Feykir - 23.10.2014, Page 1
á
BLS. 6-7
BLS. 10
Gunnhildur Gísladóttir
ljósmyndari svarar
Rabb-a-babbi
Súkkulaði er
veikleiki
BLS. 8
Rætt við Þórarinn Brynjar
Ingvarsson veitingamann
á Skagaströnd í opnuviðtali
Var ætlað að
koma aftur
Feykir heimsótti
Sviðamessu Húsfreyjanna
á Vatnsnesi
37 sviðamessur á
fjórtán árum
40
TBL
23. október 2014
34. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Borðhald hefst kl. 20.00 húsið opnað kl. 19.00
Dásamleg villibráð og fordrykkur í boði hússins
Lifandi tónlist fram eftir kvöldi
Verð 9.200 kr. á mann - tilboð á gistingu
Pantanir í síma
453 8245 / 453 8099
Villibráðarhlaðborð
8. nóvember
Þakklæti efst í huga júdóiðkenda
Nýr júdóvöllur Júdódeildar Tindastóls tekinn í gagnið
Júdódeild Tindastóls vígði nýjan
júdóvöll sl. föstudag og státar félagið
nú af mjög góðri æfingaaðstöðu í
íþróttahúsi gamla barnaskólans á
Sauðárkróki. Völlurinn samanstendur
af 196 eins fermetra júdódýnum sem
voru fluttar inn frá Belgíu en
Júdófélagið Draupnir á Akureyri hefur
notað samskonar dýnur og þar hafa
þær gefið góða raun.
Júdódeildin, sem heyrir undir
almenningsíþróttadeild Tindastóls, var
endurvakin 3. mars síðastliðinn og í
haust fór starfið á fullt skrið. Félagar
innan deildarinnar hrintu af stað söfnun
fyrir júdóvelli og fór sú söfnun fram úr
björtustu væntingum og söfnuðust 1500
þús. krónur á mettíma frá hinum ýmsu
fyrirtækjum og einstaklingum í
firðinum.
Að sögn Einars Arnar Hreinssonar
þjálfara er þakklæti júdóiðkendum
Tindastóls efst í huga fyrir rausnarlegt
framlag þeirra sem styrktu deildina til
kaupanna með einum eða öðrum hætti.
Júdóiðkendur eru að vonum ánægðir með nýju dýnurnar. MYND: BÞ
Nokkuð var um útköll hjá
lögreglunni á Sauðárkróki í síðustu
viku. Aðfararnótt laugardags var
tilkynnt um rúðubrot í húsi Rauða
krossins við Aðalgötu, þar sem
ölvaður maður hafði kýlt gegnum
rúðuna í reiðikasti. Telst málið
upplýst.
Á laugardaginn varð vélhjólaslys
þar sem ungur maður var á
mótokrosshjóli á Austurdalsvegi á
móts við Byrgiskarð ásamt félögum
sínum og velti hjólinu. Slapp hann með
minni meiðsli en á horfðist en hann
slasaðist á fæti.
Þá voru sautján ökumenn stöðvað-
ir fyrir hraðaakstur í Blönduhlíð þar
sem lögreglan var við hraðamælingar
um helgina. /KSE
Vélhjólaslys, rúðubrot
og hraðaakstur
Lögreglan á Sauðárkróki
Afgreiðsla júdóvallar-ins gekk eins og í
sögu, gengið var frá kaupunum þann 10.
september sl. og var völlurinn kominn á
leiðarenda fimm vikum síðar. Það var
ThorShip sem annaðist flutninginn til
landsins og Vörumiðlun sá um flutn-
inginn á Sauðárkrók, og var bæði gert að
kostnaðarlausu.
Næst ætlar félagið að fjárfesta í 15
júdógöllum félaginu til eignar en svo er
áformað að opna nýja heimasíðu innan
tíðar. /BÞ