Fréttablaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 4
JEEP GRAND CHEROKEE TRAILHAWK TORFÆRUÚTGÁFAN AF ÞESSUM FRÁBÆRA JEPPA ® Quadra-DriveTM fjórhjóladrif, driflæsing að aftan, loftpúðafjöðrun, 18” álfelgur, grófari dekk, 8,4” snertiskjár, lykillaust aðgengi og ræsing, rafdrifin sport sæti frammi í með hita og kælingu, leður/rúskinnsáklæði, rafdrifinn afturhleri, Bi-Xenon og LED framljós, bakkmyndavél, hiti í stýrishjóli, íslenskt leiðsögukerfi, hlífðarplötur undir vél, kössum og eldsneytistönkum o.fl. DÍSEL 3.0L V6 250 HÖ. 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING HÁTT OG LÁGT DRIF TRAILHAWK VERÐ FRÁ: 9.990.000 KR. Grand Cherokee Laredo verð frá: 8.690.000 kr. Umboðsaðili Jeep - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær - s. 534 4433 www.jeep.is - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16 Bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r VERÐLÆKKUN Samfélag Reykjavíkurborg hefur eindregið hvatt til þess að reglugerð um daggæslu í heimahúsum verði breytt þannig að tveir dagforeldrar að lágmarki starfi saman. Samkvæmt núverandi reglugerð, sem er gefin út af félagsmálaráðherra, geta dagfor­ eldrar starfað einstæðir. „Þetta er byggt á reglugerð og við höfum eindregið hvatt til þess að þeirri reglugerð verði breytt, þann­ ig að það séu að lágmarki tveir sem starfi saman. Sú reglugerð er í endur­ skoðun og við tökum þátt í þeirri vinnu. Það hafa verið okkar skilaboð í mörg ár að við teljum mjög mikil­ vægt að þessu sé breytt,“ segir Helgi Grímsson, framkvæmdastjóri skóla­ og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á þriðjudaginn dagmóður í níu mán­ aða skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi gagnvart 20 mánaða gamalli stúlku sem hún gætti heima hjá sér í Mosfellsbæ. Atvikið varð 17. október 2016. Konan hafði átta ára reynslu af starfi dagmóður. Umræddan dag gætti hún fjögurra ungra barna á heimili sínu. Enginn annar var á heimilinu á þessum tíma. Dagmóðirin tilkynnti til lögreglu að barnið hefði fallið úr barnastól niður á gólf og var barnið flutt með sjúkrabíl á Bráðamóttöku barna við Hringbraut. Kvaðst dagmóðirin ekki hafa séð þegar barnið datt. Réttar­ meinafræðingur, sem lögreglan leit­ aði til við rannsókn málsins, fullyrti að ekki væri hægt að útskýra áverka á barninu, aðallega marbletti, með þeim hætti að barnið hefði fallið. Undir þá skoðun tók dómkvaddur réttarmeinafræðingur og læknirinn sem tók á móti barninu á spítala eftir atvikið. Fjölskipaður Héraðsdómur Reykjavíkur segir í dómsniður­ stöðu að þeir sérfræðingar sem hafi komið fyrir dóminn telji allir að áverkar á barninu samræmist því að hún hafi verið beitt einhvers konar ofbeldi, en áverkar á andliti gætu til að mynda verið eftir löðrunga eða högg með sveigjanlegum hlut. Þá séu áverkar á hálsi eftir sveigjan­ legan hlut, svo sem ól, belti eða tog eftir fatnað sem hertur hafi verið að hálsinum. Dómurinn telur að hafið sé yfir skynsamlegan vafa að ákærða hafi veitt brotaþola þá áverka sem lýst er í ákærunni. Fréttablaðið spurði Lindu Uden­ gard, framkvæmdastjóra fræðslu og frístundasviðs Mosfellsbæjar, hvort til greina kæmi af hálfu bæjarins að skylda dagforeldra til þess að vera að minnsta kosti tveir saman. Í svari frá Mosfellsbæ segir að bærinn fylgi gildandi reglugerð um daggæslu í heimahúsum. Á vegum velferðarráðuneytisins er starfandi nefnd sem hefur það hlut­ verk að endurskoða reglugerðina. Fréttablaðið óskaði svara frá félags­ málaráðherra um vinnu við reglu­ gerðarbreytinguna. Þau svör hafa ekki borist. Í svörum frá Mosfellsbæ segir að fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga í þessari nefnd sé starfs­ maður Mosfellsbæjar. jonhakon@frettabladid.is Skylt verði að dagforeldrar starfi að lágmarki tveir saman Tuttugu mánaða gömlu stúlka var flutt með sjúkrabíl eftir að hafa hlotið áverka á meðan hún var í umsjá dagmóður í októbermánuði 2016. Dagmóðirin hefur verið fundin sek um að hafa veitt barninu áverkana. FréTTablaðið/Heiða Stærsta sveitarfélag landsins hefur hvatt til þess að reglugerð um dagforeldra verði breytt. Dagforeldrar verði þá minnst tveir saman. Dagmóðir var dæmd í níu mánaða skilorðs- bundið fangelsi vegna ofbeldis gegn barni. Þetta er byggt á reglugerð og við höfum eindregið hvatt til þess að þeirri reglugerð verði breytt, Helgi Grímsson, framkvæmda- stjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi. FréTTablaðið/anTon brinK StjórnSýSla „Vegna fréttar í Frétta­ blaðinu þar sem segir að ég hafi ekki svarað skilaboðum húsfélagsins við Þorrasali 9­11 í kjölfar úrskurðar úrskurðanefndar umhverfis­ og auðlindanefndar skal tekið fram að mér hafa hvorki borist skilaboð né beiðni um fund frá húsfélaginu,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjar­ stjóri í Kópavogi. Í Fréttablaðinu í gær var haft eftir Valgeiri Jónassyni, formanni húsfélagsins í Þorrasölum 9­11, að Kópavogsbær hunsaði íbúana í fjöl­ býlishúsinu eftir að húsfélagið vann kærumál gegn bænum. Það snertir aðkomu að bílageymslu nágranna­ blokkar sem Valgeir segir húsfélagið hafa árangurslaust varað við fyrir fram að stæðist ekki lög. „Bæjarstjórinn svarar ekki skila­ boðum, hann vill ekkert við okkur tala. Það er bara af því að við erum litlir karlar,“ var haft eftir Valgeiri í blaðinu í gær. „Ég funda með þeim sem eftir því óska og hafa bókað fundi á miðvikudögum en þá er ég með viðtalstíma,“ segir Ármann bæjarstjóri hins vegar. „ En eins og fram kom í fréttinni er málið í ferli hjá stjórnsýslu bæjarins. Þetta er gríðarlega flókið mál, það er verið að vinna að lausn þess og ég vona sannarlega að niðurstaða liggi fyrir sem fyrst,“ segir bæjarstjórinn. Kópavogsbær freistaði þess að fá úrskurðarnefndina til að taka málið upp að nýju eftir að nefndin úrskurð­ aði í september að byggingar leyfi sem bærinn gaf út vegna innkeyrsl­ unnar umdeildu væri ógilt. Nefndin hafnaði því í desember. Að sögn Ármanns hefur lögfræð­ ingur hjá Kópavogsbæ verið í sam­ skiptum við lögmann húsfélagsins sem nýverið hafi fengið tölvupóst frá Kópavogsbæ þar sem gerð var grein fyrir stöðu málsins. – gar Funda með þeim sem eftir því óska segir Ármann bæjarstjóri SVÍÞjóÐ Launahækkanir kennara og lögreglumanna eru mikilvægari en nýjar skattalækkanir. Þetta segir Jan Björklund, leiðtogi Frjálslynda flokksins í Svíþjóð og fyrrverandi menntamálaráðherra. Í viðtali við Dagens Industri segir Björklund að hæfustu sérgreina­ kennararnir ættu að vera með um 70 til 80 þúsund sænskra króna í mánaðarlaun eða um 847 til 968 þúsund króna. Meirihluti kennara ætti, að mati Björklunds, að vera með um 50 þúsund sænskar krónur í mánaðar­ laun eða um 605 þúsund íslenskra króna. Björklund segir að hjá þeim þjóðum þar sem kennarastarfið njóti meiri virðingar séu launin á þessu bili. Fáránlegt sé að framhaldsskóla­ kennari sé aðeins með 30 til 35 þús­ und sænskra króna í mánaðarlaun eftir fimm ára nám eða um 363 til 423 þúsund íslenskar krónur. – ibs Kennarar fái tæpa milljón UmhVerfiSmál Plastruslið  sem hvirfillinn í Norður­Kyrrahafi hefur sogað til sín hrannast upp og stækkar ruslflekinn þar enn á mikl­ um hraða. Þetta leiðir rannsókn sem Sjávarhreinsunarstofnunin í Delft, Hollandi, vann í samstarfi við alþjóðlegan hóp rannsakenda. Rannsakendur telja að nú hafi um 80.000 tonn af plasti safnast saman á flekanum sem er staðsettur á milli Kaliforníu og Hawaii. Sú tala er um sextán sinnum hærri en áður var talið, að sögn rannsakenda. Þótt hvirfillinn í Norður­Kyrra­ hafi sé án nokkurs vafa sá þekktasti er hann ekki sá eini sem sogar til sín rusl. Slíkir hvirflar eru einnig í Suður­Kyrrahafi, Norður­ og Suður­ Atlantshafi og í Indlandshafi. – þea Ruslflekinn á Kyrrahafi stækkar ört 2 3 . m a r S 2 0 1 8 f Ö S t U D a g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð 2 3 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 5 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 4 8 -9 6 2 0 1 F 4 8 -9 4 E 4 1 F 4 8 -9 3 A 8 1 F 4 8 -9 2 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 2 2 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.