Fréttablaðið - 24.03.2018, Side 140
Eigum til á lager ítalskt skrautjárn
sem hentar í handrið o..
Getum einnig sérpantað smíðajárn.
ÍTALSKT
SMÍÐAJÁRN
Ingi@jarnprydi.is | Gsm: 822 1717
P Á S K A E G G
með piparfylltum lakkrís
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@frettabladid.is, Máté
Dalmay mate@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /
FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut
Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Lífið í
vikunni
18.03.18-
24.03.18
’90s tískan
komin aftur
Tískubylgjur koma
og fara og um þessar
mundir er tískan sem
ríkti á tíunda ára-
tugnum að lifna við.
Allt sem þótti smart á
þeim tíma virðist vera
komið aftur í tísku.
Sem dæmi má nefna
lítil sólgleraugu,
hárbönd, áberandi
hárspennur, mittis-
töskur, litríka vindjakka
og smellubuxur.
DeiLDu
áLaginu
með
unDer
worLD
Reykjavíkur-
dætur spiluðu á
Sónar Reykjavík
um síðustu
helgi og spiluðu á sama tíma og
stærsta atriði hátíðarinnar, breska
sveitin Underworld, spilaði í næsta
sal. Það kom ekki að sök. „Þetta
var með skemmtilegri giggum sem
við höfum spilað,“ sagði Kolfinna,
ein Reykjavíkurdætra.
Veit ekki hVaðan orð
rómurinn kemur
Orðrómurinn um að allir meðlimir
Babies-flokksins séu börn þekktra
tónlistarmanna er ekki sannur.
„Það eru tveir í bandinu sem eru
börn tónlistarmanna. Ég veit ekki
alveg hvaðan þessi orðrómur
kemur,“ sagði Zakarías.
„Basic Burger“ í
Vestur Bæinn
Hagavagninn,
vinaleg sjoppa
í Vestur-
bænum,
mun ganga í
endurnýjun líf-
daga og opna sem
hamborgarastaður á næstunni.
Emmsjé Gauti er einn þeirra sem
að staðnum koma. „Þetta verður
svona hamborgarastaður sem
nýtir sér aðferð sem heitir smass-
börger. Þetta er geggjað því mér
finnst vanta svona „basic burger“ í
hverfið,“ sagði Emmsjé Gauti.
Stendur undir nafni
99x100 Við Dugguvog, þar sem kjötvinnslan Esja var eitt sinn til húsa, er jaðaríþróttafélagið Jaðar að reisa hjóla-brettagarð – svæði
fyrir hjólabrettaiðkendur og BMX-
og hlaupahjólafólk. Þar er líka rekin
hlaupahjólaverslunin StreetAction.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hjóla-
brettagarður er starfræktur í húsinu,
en það er í heilmikilli yfirhalningu
núna. Öll vinnan er unnin af hjóla-
brettamönnum í sjálfboðavinnu og
metnaðurinn er mikill enda stendur
Ísland að þeirra mati nágranna-
þjóðum okkar áratugum að baki
þegar kemur að aðstöðu fyrir hjóla-
brettaiðkun.
„Við erum búnir að vera í sjö ár að
óska eftir húsnæði hjá borginni fyrir
Jaðar. Svo gerðist það bara núna að
fyrrverandi leigjendur hér sögðu
upp húsnæðinu og okkur var boðið
inn. Við stukkum glaðir á það,“
segir Alexander „Lexi“ Kárason,
einn af stofnendum Jaðars. Félag-
ið var stofnað fyrir fjórum árum
en lagðist í dvala í nokkurn tíma
og slitnaði upp úr hópnum. Ársæll
Þór Ingvason, Addi Intro, var einn
af meðlimum hópsins og hefur nú
snúið aftur af krafti og er sveittur að
smíða hjólabrettapall þegar blaða-
mann ber að garði.
„Lexi er maðurinn með bissness-
vitið og þekkir alla – hann er eins og
hann segir sjálfur „pappakassi með
áhuga á jaðarsporti sem getur talað
við hina pappakassana“,“ segir Addi.
Jaðar er kominn undir hatt ÍBR og
hjólabrettasportið inn í ÍSÍ. Draum-
urinn er þó að koma hjólabretta-
manni á Ólympíuleikana 2020.
„Við erum komnir með alla þá gull-
stimpla á rasskinnina sem íþrótta-
félag þarf. En hjólabrettaíþróttin er
ekki enn orðin viðurkennd grein hér
á landi. Það er hellingur sem þarf að
gera, búa til sérsamband og fleira.
En af því að við erum með þessa
stimpla þá getum við farið að spyrja
réttu spurninganna: Hvernig eigum
við að senda einhverja frá Íslandi á
Ólympíuleikana? Hvað þurfum við
að gera?“ segir Lexi. Hann útskýrir
að það þurfi að búa til sérsamband
innan ÍSÍ. Til þess þurfa að vera til
staðar þrjú félög sem fara í gegnum
ákveðið ferli. Þessi félög eru til: Jaðar,
Brettafélag Hafnarfjarðar og Hasar á
Akureyri.
„Við erum á mjög góðum stað.
Við erum á þeim stað að við getum
sýnt fram á að það sé góður rekstur í
gangi. Hjörtur Sólrúnarson er hérna
með verslunina StreetAction og fólk
kemur á hverjum degi að kíkja á
hana, þá sér það allt sem er í gangi
hérna og bæði foreldrar og iðkendur
eru mjög ánægðir. Þetta er ekki gert
með neinu hálfkáki,“ segir Addi.
Garðurinn er opinn að hluta
til í dag þó að það sé ekki búið að
henda öllu upp. Þeir stefna á að vera
með hjólabretta-, hlaupahjóla- og
BMX-æfingar bráðlega og einnig
eru nokkrir krakkar búnir að taka
frá dagsetningu til að halda upp á
afmælið sitt á svæðinu.
„Við opnuðum í raun bara um
leið og við fengum húsnæðið. Við
hentum þessu upp og opnuðum
einn þriðja af rýminu. Þetta var
gert svo fólk viti af rekstrinum, sjái
að það er uppbygging í gangi og að
það sé alvara í þessu. Við viljum að
krakkar geti komið hérna snemma
og fundið að þetta sé eitthvað sem
þeir geta stundað,“ bætir Addi við
en hann reiknar með að garðurinn
verði kominn í fullan gang um mán-
aðamótin. stefanthor@frettabladid.is
hjólabrettasportið
að rúlla aftur af stað
Hjólabrettafélagið Jaðar er nú í óðaönn að útbúa hjólabrettagarð
og koma hjólabrettaíþróttinni almennilega á kortið hér á landi.
Félagið er loksins komið með húsnæði eftir margra ára leit.
Jaðarsfélagar ætla sér stóra hluti og sjá fram á góðæri í hjólabrettaíþróttinni hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 4 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r72 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
4
4
s
_
P
1
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
4
C
-C
8
0
8
1
F
4
C
-C
6
C
C
1
F
4
C
-C
5
9
0
1
F
4
C
-C
4
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K