Feykir - 13.03.2014, Blaðsíða 3
10/2014 Feykir 3
Sérfræðikomur
í mars
FRÁ HEILBRIGÐISSTOFNUNINNI SAUÐÁRKRÓKI
Valur Þór Marteinsson
þvagfæralæknir / 18. og 19. mars
Haraldur Hauksson,
alm. æðaskurðlæknir / 24. og 25. mars
Tímapantanir í síma 455 4022
www.hskrokur.is
Blönduós
Stofutón-
leikar í
Heimilisiðn-
aðarsafninu
Sunnudaginn 16. mars kl.
15.00 munu hjónin Ellen
Kristjánsdóttir, söngkona
og Eyþór Gunnarsson,
tónlistarmaður, halda
tónleika í Heimilisiðnað-
arsafninu á Blönduósi.
Að loknum tónleikum
verður boðið upp á kaffi og
smá meðlæti. Allir eru
velkomnir á tónleikana–
Aðgangseyrir kr. 1.500
ókeypis fyrir 16 ára og yngri.
Menningarráð Norðurlands
vestra styrkir tónleikana. /BÞ
Körfubolti
Fjórir leikmenn úr
Tindastóli voru valdir í U16
og U18 landsliðin í
körfubolta sem taka þátt í
Norðurlandamóti yngri
landsliða í Solna í Svíþjóð
(U16 og U18).
Samkvæmt Facebook síðu
yngri flokka Tindastóls eru
þau Pétur Rúnar Birgisson í
U18-karla, Pálmi Þórsson í
U16-drengja og þær Bríet
Lilja Sigurðardóttir og Linda
Þórdís Róbertsdóttir í U16-
stúlkna. /KSE
Tindastóls-
krakkar í
landslið
Tvenn silfurverðlaun
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
Fjölbrautaskóli Norðurlands
vestra tók þátt í Íslandsmóti
iðn- og verkgreina sem fram
fór í íþróttahöllinni Kórnum í
Kópavogi um síðustu helgi.
Tveir þátttakendur snéru heim
með silfurverðlaun og aðrir
keppendur frá FNV stóðu sig
með stakri prýði.
Fannar Kári Birgisson
keppti í TIG suðu og þeir
Friðrik Andri Atlason og Jón
Helgi Sigurgeirsson kepptu í
kælitækni og bilanagreiningu.
Allir stóðu keppendurnir sig
með prýði og þeir Friðrik
Andri og Jón Helgi unnu til
silfurverðlauna.
Skólinn var einnig með
kynningarbás á staðnum þar
fram fór kynning á náms-
framboði og starfsemi skólans.
Fjöldi manns heimsótti básinn
og á fésbókarsíðu sinni þakkar
skólinn öllum þeim sem heim-
sóttu básinn fyrir komuna. Þá
þakkar skólinn þeim sem
komu að undirbúningi og
framkvæmd sýningarinnar
kærlega fyrir. /KSE
Kaffihlaðborð að Hólum
Hólanemar styrkja
björgunarsveit
Bræðurnir Ingvar Daði og
Ævar Jóhannssynir úr
björgunarsveitinni Gretti í
Hofsósi tóku á móti styrk frá
ferðamálanemendum við
Háskólann á Hólum um sl.
helgi. Háskólanemarnir
höfðu staðið fyrir
kaffihlaðborði á Hólum á
dögunum og er styrkurinn
afrakstur þeirrar kaffisölu.
Um var að ræða hagnýtt
verkefni í námskeiðinu Matur
og menning, þar sem nemend-
um var ætlað að skipuleggja,
undirbúa og standa fyrir
matartengdum viðburði. Þetta
gerðu nemendurnir með
miklum ágætum og komu um
100 manns í kaffi á Hólum
þann daginn. Þema hlaðborðs-
ins var hefðbundið íslenskt
kaffihlaðborð þar sem borð
svignuðu undan hnallþórum,
pönnukökum, hangikjöti með
flatbrauði, skonsutertum og
fleira góðgæti. Það voru saddir
og sælir gestir sem stóðu upp
frá borðum og var mál manna
að vel hefði til tekist. Styrk-
urinn mun vonandi nýtast
björgunarsveitinni vel í því
ágæta starfi sem þar fer fram.
Eftirtaldir lögðu verkefninu
lið og hljóta bestu þakkir fyrir:
Sauðárkróksbakarí, Lands-
banki Íslands á Sauðárkróki,
Kaupfélag Skagfirðinga, Hlíð-
arkaup, Kvenfélag Staðar-
hrepps, Norðlenska á Akureyri
og Kornax. Einnig er Herdísi í
Áskaffi þakkað fyrir veittan
stuðning og lán á búningum.
/KSE
STARFSFÓLK
ÓSKAST Í ÞRIF
Dögun óskar eftir að ráð starfsfólk í þrif.
Um er að ræða þrifastörf í verksmiðju við lok vinnslu hvers
dags. Þrifin hefjast að jafnaði um eða eftir klukkan 15:00.
Áhugasamir hafi samband við Hilmar Ívarsson eða Óskar Garðarsson
hjá Dögun í síma 453 5923. Einnig er hægt að senda umsókn eða
fyrirspurn í tölvupósti á dogun@dogun.is
Dögun starfrækir rækjuvinnslu á Sauðárkróki.
DÖGUN EHF HESTEYRI 1 SAUÐÁRKRÓKI
Smá í Feyki ::
Síminn er 455 7171
smá
AUGLÝSINGAR
Ford 350 crew til sölu
Bíllinn er árgerð 2004, ekinn
um 115 þúsund, hvítur að lit.
Dísel vél, 5949 cc, 326 hö.
Sjálfskiptur með fjórhjóladrifi.
4 dyra og tekur 6 farþega.
Vel við haldinn bíll á nýjum
dekkjum sem lítur vel út. Pall-
hýsi, Starcraft árgerð 1994,
getur fylgt.
Nánari upplýsingar gefur
Alfreð í síma 861 3164.
Aflahornið 2. – 8. mars 2014
600 tonn til hafnar
Í viku 10 var landað rúmum 65 tonnum á Skagaströnd, rúmum 3 tonnum á Hofsósi og hátt í 500
tonnum á Sauðárkróki Engu var landað á Hvammstanga. Samtals hátt í 600 tonn, sem er um
fjórfaldur afli síðustu viku. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Ásmundur SK-123 Landb.lína 1.474
Geisli SK-66 Landb.lína 306
Skáley SK-32 Landb.lína 1.331
Alls á Hofsósi 3.111
Alda HU-112 Landb.lína 6.714
Dagrún HU-121 Landb.lína 13.389
Flugalda ST-54 Landb.lína 2.414
Guðbjörg GK-176 Landb.lína 1.718
Hafrún HU-12 Dragnót 15.174
Nonni HU-9 Handfæri 176
Ólafur Magnúss. HU-54 Net 3.885
Óli Gísla HU-212 Lína 18.794
Smári HU-7 625
Sæfari HU-200 Landb. lína 2.508
Alls á Skagaströnd: 65.397
Hafborg SK-54 Þorskfisknet 2.683
Hrappur SK-121 Þorskur 170
Klakkur SK-5 Botnvarpa 127.412
Málmey SK-1 Botnvarpa 336.944
Már SK-90 Rauðmaganet 105
Óskar SK-13 Landb.lína 440
Alls á Sauðárkróki 467.754
Frá verðlaunaafhendingunni. Mynd: fnv.is