Fréttablaðið - 08.05.2018, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 08.05.2018, Blaðsíða 8
Kristrún Heimisdóttir stýrir fundinum ALDREI AFTUR! - FUNDARÖÐ SAMTAKA SPARIFJÁREIGENDA Vilhjálmur Bjarnason fv. alþingismaður Stefán Svavarsson endurskoðandi Rússland Vladímír Pútín var í gær settur inn í embætti Rússlandsfor- seta. Athöfnin fór fram með miklum glæsibrag í Kreml. Um fimm þúsund sóttu forsetann heim, meðal ann- ars Gerhard Schröder, fyrrverandi kanslari Þýskalands og nú lykil- maður hjá rússneska gasfyrirtækinu Gazprom, og fyrrverandi Holly- wood-stjarnan og rússneski ríkis- borgarinn Steven Seagal. Athöfnin var svo sem ekki ný fyrir forsetanum en þetta var í fjórða skipti sem hann er settur í embætti. Það gerðist fyrst árið 2000, svo 2004 og því næst 2012. Valdatíð Pútíns er löng, lengri en nokkurs í Rússlandi frá því Stalín var við völd. Hún spannar samtals fjórtán ár á forsetastóli auk fjögurra í forsætisráðuneytinu. Þegar næstu forsetakosningar fara fram munu árin á forsetastóli verða tuttugu, enda var kjörtímabil forseta lengt úr fjórum árum í sex árið 2008.  Samkvæmt stjórnarskránni ætti þetta kjörtímabil að verða Pútíns síðasta. Ekkert er þó öruggt í þeim málum, enda komst Pútín áður framhjá stjórnarskránni með því að sitja eitt kjörtímabil á stóli forsætisráðherra, frá 2008 til 2012. Pútín fór um víðan völl í innsetn- ingarræðu sinni. „Við höfum endur- vakið stolt þjóðarinnar á föðurland- inu. Sem þjóðhöfðingi mun ég gera allt sem í valdi mínu stendur til að margfalda styrk Rússlands og vel- sæld Rússa,“ sagði forsetinn. Sem þjóðhöfðingi vill Pútín stuðla að hagkvæmri samvinnu við öll önnur ríki og vinna að friði og stöðugleika á jörðu. „Rússland er sterkur og áhrifaríkur leikmaður á sviði alþjóðastjórnmálanna. Þjóðar- öryggi er tryggt og varnarmöguleik- ar okkar miklir. Við munum halda áfram að einbeita okkur að þessum málaflokkum.“ Þótt Pútín verði 71 árs þegar kjör- tímabilinu lýkur og þótt hann eigi ekki möguleika á að bjóða sig aftur fram til forseta strax samkvæmt stjórnarskránni þykir ekki öruggt að þessi fyrrverandi KGB-liði hverfi frá völdum árið 2024. Undanfarna mánuði, sér í lagi í kringum forsetakosningar mars- mánaðar, hefur því verið haldið fram að Pútín muni annaðhvort breyta stjórnarskránni svo hann geti boðið sig fram aftur eða að hann muni koma á fót ríkisráði þar sem hann taki sjálfur stöðu leiðtoga. Yrði staða Pútíns sem leiðtoga einhvers konar ríkisráðs þá sambærileg stöðu Ali Khamenei, æðstaklerks Írans. The Washington Post tók í mars saman ummæli fjölmargra banda- manna Pútíns sem þykja benda til að eitthvað þessu líkt sé í pípunum hjá Rússlandsforseta. Konstantín Gaaze, sjálfstæður stjórnmálaskýr- andi, sagði til að mynda að með Fjórða kjörtímabilið er hafið hjá Pútín Vladímír Pútín hefur sitt fjórða, mögulega síðasta, kjörtímabil á stóli Rússlandsforseta. Hefur gegnt embættinu í fjórtán ár sem verða tuttugu er kjörtímabilinu lýkur. Bandamenn Pútíns telja líklegt að hann muni með einhverjum hætti stýra landinu lengur en til 2024. Gestir freistuðu þess að ná mynd af leiðtoganum þegar hann gekk inn í hallarsalinn í gær. Fréttablaðið/EPa Andstaðan við Pútín Ljóst er að ekki eru allir sáttir við Pútín í Rússlandi þótt hann sé að hefja sitt fjórða kjörtímabil. Það sást bersýnilega um helgina þegar þúsundir mótmæltu í níutíu borgum og bæjum víðs vegar um Rússland. Alexeí Navalní, stjórnarand- stæðingur og aktívisti, var hand- tekinn við mótmælin ásamt um 1.600 öðrum mótmælendum. Navalní var þó sleppt úr haldi síðar um helgina. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem Navalní kemst í kast við lögin. Þegar ljóst var að hann ætlaði í forsetaframboð var hann til að mynda sakfelldur fyrir fjárdrátt. Navalní hefur sjálfur sagt þær sakir upplognar, hann hafi einungis verið sakfelldur svo hann gæti ekki boðið sig fram. Á mótmælum laugardagsins mátti heyra mótmælendur hrópa: „Niður með keisarann!“ Navalní sagði á mótmælunum að Moskva tilheyrði Pútín ekki. Engin þörf væri á keisara. Eftir að honum var sleppt úr haldi sagði hann svo: „Það kom greinilega tilskipun frá Kreml um að fangelsa mig ekki fyrir innsetningarathöfn- ina!“ En Navalní hefur ekki tekist að steypa Pútín af stóli, hvergi nærri. Og þótt Vesturlönd einblíni á utanríkismálastefnu Rússa virðist hún ekki vera Rússum til armæðu. Það eru efnahagsmálin sem reynast Pútín erfiðust. Samkvæmt skoðanakönnun Levada hafa Rússar einna helst verið ósáttir við að ekki hafi tekist að draga úr ójöfnuði í rússnesku samfélagi. Næstflestir sögðu að Pútín hefði helst átt að tryggja að Rússar fengju aftur það sparifé sem tapaðist í efnahagsaðgerðum yfirvalda. Lækkandi olíuverð, verðminni rúbla, verðbólga og slæm áhrif viðskiptaþvingana á rússneska hagkerfið hafa leitt til þess að virði rússneskra meðallauna hefur minnkað um fjörutíu prósent samanborið við bandarísk meðal- laun á undanförnu ári. lögregla tók harkalega á mótmæl- endunum. NordicPhotos/aFP kosningasigrinum hefði leið opnast fyrir Pútín að því að koma á fót ein- hvers konar ævilangri stöðu þjóð- höfðingja. Alexeí Tjesnakov, áður ráðgjafi í Kreml og nú sjónvarpsmaður, sagði eftir kosningarnar í mars að hann væri nokkuð viss um að Pútín myndi ekki fara neitt árið 2024. „Það er of snemmt að segja til um hvernig það verður. Ég veit ekki hvort hann hætti sem forseti eða hvort hann framlengi valdatíð sína einhvern veginn.“ Þá vitnaði The Washington Post einnig í Vladímír Sjírínovskí, banda- mann Pútíns og ævarandi forseta- frambjóðanda. Sjírínovskí sagði í aðdraganda forsetakosninganna að fólk hefði einfaldlega ekki áhuga á að velja annan leiðtoga en Pútín. „Þessar kosningar verða þær síð- ustu. Þú ættir að skilja það. Komið verður á fót ríkisráði sem forsetinn mun stýra.“ Setti Sjírínovskí framtíð Pútíns í samhengi við Xi Jinping, forseta Kína. Benti á að Xi hefði nýverið afnumið reglur um hversu mörg kjörtímabil forseti Kína má sitja. Sjálfur hefur Pútín ekki viljað tala mikið um hvað framtíðin ber í skauti sér. Þegar hann var spurður um hvort hann ætlaði að bjóða sig fram aftur, stuttu eftir kosningarnar í mars, sagði hann spurninguna nokkuð fáránlega. „Á ég að vera for- seti þangað til ég verð hundrað ára gamall? Nei,“ svaraði Pútín svo. thorgnyr@frettabladid.is 8 . m a í 2 0 1 8 Þ R I Ð J U d a G U R8 f R é t t I R ∙ f R é t t a B l a Ð I Ð 0 8 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :5 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F B 4 -F 3 7 8 1 F B 4 -F 2 3 C 1 F B 4 -F 1 0 0 1 F B 4 -E F C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 7 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.