Fréttablaðið - 04.05.2018, Síða 26
München er þriðja stærsta borg Þýskalands með um 1,5 milljónir íbúa. Borgin
er jafnframt höfuðstaður Bæjara
lands. Hátt í þrjátíu prósent íbúa
eru af erlendu bergi brotnir og
borgaryfirvöld eru þekkt fyrir að
taka vel á móti nýbúum. Fyrir vikið
er München sérlega alþjóðleg borg
með iðandi mannlífi og borgarbúar
eru þekkir fyrir gestrisni.
Milljónir koma á Oktoberfest
München er einna frægust fyrir hina
geysivinsælu Oktoberfest, bjór
hátíð sem haldin er á hverju hausti
og dregur að sér milljónir gesta ár
hvert. Í fyrra komu um 6,2 milljónir
á hátíðina sem er sú stærsta sinnar
tegundar í heiminum. Hátíðin á
rætur sínar að rekja til ársins 1810
en upphaflega var tilgangurinn með
henni sá að tæma bjórgeymslur
borgarinnar áður en nýtt bjór
tímabil hófst. Víða um borgina eru
bjórgarðar þar sem ljúft er að sitja
og njóta góðra veitinga. Loftslagið
á þessum slóðum er þægilegt en
meðalhitinn í júlí og ágúst er um 23
gráður að degi til en það er eitthvað
svalara á kvöldin.
Líflegur miðbær
Miðbærinn í München er einkar
líflegur en þar ber hæst Marien
platz, sjálft aðaltorg borgarinnar.
Yfir torginu trónir ráðhúsið í fallegri
byggingu í gotneskum stíl. Í ráðhús
kjallaranum er veitingastaðurinn
Rathauskeller sem býður upp á
ekta þýskan mat. Daglega safnast
mikill mannfjöldi saman á torginu
til að fylgjast með þegar ævafornt
klukkuspil fer í gang með dansandi
fígúrum. Þegar líða tekur að jólum
breytir Marienplatz um svip því þá
er opnaður jólamarkaður á torginu
sem stendur yfir í þrjár vikur.
Hagstætt verðlag
Í miðbænum er fjöldi verslana af
öllu tagi og auðvelt að gera góð
kaup, enda verðlag hagstætt og
úrvalið mikið. Þá eru ótalin kaffihús
og veitingastaðir af öllum stærðum
og gerðum. Steinsnar frá Marien
platz er Viktualienmarkt, stærsti
útimarkaður borgarinnar sem vert
er að skoða. Þar eru fjölmargir sölu
básar sem bókstaflega svigna undan
nýju grænmeti og ávöxtum, ostum,
ólífum, kryddi og fleira góðgæti.
Við hliðina á markaðnum er
Eataly, geysistór matarmarkaður
þar sem ítalskar vörur eru í aðal
hlutverki. Auðvelt er að gleyma sér
við að skoða dýrðina og ekki má
láta Nutella hornið fram hjá sér
fara en þar er einungis boðið upp á
veitingar sem innihalda Nutella.
Paradís í miðri borg
Skammt frá miðbænum er Enski
garðurinn, einn stærsti almennings
garður Evrópu. Hann er hreinasta
paradís á góðum sumardegi, enda
afar vinsæll meðal borgarbúa. Fjöldi
bjórgarða er í Enska garðinum og
hvarvetna hægt að tylla sér niður
með nesti og bjór. Áin Isar rennur
í gegnum garðinn og er vinsælt að
fylgjast með fræknu fólki leika sér á
brimbrettum á ánni.
Bílar og fótbolti
Ekki er hægt að heimsækja München
nema skoða BMWsafnið, Allianz
Arena sem er heimavöllur knatt
spyrnufélagsins Bayern München
og Ólympíuleikvanginn sem var
byggður fyrir Ólympíuleikana árið
1972. Hann er nú notaður fyrir tón
leika, fótboltaleiki og íþróttakeppn
ir. Ólympíuturninn, sem er hátt í
300 metra hár, er fyrir löngu orðinn
eitt af kennileitum borgarinnar.
Í 190 m hæð er útsýnispallur þar
sem sést yfir alla borgina og um 10
metrum neðar er veitingastaður sem
snýst í heilan hring á um klukku
stund. Þá er gleðigangan orðin mjög
vinsæll viðburður í borginni en í ár
fer hún fram 14. og 15. júlí. Líkja má
stemningunni við karnival á þeim
tíma.
München er meira
en bjór og kringlur
München er sannkölluð stórborg sem hefur yfir sér skemmti-
legan bæjarbrag með afslöppuðu andrúmslofti. Borgin iðar
af mannlífi, þar er gott að versla og margt að skoða.
Gaman er að fylgjast með fólki leika listir sínar á brimbrettum á ánni Isar sem rennur í gegnum München.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Marienplatz er stærsta og vinsælasta torg borgarinnar. Miðbærinn er vel
skipulagður og stutt í allar áttir.
Ástralía 5.-25. október
Verð 649.000 á mann
miðað við 2 í herbergi
Þriggja vikna spennandi ferð um Ástralíu frá 5. - 25. október.
- Mikið innifalið -
Upplýsingar í símum 845 - 1425 / 899 - 1295
eða á tölvupósti info@iceline.is
Kynntu þér ferðina betur á
www.icelinetravel.com
Aqua Sport sundverslun • Bæjarlind 1-3 • 201 Kópavogur
Fjölbreytt úrval af TYR sundfatnaði á konur, karla og börn,
úr DURAFAST 300+ efninu, sem er sérlega klórþolið og lithelt.
Kíktu inn á heimasíðuna okkar www.aquasport.is
– sérverlsun með sundvörur.
6 KYNNINGARBLAÐ 4 . M A í 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RfeRÐABLAÐIÐ
0
4
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
A
F
-A
8
2
0
1
F
A
F
-A
6
E
4
1
F
A
F
-A
5
A
8
1
F
A
F
-A
4
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K