Fréttablaðið - 24.03.2018, Side 8
Samgöngustofa auglýsir laus til umsóknar
25 leyfi til leiguaksturs fólksbifreiða
á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum
og 1 leyfi á Akureyri.
Þau ein geta sótt um leyfi sem hyggjast stunda
akstur leigubifreiðar að aðalatvinnu og hafa lokið
námskeiði fyrir leigubifreiðastjóra. Til að öðlast
leyfi þurfa umsækjendur að uppfylla leyfisskilyrði,
skv. 5. gr. laga nr. 134/2001 og rg.nr. 397/2003 um
leigubifreiðar, með síðari breytingum.
Úthlutun leyfis fer fram á grundvelli starfsreynslu
við akstur leigubifreiðar, sbr. 6. gr. reglugerðarinnar.
Umsóknareyðublöð má nálgast í afgreiðslu
Samgöngustofu, Ármúla 2 í Reykjavík
eða á www.samgongustofa.is.
Umsóknarfrestur er til og með 06.04.2018.
Sími: 480 6000 . www.samgongustofa.is
AUGLÝSING
VEGNA ÚTHLUTUNAR
ATVINNULEYFA
TIL AKSTURS
LEIGUBIFREIÐA
Samgöngustofa
Kynntu þér keppnina á Landsvirkjun.is/samkeppni
Landsvirkjun, í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands, óskar
eftir tillögum að hönnuðu verki eða listaverki sem sett verður
upp á Þeista reykjum. Verkið þarf að falla vel að umhverfinu og
auka upplifun þeirra sem um svæðið fara.
Við hvetjum alla áhugasama að taka þátt í samkeppninni
og nýta sér leiðsögn sem verður um svæðið á keppnistíma.
Tillögum skal skila fyrir 1. júní 2018
og er heildarverðlaunafé 3,5 milljónir króna.
Hugmyndasamkeppni
um listaverk eða hannað
verk í náttúru Þeistareykja
Jarðvarmastöðin á Þeistareykjum er nýjasta afl stöð
Íslendinga. Stöðin var gangsett þann 17. nóvember
2017 og nú efnir Landsvirkjun til hugmyndasam
keppni um verk sem staðsett verður í víðáttumikilli
náttúru Þeistareykja.
Í samstarfi við
OPIÐ RÝMI
Opið rými
O ými
Viðskipti Framkvæmdastjóri Gildis
lífeyrissjóðs, fjórða stærsta eiganda
Eimskipafélags Íslands, segir mikil-
vægt að stjórn Eimskips rökstyðji
hverju sinni starfskjör stjórnenda
og fjárhæð þeirra. Þetta kemur fram
í bókun sem Gildi lagði fram á aðal-
fundi Eimskips á fimmtudag.
Fréttablaðið fjallaði í gær um að
árslaun og hlunnindi Gylfa Sigfús-
sonar, forstjóra Eimskips, hefðu
numið tæpum 103 milljónum
króna í fyrra. Hækkuðu laun hans
um 8,4 milljónir milli ára og um
41 prósent frá 2014 til 2017. Eim-
skip segir hækkunina, sérstaklega
á hlunnindalið forstjórans, fyrst og
fremst skýrast af árangurstengdum
greiðslum vegna bættrar afkomu
félagsins árið áður. Laun og bón-
usar sex framkvæmdastjóra félags-
ins hækkuðu sömuleiðis um nærri
54 milljónir alls milli ára.
Í bókun Gildis er vísað í hluthafa-
stefnu sjóðsins og að ef félög ákveði
að notast við árangurstengd launa-
kerfi sé eðlilegt að föst laun séu
lægri, samanborið við félög þar sem
slík kerfi eru ekki til staðar.
„Sérstaklega er mikilvægt í tilfelli
Eimskipafélags Íslands hf. að stjórn
félagsins upplýsi nánar um það með
hvaða hætti heildarlaun stjórnenda
eru mótuð og við hvaða samanburð
þau miða.“
Er því beint til stjórnar Eimskips
að taka starfskjarastefnu félags-
ins til endurskoðunar. Rökstyðja
þurfi starfskjör stjórnenda og fjár-
hæð þeirra, þar með talda breyti-
lega launaliði og breytingar á milli
ára ásamt föstum og breytilegum
greiðslum. Stjórnin þurfi framvegis
að sundurliða greiðslur til stjórn-
enda þannig að greiðslur samkvæmt
árangurstengdu launakerfi komi
fram og að skýrsla um framkvæmd
starfskjarastefnu verði útbúin og hér
eftir birt með góðum fyrirvara fyrir
aðalfundi. mikael@frettabladid.is
Stjórnin rökstyðji
starfskjör stjórnenda
Gildi lífeyrissjóður lagði fram bókun um starfskjör lykilstjórnenda á aðalfundi
Eimskips á fimmtudag. Kallað er eftir ítarlegri rökstuðningi fyrir starfskjörum
stjórnenda og því beint til stjórnar að hún endurskoði starfskjarastefnu.
Árslaun og hlunnindi Gylfa námu um 100 milljónum í fyrra. Fréttablaðið/SteFÁn
2 4 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
C
-E
0
B
8
1
F
4
C
-D
F
7
C
1
F
4
C
-D
E
4
0
1
F
4
C
-D
D
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K