Fréttablaðið - 24.03.2018, Side 37
Aðferð félagsráðgjafa UYDEL, sam-
starfsaðila Hjálparstarfs kirkjunnar í
Kampala, er sú sama og aðferð félags-
ráðgjafa Hjálparstarfsins sem aðstoða
fólk í félagslegri neyð á Íslandi: Að
stuðla að sterkari sjálfsmynd krakk-
anna, aukinni virkni og verkfærni svo
þau geti séð sér farborða á mannsæm-
andi hátt.
Í verkmenntamiðstöðvunum er boðið
upp á nám í tölvuviðgerðum og almennri
en einfaldri rafvirkjun, fatasaum og
fataprjón, töskugerð, sápugerð, hár-
greiðslu og förðun, eldamennsku og
þjónastarfi. Kennt er fyrir hádegi en
boðið upp á frístundastarf og íþróttir
eftir hádegi.
Eitt af því sem unglingarnir geta lagt
stund á er dans og trumbusláttur en í
Kampala er vinæslt að ráða danshópa
til að sýna hefðbundinn dans í veislum
við ýmis tækifæri. Dansinn og tón-
listina geta unglingarnir þannig nýtt
sér til framfærslu. Almennt ríkir góð
stemning í miðstöðvunum og greinilegt
að unglingunum líður þar vel.
Við messu í Hallgrímskirkju þann 21.
janúar síðastliðinn afhenti Hallgríms-
sókn Hjálparstarfi kirkjunnar hátt í
fjórar milljónir króna sem söfnuðust í
Hallgrímskirkju á síðasta ári.
Um 20 ár eru liðin frá því farið var að
gera tilraunir með messusamskot í
Hallgrímskirkju og urðu þau fljótlega
að föstum lið.
Á jólafundi sóknarnefndar í Hallgríms-
sókn var ákveðið að úthluta 4 milljón-
um króna úr líknarsjóði kirkjunnar til
hjálparstarfs og kristniboðs, en sjóð-
urinn hefur tekjur sínar af framlögum,
bænastjaka og söfnunarbauknum
Grænu tunnunni.
Auk þess bað Hallgrímssöfnuður Hjálp-
arstarf kirkjunnar að koma 1 milljón
króna úr líknarsjóði í landssöfnunina
„Vinátta í verki“ til stuðnings þeim sem
áttu um sárt að binda vegna náttúru-
hamfaranna á Grænlandi í júní 2017
þegar flóðbylgja gekk yfir smáþorpið
Nuugaatsigq. Hamfarirnar kostuðu
fjögur mannslíf og gífurlegt eignatjón.
Í ávarpi sínu minntist Einar Karl Har-
aldsson, gjaldkeri safnaðarins, sér-
staklega á innanlandsstarf Hjálpar-
starfsins sem hefði fært mörgum
tækifæri til þess að brjótast út úr víta-
hring fátæktar og menntunarskorts,
og sagði meðal annars: „Við hér í Hall-
grímssöfnuði höfum valið Hjálpars-
starfið og Kristniboðssambandið sem
meginfarvegi fyrir hjálpar- og
boðunarstarf vegna þess að við treyst-
um þeim og við vitum að þessar stofn-
anir hafa til að bera fagþekkingu og
réttu tengslin innanlands sem og á al-
þjóðavettvangi til þess að rækja köllun
sína þannig að þeir fjármunir sem hér
safnast komi í réttan stað niður og
gagnist sem best.“ Hjálparstarfið þakk-
ar kærlega fyrir stuðninginn!
Í verkmenntamiðstöðvunum er kennt á prjónavél en stelpan á myndinni
er einmitt í peysu sem hún prjónaði sjálf.
Krakkarnir læra að flétta og sauma töskur
sem þau geta svo selt á markaði.
Stelpurnar sem læra fatasaum geta annað
hvort starfað fyrir aðra í framhaldinu eða
stofnað eigið fyrirtæki og selt kjólana sem
þær sauma.
Tölvuviðgerðir og rafvirkjun eru vinsælar
námsgreinar sérstaklega meðal stráka.
Unglingarnir læra að baka, elda mat
og bera hann fram.
Eftir hádegi eru tónlist og íþróttir á dagskrá í
verkmenntamiðstöðvunum.
Kristín Ólafsdóttir fræðslufulltrúi Hjálpar-
starfs kirkjunnar og Kristján Þór Sverrisson
fræðslufulltrúi Sambands íslenskra kristni-
boðsfélaga tóku við framlögum Hallgríms-
söfnuðar úr hendi Einars karls Haraldssonar
gjaldkera Hallgrímssóknar (fyrir miðju).
Sama aðferð í
starfi á Íslandi
og í Úganda
Bestu þakkir til Hallgrímssóknar fyrir
rausnarlegt framlag til starfsins
Margt smátt ... – 5
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
4
C
-C
3
1
8
1
F
4
C
-C
1
D
C
1
F
4
C
-C
0
A
0
1
F
4
C
-B
F
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K