Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.03.2018, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 23.03.2018, Qupperneq 42
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15 Kíkið á myndir og verð á Facebook Stretch og háar í mittið Gallabuxur á 12.900 kr. - 4 litir: brúngrátt, svart, hvítt, sandgrátt - stærð 34 - 48 - 3 síddir Um þrjátíu ár eru frá því að Margrét Eir kom fyrst fram á sjónarsviðið og söng sig inni í hjörtu landsmanna. Hún segir þessi ár hafa verið spenn­ andi ferðalag. „Málið er að það er enginn síðasti söludagur á tón­ listarfólki. Ef maður er með opinn huga og til í að prófa eitthvað nýtt í staðinn fyrir að festa sig í gömlu fari er hægt að vera langlífur í þessum bransa. Því fylgir þó ekki alltaf frægð eða peningar. Ég reyni að ögra sjálfri mér hvað varðar verkefnaval en viðurkenni að ég þarf að vera duglegri við að syngja frumsamda tónlist. Þar hefur enginn lagt línurnar fyrir mig og ég þarf að finna sjálf hvað mig langar að segja,“ segir hún. Ný plata væntanleg á árinu Margrét Eir er með nýja plötu í smíðum með hljómsveit sinni, Thin Jim, og á henni verða aðeins frumsamin lög. „Við erum að leggja lokahönd á plötuna. Jökull Jörgensen, maðurinn minn, er með mér í bandinu, Birkir Rafn Gíslason spilar á gítar og Magnús Magnússon er á trommum. Svo á ég von á góðum gesti sem ætlar að syngja dúett með mér. Það verður eitthvað „legendary“ og ég reikna með að við sendum fljótlega frá okkur það lag. Platan kemur svo út í kjölfarið á þessu ári.“ Óhætt er að segja að undanfarnir mánuðir hafi verið annasamir og Margrét hefur sungið á mörgum tónleikum. „Ég fór nánast beint af jólatónleikum yfir í alls konar önnur verkefni. Ég sit í stjórn Íslensku tónlistarverðlaunanna, ásamt félaga mínum Jóhanni Ágústi, og við kláruðum það verk­ efni fyrir nokkrum dögum. Inn á milli söng ég í sýningunni Phant­ om of the Opera, á George Michael heiðurstónleikunum og á tríótón­ leikum með Guðrúnu Gunnars og Regínu Ósk. Þar fyrir utan kenni ég söng við FÍH og nemendurnir eru frá sextán ára og upp í fjörutíu og fimm,“ segir Margrét Eir. Vinna, blóð, sviti og tár „Meðfram þessu öllu var ég tón­ listarstjóri á nemendasýningu Verslunarskóla Íslands. Það var svakalega skemmtilegt verkefni. Þau settu upp söngleikinn The Producers, eða Framleiðendurnir, en hann hefur ekki áður verið settur upp hérlendis. Ég er bókstaf­ lega að springa úr stolti af þeim. Þetta er alvöru söngleikur og mjög erfiður raddlega séð en þau stóðu sig öll með sóma og lögðu mikinn metnað í sýninguna,“ greinir Margrét Eir frá en hún hefur áður unnið með framhaldsskóla­ nemum. „Ég hef bæði leikstýrt og verið tónlistarstjóri í sýningum nokkurra skóla. Ég er frekar „old school“ því ég er með mikinn aga. Ef það á að setja upp metnaðarfullt verkefni kostar það vinnu, blóð, svita og tár en krakkarnir upp­ skera líka árangur erfiðisins þegar kemur að því að sýna fyrir framan áhorfendur,“ segir hún. Sönghefðin og krafturinn ótrúlegur Annað kvöld ætlar Margrét að syngja með Karlakórnum Hreimi sem á rætur sínar að rekja til Þing­ eyjarsýslu. Hann var stofnaður árið 1975 og er skipaður 60 söngelskum mönnum sem flestir koma úr Þing­ eyjarsýslum. Steinþór Þráinsson er stjórnandi kórsins og Steinunn Halldórsdóttir er undirleikari. „Karlakórinn Hreimur er kominn í útrás til höfuðborgarinnar. Við Gissur Páll Gissurarson sungum með kórnum á Húsavík fyrir um ári síðan en núna ætlum við að syngja saman í Eldborg í Hörpu. Sönghefðin og krafturinn í kórnum er ótrúlegur. Þessir strákar syngja af því að þeir verða að syngja og gera það frá öllu sínu hjarta. Orkan og ánægjan er ótrúlega mikil og þetta er smá keppnis,“ segir Mar­ grét Eir. Hún stefnir svo að því að halda áfram að syngja með Guðrúnu Gunnars og Regínu Ósk og segir það samstarf ganga mjög vel og þær eigi vel saman sem söngkonur. En hefur hún tíma fyrir þetta allt saman? „Ég hlakka mjög til að fá páskafrí og ætla að slaka á og safna orku. Vissulega er gaman að vinna undir pressu en síðustu vikur hafa verið heldur annasamar.“ Málið er að það er enginn síðasti söludagur á tónlistar- fólki. Ef maður er með opinn huga og til í að prófa eitthvað nýtt í staðinn fyrir að festa sig í gömlu fari er hægt að vera langlífur í þessum bransa. Því fylgir þó ekki alltaf frægð eða peningar. Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is Leggur línurnar Margrét Eir Hönnudóttir ætlar að syngja með karlakórn- um Hreimi í Eldborg í Hörpu annað kvöld. Hún er líka með plötu með eigin lögum í smíðum sem kemur út á árinu. Margrét Eir er með nýja plötu með frumsömdu efni í smíðum með hljómsveit sinni, Thin Jim. MyNd/Eyþór Stendur undir nafni 6 KyNNINGArBLAÐ FóLK 2 3 . M A r S 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R 2 3 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 4 8 -C 2 9 0 1 F 4 8 -C 1 5 4 1 F 4 8 -C 0 1 8 1 F 4 8 -B E D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 2 2 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.