Fréttablaðið - 23.03.2018, Qupperneq 38
w
Sumir vilja gift-
ingarhringa með
rúnum en þá eru nöfn
brúðhjónanna slegin í
hringana með rúnaletri.
Eva Súsanna Muñoz er á fjórða ári á gull- og silfursmíðabraut. MYND/STEFÁN
Eva Súsanna Muñoz er á fjórða ári á gull- og silfursmíðabraut í Handverksskólanum og
útskrifast frá Tækniskólanum sem
gullsmiður í vor ef allt gengur eftir.
Fyrstu tvö árin í náminu læra gull-
smíðanemar grunninn í skólanum
svo þurfa þeir að leita sér að náms-
samningi í 18 mánuði hjá meistara.
Eva Súsanna er á samningi hjá
Önnu Maríu Sveinbjörnsdóttur
gullsmíðameistara sem rekur verk-
stæði og verslunina Anna María
Design á Skólavörðustíg 3.
Eva Súsanna segist hafa lært heil-
mikið í skólanum þegar kemur að
smíði hefðbundinna trúlofunar-
og giftingarhringa. Sú þekking
hafi svo nýst sér vel á verkstæðinu
hjá Önnu Maríu. „Hjá henni hef
ég fengið góða faglega leiðsögn
og mikla reynslu. Hjá Anna María
Design er allt handsmíðað og
bjóðum við upp á að hanna skart-
gripi í samvinnu við viðskipta-
vinina.“
Spurð að því hvað mest sé beðið
um segir Eva Súsanna að ekki
sé hægt að nefna eitthvað eitt
ákveðið því það séu engar reglur
og allt leyfilegt. „Um daginn kom
viðskiptavinur sem vildi grænan
stóran demant og hvíta demanta
til hliðar. Einnig eru óskir um
aðra eðalsteina til dæmis safíra
eða rúbína. Sumir vilja giftingar-
hringa með rúnum en þá eru nöfn
brúðhjónanna slegin í hringana
með rúnaletri. Hefðbundnu
giftingarhringarnir eru þó alltaf
vinsælastir.“ Eva Súsanna smíðar
ekki eingöngu hringa því hjá Anna
María Design er einnig sérsmíðað
brúðarskart. „Það geta verið háls-
men, eyrnalokkar eða armbönd
og jafnvel hárskraut,“ segir hún og
bætir við að herrarnir finni einnig
morgungjafirnar í versluninni.“
Handsmíðaðir
skartgripir
Gerða Kristín
tekur sveins-
prófið af gull- og
silfursmíða-
braut í vor.
MYND/STEFÁN
Gerða Kristín Lárusdóttir tekur sveinsprófið af gull- og silfursmíðabraut í vor
en þangað til smíðar hún skart-
gripi alla daga hjá Metal Design
við Skólavörðustíg og hefur gert
undanfarna fjórtán mánuði. Gerða
segir að öll nauðsynlegu undir-
stöðuatriðin hafi hún lært í skól-
anum en sérhæfðari reynsla fáist
á verkstæðinu. „Maður lærir fyrst
og fremst að vinna hratt og vel. Það
er verið að smíða allan daginn og
þannig nær maður hraðanum. Þá
lærist svo margt annað, eins og það
að tala við viðskiptavini og finna
út hvað þeir vilja. Einnig hef ég
verið að sérsmíða en það er ekki
óalgengt að viðskiptavinir mæti í
búðina með teikningu og þá verð
ég að geta smíðað eftir henni.“
Spurð að því hvað sé vin-
sælast hjá brúðhjónum um þessar
mundir segir Gerða Kristín að
einfaldleikinn sé í fyrirrúmi. „Vin-
sælustu hringarnir eru úr fjórtán
karata gulli og hvítagulli, dýrari
málmum, ekki silfri, og mér finnst
Íslendingar velja einfalda hönnun.
Þetta er ekki eins og í Bandaríkjun-
Íslendingar einfaldir í vali
Gígja Haraldsdóttir útskrifaðist nýverið af hársnyrtibraut og starfar á Eplinu
hárstofu í Borgartúni. MYND/EYÞÓR
Gígja Haraldsdóttir útskrifað-ist nýverið af hársnyrtibraut og starfar á Eplinu hárstofu
í Borgartúni. Hún segist telja að
í hártískunni verði einkennandi
fyrir brúðkaup í sumar að brúðir
líti þannig út að undirbúningur
hafi verið áreynslulaus. „Hárið
lítur þá þannig út að svo virðist
sem hún gæti næstum hafa greitt
sér sjálf, þ.e. gestir eiga ekki að
taka eftir stífum uppgreiðslum og
fleiri slíkum atriðum,“ segir Gígja
og bætir við að greiðslurnar í ár
gætu talist látlausari en oft áður.
„Það verða kannski lausir lokkar
við andlitið og meira um greiðslur
sem eru úfnar frekar en alveg stífar
og miklar. Þetta verður látlausara,
hnútar í hnakkanum, með fléttu-
ívafi eða snúningum. En auðvitað
er þetta alltaf persónulegt.“
Hún segir að mikið sé um
brúðargreiðslur á Eplinu hárstofu
en mikilvægt sé að vera tímanlega
í að hafa samband við hársnyrtinn
og taka frá daginn.
Spurð út brúðgumana og hvern-
ig þeir hafi sig til segist Gígja alla
vega ekki þekkja til þess að þeir
fari á brúðkaupsdaginn í greiðslu.
„Það er ofboðslega algengt að
þeir komi í klippingu svona viku
fyrir brúðkaupið þannig að hárið
sé aðeins búið að jafna sig. Þeir
virðast svo sjá sjálfir um greiðsluna
og treysta á að klippingin sé nægi-
lega góð.“
Fræðast má frekar um Hand-
verksskólann á http://tskoli.is/
skoli/handverksskolinn.
Látlausari greiðslur í sumar
Birna Sigurjóns-
dóttir er nemi í
klæðskeranámi.
MYND/STEFÁN
Birna Sigurjónsdóttir er á lokaönn sinni í klæðskurði en hún er jafnframt mennt-
aður fatahönnuður. Á undan-
förnum áratug hefur hún alloft
tekið að sér að hanna og sauma
brúðarkjóla en að klæðskera-
náminu loknu sér Birna fyrir sér
að mögulega verði meira um að
hún saumi föt á brúðgumana. „Ég
er einmitt að ljúka við að sauma
smóking og næst tekur við að
sauma kjólföt en það eru reyndar
skólaverkefni,“ segir Birna og
Skapandi nám í
Handverksskólanum að baki
Þær Birna Sigurjónsdóttir, Eva Súsanna Muñoz, Gerða Kristín Lárusdóttir og Gígja Haraldsdóttir eru
að ljúka eða hafa nýlega lokið námi í Handverksskólanum og eiga það sameiginlegt að hafa allar
komið að undirbúningi brúðkaupa með einum eða öðrum hætti.
Saumaði flöskugrænan og svartan brúðarkjól
um þar sem allt snýst um einhverja
risademanta. Íslendingar eru ein-
faldir í vali og kjósa einfalda bauga
og þá jafnvel með áferð, burstaðri
eða háglans. Og oft er konan með
lítinn og smekklegan demant.“
kveðst sannarlega tilbúin til að
sauma á brúðhjón fyrir sumarið.
„Já, þetta er svo skemmtilegt. Svo
er ég að klára námið þannig að ég
hef bætt við mig þekkingu og ætti
að vera orðin nokkuð klár.“
Sem áður segir hefur Birna tekið
að sér að sauma brúðarkjóla á
undanförnum árum. Hún segist
ekki endilega merkja að tískan
hafi breyst mikið þegar kemur að
kjólunum. „Þetta fer algjörlega
eftir því hver er að gifta sig og við
hvaða aðstæður.“ Hún minnist
þess til dæmis fyrir nokkrum árum
þegar hún var beðin um að sauma
afskaplega óvenjulegan kjól. „Ég
saumaði þá flöskugrænan og
svartan brúðarkjól úr satínefni og
blúndu. Hann var mjög óvana-
legur en hrikalega flottur. Aðrir
hafa flestir verið hvítir eða alla
vega mjög ljósir.“
Hún segir að tilvonandi brúðir
geti fylgst með kjólasaumnum frá
upphafi til enda og að hún vinni
kjólana gjarnan í náinni samvinnu
við þær.
14 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . M A R S 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RBRúÐKAup
2
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
4
8
-B
3
C
0
1
F
4
8
-B
2
8
4
1
F
4
8
-B
1
4
8
1
F
4
8
-B
0
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K