Fréttablaðið - 08.05.2018, Blaðsíða 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vil-
helmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson,
olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 |
Þessi 31 árs gamla kona fékk blettaskalla. Hér sést árangurinn eftir 4 mánaða notkun á Nourkrin®. MYND/ÍSAM
Þessi 63 ára kona fékk hárlos vegna skjaldkirtilsvandamáls. Hér sést árangur eftir 6 mánaða notkun á Nourkrin®. MYND/ÍSAM
ÍSAM býður nú upp á ný hágæða bætiefni fyrir hár, bein og liði frá fyrirtækinu Pharma Medico. Ann-
ars vegar Nourkrin® bætiefni fyrir
hár og hins vegar LithoLexal bætiefni
fyrir bein, brjósk og liðamót.
Endurheimtir
eðlilegan hárvöxt
„Nourkrin® Woman er vinsælasta
bætiefnið fyrir hár í Bretlandi og
inniheldur hið byltingarkennda
innihaldsefni Marilex, sem er unnið
úr sjávarríkinu,“ segir Anton Gylfi
Pálsson, sölustjóri sérvöru hjá ÍSAM.
„Nourkrin® er eina hárbætiefnið
sem byggir á vísindalegum rann-
sóknum, en alls hafa 56 klínískar
rannsóknir á efninu verið gefnar út.
Eðlileg hringrás hárvaxtar líkam-
ans kallast hárvaxtarhringur. Í eðli-
legum hárvaxtarhring eru 85-90%
háranna á vaxtarstigi á meðan
10-15% þeirra eru á hvíldarstigi
eftir að hafa náð fullum vexti,“ segir
Anton. „Hárlos á sér stað hjá konum
þegar hinn hefðbundni hárvaxtar-
hringur brenglast vegna þess að hár-
sekkirnir fá ekki réttu næringarefnin.
Það geta verið ýmsar ástæður fyrir
því, en algengar ástæður eru meðal
annars: stress, veikindi, sykursýki,
lyfjaneysla, reykingar, meðganga,
fæðing, slæm hármeðhöndlun og
fleira. Nourkrin® Woman inniheldur
réttu næringarefnin fyrir hársekkina
og þannig verður hárvaxtarhringur-
inn eðlilegur á ný.“
Lausn á algengu vandamáli
„Það er talið að um 60% kvenna upp-
lifi hárlos á einhverjum tímapunkti.
Það er oft erfitt ástand fyrir konur
og mikið feimnismál. En Nourkrin®
Woman er öruggt og lyfjalaust
bætiefni fyrir konur sem nærir hárið
og viðheldur eðlilegum hárvaxtar-
hring,“ segir Anton. „Níu af hverjum
tíu sem tóku þátt í prófunum á
vörunni tóku eftir breytingu á hárinu
eftir meðferðina, sem felst í að taka
tvær töflur á dag í að lágmarki 4-6
mánuði.
Hárlos og skallamyndun er
vandamál sem margir karlmenn
standa frammi fyrir, en Nourkrin®
Man er öruggt og lyfjalaust bætiefni
fyrir karlmenn sem veldur engum
aukaverkunum,“ segir Anton. „Með
reglulegri og fyrirbyggjandi notkun
frá fyrstu ummerkjum hárþynningar
getur varan seinkað eða alveg komið
í veg fyrir skallamyndun. Rétt eins og
konur eiga karlar að taka tvær töflur
á dag í að lágmarki 4-6 mánuði.“
Byltingarkennt bætiefni
„Nourkrin® inniheldur bætiefnið
Marilex®, sem er byltingarkennt og
einkaleyfisvarið bætiefni sem er ein-
göngu að finna í vörum frá Pharma
Medico,“ segir Anton. „Marilex® er
unnið úr sjávarríkinu og inniheldur
rétt hlutfall af svokölluðum próteó-
glýkönum, sem næra hársekkina svo
þeir geti viðhaldið hinum eðlilega
hárvaxtarhring. Önnur helstu inni-
haldsefni Nourkrin® eru bíótín,
acerola kirsuberjaþykkni, kísill og
klóelftingarþykkni.
Marilex® hefur verið prófað um
allan heim og er samþykkt af heilsu-
yfirvöldum í öllum heimsálfum,
svo það er algjörlega öruggt. Allir
geta notað það, nema þeir sem hafa
ofnæmi fyrir fiski eða skelfiski,“ segir
Anton. „Nourkrin® Woman hefur
reynst konum sem eru að koma
Bætiefnin eru nú fáanleg í öllum helstu apótekum og Heilsuhúsinu.
úr krabbameinsmeðferð og hafa
misst hárið einstaklega vel. Með
Nourkrin® vex nýja hárið hraðar og
verður sterkara.
Hefðbundin meðferð er tvær töflur
daglega í sex mánuði og ástæðan fyrir
lengd meðferðarinnar er sú að það
tekur hárvaxtarhringinn sex mánuði
að ná jafnvægi,“ segir Anton. „Hár-
sekkirnir geta verið á misjöfnum stað
í hringnum þegar meðferð hefst og
því tekur þetta þennan tíma.“
Vinnur gegn beinþynningu og
styrkir liðamót
„LithoLexal er ný kynslóð bætiefna
fyrir bein sem byggir á vísindalegum
rannsóknum og stuðlar að sterkum,
heilbrigðum beinum og liðamótum
út lífið. Litholexal vörurnar eru
nýlega komnar á markað, en þær
voru lengi í þróun og fóru í gegnum
klínískar rannsóknir, svo það er
vísindalega sannað að þessi bætiefni
virka,“ segir Anton. „Það hefur verið
hægt að sýna fram á áhrif efnisins á
uppbyggingu brjósks og beina með
bæði in-vivo og in-vitro rannsóknum.
Litholexal eru einu vörurnar sem
innihalda einstakt efni sem unnið er
úr þörungum og er mun betra og frá-
brugðið þeim innihaldsefnum sem
almennt eru notuð í kalsíumvörur,“
segir Anton. „Það eru til þrjár gerðir
af LithoLexal bætiefnum. Bone care,
sem er fyrir alla sem eru eldri en 20
ára, Bone Health, sem er fyrir konur
eftir tíðahvörf, en þá minnkar bein-
þéttni verulega, og Joint Health, sem
er fyrir liðina og viðheldur eðlilegri
brjóskmyndun.
Tíu prósent af beinagrindinni
eru endurbyggð á hverju ári, en ef
þessi endurnýjun gengur ekki sem
skyldi þynnast beinin. Beinþynning
veldur helmingi af öllum bein-
brotum kvenna sem eru 50 ára eða
eldri og er algengasta ástæða þess að
konur eldri en 45 ára þurfa að dvelja
á sjúkrahúsi,“ segir Anton. „Það er
því mjög mikilvægt að tryggja að fá
nauðsynleg bætiefni til að viðhalda
heilbrigðum beinum og koma í veg
fyrir beinþynningu og skylda kvilla.
LithoLexal hefur líka gagnast
íþróttamönnum vel og minnkað
þörf þeirra fyrir sterk verkjalyf vegna
verkja í beinum og liðum,“ segir
Anton. „Bætiefnið hefur einnig gert
frábæra hluti fyrir þá sem þjást af
slitgigt.“
Nánari upplýsingar um Nourkrin® er
að finna á www.isam.is/nourkrin og
það fæst líka á www.harland.is.
Nourkrin® er eina
hárbætiefnið sem
byggir á vísindalegum
rannsóknum, en alls hafa
56 klínískar rannsóknir á
efninu verið gefnar út.
Anton Gylfi Pálsson
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . M A Í 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R
0
8
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:5
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
4
-F
D
5
8
1
F
B
4
-F
C
1
C
1
F
B
4
-F
A
E
0
1
F
B
4
-F
9
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
7
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K