Fréttablaðið - 24.03.2018, Qupperneq 81
Óska Eftir aðstoðarmanni
á verkstæði
Viðkomandi þarf að getað bjargað sér í smáviðgerðum
hafa ríka þjónustulund,
20 ára eða eldri, hreint sakavottorð,
reglusamur og stundvís skilyrði.
Um 100% starf er að ræða og þarf
viðkomandi þarf að geta haað störf jótlega.
Umsókn skal send fyrir 5. Apríl
á netfangið info@taeki.is
Sérfræðingur í öryggis- og fræðsludeild
Samgöngustofa leitar að siglingamenntuðum eða vel sigldum sérfræðingi í öryggis– og
fræðsludeild á samhæfingarsviði stofnunarinnar. Meginstarf viðkomandi verður að greina
og skrá sjóslys í samevrópskan gagnagrunn (EMCIP) ásamt því að keyra út gögn og tölfræði
úr viðkomandi gagnagrunni. Einnig mun starfsmaður taka þátt í verkefnum á áætlun um
öryggi sjófarenda sem og öðrum verkefnum er lúta að siglingaöryggi. Starfið felur í sér mikil
samskipti við innlendar og alþjóðlegar stofnanir. Skráning sjóslysa í gagnagrunninn er nýtt
verkefni og mun viðkomandi því byggja það upp frá grunni. Starfshlutfall er 100%.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Siglingatengd menntun eða háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla og/eða þekking á skipum, sjómennsku og siglingum
• Mjög góð íslenskukunnátta ásamt mjög góðri enskukunnáttu er skilyrði
• Góð tölvukunnátta og vilji og geta til að læra á ný kerfi
• Kostur er ef umsækjandi hefur þekkingu og reynslu í að vinna úr tölfræðilegum gögnum
• Kostur er ef umsækjandi hefur reynslu eða þekkingu á öryggisstjórnun
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti ásamt mikilli hæfni í mannlegum samskiptum
• Leitað er að samviskusömum og jákvæðum einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt,
hefur gott viðmót og sýnir frumkvæði í starfi
Ármúli 2 ı 108 Reykjavík ı Sími 480 6000
Verkefni fyrir snjallan forritara
Samgöngustofa óskar eftir að ráða forritara. Í boði er góður félagsskapur, starfsumhverfi með
góðum tækjabúnaði, spennandi verkefni og tillitsemi gagnvart því að forritarar eiga sér líf utan
vinnu. Meginstarf viðkomandi er greining, hönnun, forritun og prófanir á nýjum og tilbúnum
lausnum, viðhald eldri kerfa og samskipti við notendur. Starfshlutfall er 100%.
Í boði er spennandi starf
hjá metnaðarfullri stofnun
í alþjóðlegu umhverfi. Við
bjóðum góða starfsaðstöðu
og frábæra vinnufélaga.
Hvetjum jafnt konur sem
karla til að sækja um.
Áhugaverð störf
á góðum vinnustað
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. tölvunarfræði, eða reynsla sem nýtist forritara
• Þekking á Java, vefforritun og gagnagrunnskerfum er kostur
• Grunnþekking á Linux
• Viðkomandi þarf að búa yfir vandvirkni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Umsóknarfrestur
er til 9. apríl 2018
Hægt er að sækja
um starfið rafrænt á
samgongustofa.is/storf
Upplýsingar um
Samgöngustofu má finna
á samgongustofa.is
Lausar stöður við Grunnskóla
Vestmannaeyja
Grunnskóli Vestmannaeyja er starfræktur á tveimur
starfsstöðvum, annars vegar í Barnaskóla v/Skólaveg
(eldra stig) og hins vegar í Hamarsskóla v/Bessahraun
(yngra stig). Í skólanum eru rúmlega 500 nemendur sem
skiptast u.þ.b. til helminga á hvora starfsstöð.
Í skólastarfinu er lögð áhersla á líðan nemenda, fjölbreytta
kennsluhætti, skapandi starf og góðan námsárangur.
Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði og vinnu-
brögðum Uppeldi til ábyrgðar og eru leiðarljós skólastarf-
sins Gleði - Öryggi - Vinátta.
Aðstoðarskólastjóri Hamarsskóla
Helstu verkefni:
• Ber ábyrgð á og stjórnar daglegri starfsemi
starfsstöðvarinnar í samstarfi við skólastjóra.
• Mótar og sér um framkvæmd faglegrar stefnu skólans
í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu
Vestmannaeyjabæjar.
• Kemur að skipulagi skólastarfsins í heild.
• Vinnur að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins.
Hæfniskröfur:
• Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari og
kennslureynsla á grunnskólastigi.
• Framhaldsmenntun æskileg.
• Stjórnunarreynsla æskileg.
• Leiðtogafærni og hæfni til að leiða framsækið skólastarf.
• Samstarfshæfni og góð færni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
• Metnaður í starfi og áhugi á skólaþróun.
• Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Deildarstjóri Hamarsskóla
Helstu verkefni:
• Er þátttakandi í stjórnunarteymi skólans og leiðandi í
faglegri umræðu.
• Sinnir ráðgjöf til kennara, foreldra og nemenda.
• Ber ábyrgð á og hefur eftirlit með skólastarfi á
sínu skólastigi.
• Hefur umsjón með sérúrræðum nemenda á
sínu skólastigi.
• Kemur að skipulagi skólastarfs.
Hæfniskröfur:
• Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari og
kennslureynsla á grunnskólastigi.
• Framhaldsmenntun er kostur.
• Stjórnunarreynsla er kostur.
• Samstarfshæfni og góð færni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
• Metnaður í starfi og áhugi á skólaþróun.
• Góð íslenskukunnátta.
Stöðurnar eru lausar frá og með 1. ágúst 2018.
Umsókn sendist á erlingur@grv.is eða
drifagunn@vestmannaeyjar.is Ekki er sótt um á sérstökum
eyðublöðum en umsókn skal fylgja ítarleg ferilská,
leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari
auk annarra gagna er málið varðar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitafélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2018.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Erlingur Richardsson
skólastjóri í síma 488-2300, erlingur@grv.is eða
Drífa Gunnarsdóttir fræðslufulltrúi í síma 488-2000,
drifagunn@vestmannaeyjar.is Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
D
-4
D
5
8
1
F
4
D
-4
C
1
C
1
F
4
D
-4
A
E
0
1
F
4
D
-4
9
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K