Feykir - 23.10.2014, Blaðsíða 2
2 40/2014
Þegar ég átti leið suður til Reykjavíkur á dögunum voru
Hvalfjarðargöng lokuð og þá var ekkert annað í stöðunni en
að taka smá auka krók á leiðina og renna fjörðinn. Það var
fremur sérstök tilfinning
þegar beygjan var tekin af
þjóðvegi 1 en það var ekki fyrr
en þá að ég áttaði mig á því að
ég hafði ekki ekið Hvalfjörðinn
í tja..., hvað voru komin mörg
ár síðan – ein 16 ár! Jahér, mig
hefur oft langað til þess en er
alltaf á svo mikilli hraðferð að
ég hef ekki mátt við því að
bæta þessum auka hálftíma
við ferðina. Það er svo þægilegt
að skjótast bara í gegnum
göngin og þar með ertu
næstum komin á leiðarenda, þ.e.a.s. ef maður er á suðurleið
annars ef það er á norðurleiðinni þá er svo löng leið fyrir
höndum að maður má ekki við því að byrja ferðina á óþarfa
krókaleið, sérstaklega þegar börnunum fjölgar sífellt með-
ferðis.
En hvað um það, ég var ekki laus við smá eftirvæntingu
þegar við héldum áfram för inn fjörðinn. Aðstæður voru þó
talsvert öðruvísi en ég hafði ímyndað mér, ég hafði alltaf séð
fyrir mér að fara fjörðinn á fallegum og sólbjörtum sunnudegi
með allan tímann í heiminum til að skoða mig um og sjá hvað
hefur breyst í tímans rás. Þess í stað vorum við á ferðinni seint
um kvöld, í svarta myrkri, þar sem við höfðum drifið okkur af
stað til að vera á undan stórhríðinni og því slæma skyggni sem
var í veðurkortunum næsta dag. Í huganum tíndi ég til ýmsar
minningar af ferðum í aftursæti í bíl foreldra minna eftir
hlykkjóttum firðinum, inn fjarðarbotninn, horfandi á
stórbrotið landslagið og rifjaði upp eftirvæntinguna eftir
hverri Hvalfjarðarsjoppunni á eftir annarri þar sem hægt var
að gæða sér á appelsíni og Prins póló í gylltu umbúðunum, en
það var skyldustopp í að minnsta kosti tveimur sjoppum af
þremur. Herminjarnar, hvalstöðin og önnur mannvirki sá ég
ljóslifandi fyrir mér á meðan ég klessti nefið upp við rúðuna út
í myrkrið í tilraun til að raða minningarbrotunum saman við
brotakennd landslagið sem mátti greina umhverfis bílinn.
Hvalfjörðurinn var sjálfsagt óvenju líflegur þessa stjörnu-
björtu nótt vegna lokunar gangnanna sem áttu sinn þátt í að
breyta ásýnd fjarðarins sem áður var í alfaraleið en er nú
einungis krókaleið alltof sjaldan farin.
Berglind Þorsteinsdóttir ritstjóri
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Krókaleiðir
Tillögur til Norðvestur nefndarinnar
Húnaþing vestra og Blönduós-
bær hafa skilað tillögum
Í byrjun maí á þessu ári
samþykkti ríkisstjórn Íslands
að skipa sérstaka
landshlutanefnd fyrir
Norðurland vestra sem komi
með tillögur um það hvernig
efla mætti byggðaþróun,
fjölga atvinnutækifærum og
efla fjárfestingu á svæðinu.
Húnaþing og Blönduósbær
hafa þegar skilað tillögum til
nefndarinnar og hefur verið
fjallað um tillögur Blönduós-
bæjar á Feykir.is.
Tillögur Húnaþings vestra til
nefndarinnar eru víðfeðmar, að
sögn Guðnýjar Hrundar Karls-
dóttur sveitarstjóra þar. Miða
þær að því að efla byggð og auka
atvinnutækifæri í sveitarfélag-
nu. Lögð er áhersla á að styrkja
grunnþjónustu, t.d með úrbót-
um í vegamálum sem löngu eru
orðnar tímabærar. Einnig er
mikil àhersla lögð á mikilvægi
ljósleiðaravæðingar með tilliti til
jafnra möguleika landsmanna til
Þing Landssambands hestamanna
Þingi frestað til 8. nóvem-
ber og stjórnin sagði af sér
Eins og sagt hefur verið frá á
Feyki.is var þing Lands-
sambands hestamanna
haldið á Selfossi um
síðustu helgi. Miklar
sviptingar urðu sem fyrr segir
á þinginu.
Rétt fyrir þingið hafði for-
svarsmönnum hestamanna í
Skagafirði verið tilkynnt að
næsta Landsmót hestamanna
yrði að líkindum ekki haldið á
Vindheimamelum árið 2016,
þrátt fyrir að viljayfirlýsing þar
um hefði verið undirrituð í vor.
Átök urðu um málið á þinginu
sem endaði með því að stjórn
LH sagði af sér og þingi var
frestað til 8. nóvember.
Kosið var skriflega um
tillögu hesta-mannafélaganna í
Skagafirði um að stjórn LH
drægi til baka þá ákvörðun að
hætta við að halda mótið á
Vindheimamelum 2016. Tillag-
an var samþykkt með 84
atkvæðum gegn 67.
Á þinginu var Haraldur
Frá Hvammstanga.
vinnu og náms. „Ljósleiðara-
væðingin er mikilvægasta ein-
staka verkefnið sem hægt er að
ráðast í til eflingar byggðar og
fjölgunar atvinnutækifæra á
landsbyggðinni,“ sagði Guðný í
samtali við Feyki.
„Í sértækari tillögum til
nefndarinnar er lögð áhersla á
verkefni sem geta skapað störf
strax en brýnt er að bregðast hratt
við til að snúa við neikvæðri
byggðaþróun á svæðinu. Af þeim
tillögum má nefna sem dæmi
eflingu starfsstöðvar Fæðingar-
orlofssjóðs á Hvammstanga,
eflingu starfsemi Selaseturs
Íslands, eflingu Heilbrigðisstofn-
unar Vesturlands Hvammstanga
auk ýmissa skráningar- og
þýðingarverkefna,“ sagði Guðný
ennfremur. /KSE
Útsvar á föstudaginn
Skagfirðingar mæta Árborg
Keppni í Útsvari er fyrir
nokkru hafin þennan veturinn
en þar keppa 24 sveitarfélög
sín á milli í skemmtilegum
spurningaleik á RÚV. Nú á
föstudagskvöld er komið að
því að Skagfirðingar hefji
þátttöku en þá mæta þeir
vösku liði Árborgar.
Lið Skagafjarðar er að þessu
sinni skipað reyndum kempum
þótt nýliði sé einnig í hópnum.
Liðið skipa þau Guðrún Rögn-
valdardóttir, framkvæmdastjóri
Staðlaráðs, Guðný Zoega,
deildarstjóri fornleifadeildar
Byggðasafns Skagfirðinga og
Vilhjálmur Egilsson, rektor
Háskólans á Bifröst. Þátturinn
hefst kl. 20:10. /KSE
Þórarinsson, formaður LH,
sakaður um að brjóta lög og
önnur óheilindi og ákvað hann
í kjölfarið að segja af sér
formennsku. Í framhaldi af því
sagði öll stjórn LH af sér.
Hlé var gert á þinghaldi en
þingi síðan frestað til 8. nóvem-
ber og á þá að halda fram-
haldsfund, enda þarf að kjósa
formann og nýja stjórn áður en
þinghald getur haldið áfram.
Ætlar kjörnefnd að undirbúa
kosningu og annað sem þarf að
undirbúa varðandi það þing.
Meðlimir stjórnar munu taka að
sér að stjórna skrifstofu LH fram
að hádegi 8. nóvember svo
samtökin séu ekki án stjórnar
þar til á þinginu. /KSE
22. ársþing SSNV á Hvammstanga
Ný stjórn mun ráða framkvæmdastjóra
Ársþing SSNV, hið 22. Í röðinni, fór fram á
Hvammstanga 16.-17. október sl. Að sögn
Bjarna Jónssonar, fráfarandi formanns
stjórnar, fór þingið vel fram. Ekki hefur verið
gengið frá ráðningu framkvæmdastjóra
samtakanna en fráfarandi stjórn samþykkti
á dögunum að fela nýrri stjórn að ganga
frá því máli.
Ný stjórn samtakanna var kjörin til næstu
tveggja ára og hana skipa eftirfarandi aðilar:
Adolf H. Berndsen, oddviti Sveitarfélagsins
Skagastrandar, formaður, Unnur Valborg Hilm-
arsdóttir, oddviti Húnaþings vestra, varafor-
maður, Valgarður Hilmarsson, forseti bæjar-
stjórnar Blönduósbæjar, Sigríður Svavarsdóttir,
forseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarð-
ar og Stefán Vagn Stefánsson, formaður byggðar-
ráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar
Varastjórn skipa: Elín Jóna Rósinberg sveitar-
stjórnarfulltrúi Húnaþingi vestra, Dagný R.
Úlfarsdóttir varaoddviti Skagabyggðar, Þorleifur
Ingvarsson oddviti Húnavatnshrepps, Gunn-
steinn Björnsson sveitarstjórnarfulltrúi Sveitar-
félaginu Skagafirði og Bjarki Tryggvason sveitar-
stjórnarfulltrúi, Sveitarfélaginu Skagafirði.
Þegar Feykir hafði samband við Adolf
Berndsen, formann stjórnar, rétt fyrir útgáfu
blaðsins lá ekki fyrir hvenær fyrsti fundur nýrrar
stjórnar yrði. /KSE