Fréttablaðið - 24.03.2018, Síða 106
Rafhitarar
í skip, hús og sumarhús
Ryðfríir
neysluvatnshitarar
með 12 ára ábyrgð
Hitöld (element), hitastillar,
hitastýringar og flest annað
til rafhitunar
Við erum sérfræðingar í öllu sem
viðkemur rafhitun.
Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði
Sími: 565 3265
rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is
Sólheimasandur er sjálfsprottinn ferðamannastaður.
Einn vinsælasti ferðamanna-staður landsins er sjálfsprott-inn eins og það kallast þegar
ákveðinn staður verður gríðarlega
vinsæll án þess að það hafi endi-
lega verið ætlunin. Um er að ræða
Sólheimasand en Douglas C-117
flugvélarflakið sem þar liggur er
aðalaðdráttaraflið. Flugvélarflakið
hefur legið í sandinum frá árinu
1973. Flugvélin var á leið frá Höfn
í Hornafirði til herstöðvarinnar á
Keflavíkurflugvelli þegar óhappið
varð en það drapst á báðum
hreyflum vélarinnar vegna ísingar,
auk þess sem veður var afleitt
vegna þoku og ókyrrðar. Mikil
mildi þótti að allir í áhöfninni
lifðu slysið af. Eftir að kanadíska
poppstjarnan Justin Bieber tók upp
tónlistarmyndband þar sem flakið
sést vel hefur það dregið til sín
þúsundir ferðalanga sem vilja berja
það augum. Annar sjálfsprottinn
ferðamannastaður er Kirkjufells-
foss á norðanverðu Snæfellsnesi
en hann er einn mest myndaði foss
landsins.
Flugvélarflakið vinsælt
Fundir
starFsdagar
hópeFli
Á ION Adventure Hóteli er frábær
aðstaða til allskonar fundahalda ásamt
hágæða veitingastað og þjónustu.
Leiga á fundarsal ásamt hádegisverði,
kaffihlaðborði og þriggja rétta kvöldverði.
40 mín akstursfjarlægð frá Reykjavík.
HópAveRð fRÁ
150.000 kr.
í apríl og maí.
Fyrirspurnir hjá
sales@ioniceland.is
Góð Instagram-síða getur gengið í augun á tilvonandi viðskiptavinum, því margir
nota miðilinn til að skoða myndir
af mat og velja veitingastaði. En það
er ekki alltaf sjálfgefið hvernig best
sé að nýta Instagram-reikninginn.
• Það er mikilvægt að vanda sig vel
þegar síðan er sett upp. Það þarf
að velja fagmannlega mynd sem
aðalmynd reikningsins, til dæmis
af vörumerki staðarins, og skrifa
nokkur lýsandi orð um hann. Ekki
gleyma að taka heimilisfangið
fram og setja hlekk á vefsíðuna.
• Það er sniðugt að birta myndir
af nýjum réttum, vekja athygli á
klassískum réttum, sýna starfs-
fólk við störf og sýna staðinn að
innan. Ekki gleyma að merkja
myndirnar vel og hvetja fólk
til að tjá sig. Það er líka hægt
að birta alltaf mynd af rétti
dagsins og jafnvel afsláttarkóða
á síðunni.
• Það er gott að hvetja viðskipta-
vini til að birta sínar eigin myndir
og merkja þær staðnum. Þá er
líka ekkert verra að hafa einhvers
konar myllumerki fyrir staðinn.
Svo er hægt að skoða myllu-
merkið og endurbirta myndir
viðskiptavina, bara ekki gleyma
að eigna þeim heiðurinn af
myndinni.
• Birtu efni á réttum tíma. Sumir
vilja meina að það sé best að
birta myndir milli 11 og 13 á
daginn og 19-21 á kvöldin. En það
er um að gera að prófa sig áfram
og sjá hvort einhver ákveðinn
tími virki betur en annar.
• Það er líka sniðugt að nýta sér
myllumerkin sem eru þegar til
staðar á Instagram til að merkja
þínar myndir. Þau geta verið
tengd efni myndarinnar og eru
líka oft byggð á staðsetningu, t.d.
#icelandicfood.
Svona á
veitingastaður
að nota
Instagram
20 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . m A R S 2 0 1 8 LAUGARDAGURALLt fYRIR hóteL oG veItINGAhúS
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
4
C
-A
F
5
8
1
F
4
C
-A
E
1
C
1
F
4
C
-A
C
E
0
1
F
4
C
-A
B
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K