Fréttablaðið - 23.03.2018, Síða 46

Fréttablaðið - 23.03.2018, Síða 46
Á þessum degi fyrir átta árum voru sam­ þykkt lög á Alþingi sem bönnuðu að bjóða upp á nektarsýningar eða gera út á nekt starfsmanna á skemmtistöðum eftir 1. júlí sama ár. Siv Friðleifsdóttir, þáverandi þingmaður Framsóknar, var fyrsti flutningsmaður frumvarpsins en það var samþykkt með 31 atkvæði en tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, þau Árni Johnsen og Ragnheiður Elín Árnadóttir, sátu hjá. Enginn greiddi atkvæði gegn frumvarpinu. Kolbrún Halldórsdóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, hafði upphaf­ lega flutt málið en Siv tekið við keflinu þegar Kolbrún hætti á þingi. Ásgeir Davíðsson, sem átti og rak staðinn Goldfinger, sagðist í viðtali við Frétta­ blaðið í kjölfar lagasetningarinnar ætla að skoða hvort grundvöllur væri fyrir skaðabótamál gegn ríkinu. Hann taldi lögin minna á reglur í ríkjum þar sem helst ekkert megi sjást í kvenfólk. Í fréttinni kom einnig fram að alls­ herjarnefnd þingsins teldi ekki að lögin byðu upp á skaðabótaskyldu. Á tímabili voru starfræktir átta nektarstaðir á höfuðborgarsvæðinu, þrír á Akureyri og einn í Keflavík. Þ etta g e r ð i st 2 3 . m a r s 2 0 1 0 Strippdans bannaður á Íslandi Dansari í fullum skrúða leikur listir sínar við spegilinn. NorDicPhotos/Getty 1568 Vopnahlé gert í frönsku trúarbragðastyrjöldunum. Karl 9. Frakkakonungur og Katrín af Medici veittu húgen­ ottum umtalsverð réttindi. 1903 Wright­bræður sækja um einkaleyfi á hönnun sinni á flugvél. 1919 Benito Mussolini stofnar Fasistaflokkinn í Mílanó. 1933 Adolf Hitler verður kanslari Þýskalands. 1937 Sundhöllin í Reykjavík vígð. 1943 Keflavíkurflugvöllur tekinn í notkun af Bandaríkjaher. 1960 Söngsveitin Fílharmónía kemur fram opinberlega í fyrsta sinn í uppfærslu Þjóðleikhússins á Carmina Burana eftir Carl Orff. 1970 Þrír þjóðkunnir leikarar halda upp á 25 ára leikafmæli: Baldvin Halldórsson, Gunnar Eyjólfsson og Róbert Arnfinnsson. 1989 Stanley Pons og Martin Fleischmann lýsa því yfir að þeim hafi tekist að framkalla kaldan kjarnasamruna í rann­ sóknarstofu við Háskólann í Utah í Bandaríkjunum. 1997 Bresku saka­ málaþættirnir Barnaby ræður gátuna hefja göngu sína á ITV. 1998 Kjalarnes verður hluti af Reykjavík. 1998 Boris Jeltsín rekur ríkisstjórn Rúss­ lands og skipar Sergej Kíríjenko forsætis­ ráðherra. 2007 Nýja leikjatölvan frá Sony, PlayStation 3, kemur út í Evrópu, Ástralíu og Singapúr. Merkisatburðir Nýsköpun er lykilatriði í okkar starfsemi og því skiptir máli fyrir starfs-fólk okkar að hafa vett-vang til þess að koma eigin hugmyndum og nýjum lausnum á framfæri,“ segir Hákon sigurhansson, framkvæmdastjóri hugbúnaðarlausna Origo, en fyrirtækið hélt svokallaða Ofurhetjudaga innan fyrirtækisins. með- gönguappið, sem bar sigur úr býtum, inniheldur bæði fræðsluefni um með- göngu auk þess sem gert er ráð fyrir að það geymi heilbrigðisupplýsingar úr meðgönguvernd móðurinnar. Hákon segir að um Ofurhetjudagar séu frábær vettvangur til þess að halda nýsköpunarandanum á lofti og hugsa út fyrir kassann enda ekki alltaf tækifæri til þess í dagsins önn. Þannig hafa margar lausnir, sem hafa fæðst á  þessum dögum í gegnum tíðina, hlotið framhaldslíf og jafnvel orðið að fullbúinni vöru. Ásta rún Ásgeirsdóttir, sem var hluti af sex manna teymi sem hannaði með- gönguappið, segir að þar sem mæðra- skráin sé ekki lengur á pappír og sé orðin rafræn í sjúkraskrárkerfinu sögu fannst þeim vanta vettvang fyrir verðandi for- eldra til að hafa yfirsýn yfir sína með- göngu og nálgast fræðsluefni sem henni tengist frá fagaðilum. „Bæði fræðsluefnið og heilbrigðis- gögn yrðu sótt af HeilsuVeru.is þar sem gögn móður verða geymd. appið yrði því einfaldari aðgangur að gögnunum í stað þess að þurfa að skrá sig inn á HeilsuVeru.is, svipað og heimabanka- öppin virka. Fræðsluefnið væri meðal annars næring á meðgöngu, fóstur- þroski í hverri viku ásamt breytingum hjá móður á sama tíma, fræðsluefni fyrir maka um líðan þeirra beggja á þessum tímamótum, fræðsluefni um andlega líðan og svo framvegis.“ Hugmyndin er sú að hægt sé að hafa samband við ljósmóður í gegnum appið, annaðhvort með skilaboðum eða mynd- símtali. Verðandi móðirin gæti þar að auki bókað tíma hjá ljósmóður á fyrir- fram ákveðnum tíma og séð yfirlit yfir tímabókanir sínar, hvort sem það er í mæðravernd eða sónar. einnig er það hugmynd að hægt sé að bjóða aðstand- anda með í appið, til dæmis maka eða einhverjum nákomnum sem konan velur. „mögulega er þetta app því einstakt á heimsvísu þar sem verðandi foreldrum býðst að nálgast fræðslu á meðgöngu og heilbrigðisgögn sín sem henni eru tengd.“ teymið fékk 100 tíma í verðlaun til að hefja greiningu á verkefninu og segir Ásta að mikill áhugi sé fyrir þessu verk- efni innanhúss og vilji til að halda því áfram. benediktboas@365.is Bjuggu til smáforrit fyrir meðgöngu á starfsdegi Sex starfsmenn Origo bjuggu til smáforrit fyrir meðgöngu sem hlaut flest verðlaun á svokölluðum Ofurhetjudögum Origo, nýsköpunarkeppni hugbúnaðarsviðs fyrir- tækisins. Í verðlaun fengu þau 100 tíma til að hefja greiningu á verkefninu. Unnur Karen Guðmundsdóttir, Davíð isebarn Ágústsson, Guðný Þórfríður Magnúsdóttir og Ásta rún Ásgeirsdóttir voru í sigurliðinu sem vann til verðlauna á ofurhetjudögum origo en þar bar meðgönguappið sigur úr býtum. MyND/arNalDUr hallDórssoN Mögulega er þetta app því einstakt á heimsvísu þar sem verðandi foreldrum býðst að nálgast fræðslu á meðgöngu og heilbrigðisgögn sín henni tengd. Ásta Rún Ásgeirsdóttir Okkar ástkæri Magnús E. Ársælsson Maríubaugi 41, lést á Landakoti þann 15. mars. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 26. mars kl. 13.00. Linda Guðbjartsdóttir, Ársæll Magnússon, Björk Inga Magnúsdóttir Andrea Bergþóra Pétursdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Elskulegur maðurinn minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, Guðmundur R. Sighvatsson lést 19. mars sl. á gjörgæsludeild Landspítalans. Útförin fer fram miðvikudaginn 28.3. nk. kl. 13.00 í Hallgrímskirkju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinafélag Austurbæjarskóla (reikn. 0111-26-440609, kt. 440609-1550). Gunnhildur Friðþjófsdóttir Guðrún Magnea Aðalsteinsdóttir Sigríður Hrönn Atli Örn Vigdís Soffía Tinna Einar og barnabörn. Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, Elín Inga Jónasdóttir frá Helluvaði, lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, þann 18. mars síðastliðinn og fer útför hennar fram frá Glerárkirkju þriðjudaginn 27. mars klukkan 13.30. Bryndís Arna Reynisdóttir Garðar Ægisson Hinrik Már Jónsson Kolbrún María Sæmundsdóttir Friðrik Þór Jónsson Sigríður Skarphéðinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. 2 3 . m a r s 2 0 1 8 F Ö s T U D a G U r22 T í m a m ó T ∙ F r É T T a B L a ð i ð tíMaMót 2 3 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 4 8 -9 B 1 0 1 F 4 8 -9 9 D 4 1 F 4 8 -9 8 9 8 1 F 4 8 -9 7 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 2 2 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.