk-
isins en brunabótamat var ekki full-
gert samtímis. Olli það vandræðum
vegna ýmissa gjalda sem leggjast á
tryggingar byggðar á brunabótamati.
Var því lagst í að gera brunabótamat
en það hljómaði upp á 24,6 milljarða
króna. Að því loknu var lagt á skipu-
lagsgjald. RTA var rukkað um rúmar
49 milljónir.
Félagið kærði álagninguna til
nefndarinnar en í niðurstöðu hennar
segir að byggingarnar hafi verið reist-
ar á árunum 1967, 1970 og 1997. Því
gætu þær ekki talist nýbyggingar árið
2016 þegar gjaldið var lagt á. Var því
álagning Tollstjóra felld úr gildi. – jóe
Fimmtíu ára skáli ekki nýbygging
5 . a p R í L 2 0 1 8 F i M M T U D a G U R10 F R é T T i R ∙ F R é T T a B L a ð i ð
0
5
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:4
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
5
B
-D
6
F
C
1
F
5
B
-D
5
C
0
1
F
5
B
-D
4
8
4
1
F
5
B
-D
3
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
4
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K