Feykir - 23.10.2014, Síða 3
40/2014 3
Myndasamkeppni
Átt þú forsíðumynd á Jólablað Feykis?
Jólablað Feykis kemur út 27. nóvember nk.
og er dreift frítt í öll hús á Norðurlandi vestra.
Jafnan ríkir mikil eftirvænting fyrir útkomu blaðsins og í
hugum margra markar það upphaf aðventunnar. Hefð er fyrir
því að forsíðu blaðsins prýði falleg mynd og leitum við því til
þín að senda inn mynd í samkeppni um forsíðuna.
Myndaval er frjálst en skal vera í anda jólanna.
Hafa ber í huga að lögun myndarinnar þarf að vera í
svokölluðu portait og haus Feykis þarf að komast fyrir efst.
Frestur til að skila inn myndum er til 8. nóvember nk.
og berist þær á netfangið feykir@feykir.is.
Vegleg verðlaun í boði
– fylgstu með á Feykir.is
Athugið! Feykir áskilur sér rétt til að birta
þær myndir sem berast.
FRÉTTA- OG DÆGURMÁLABLAÐ
Á NORÐURLANDI VESTRA
Hofsós
Selkópur skreið á land
Það var óvenjulegur gestur
sem lagði leið sína á
Vesturfarasetrið á Hofsósi á
þriðjudagsmorgun, eða í það
minnsta stefndi þangað.
Margrét Berglind Einars-
dóttir á Hofsósi var nýlega mætt
til vinnu sinnar á fána-
saumastofunni þegar hún varð
vör við selkóp sem gengið hafði
á land og mjakaði sér í áttina að
Vesturfarasetrinu.
Kópurinn var aflífaður
seinna sama dag, enda ekki um
annað að gera þar sem hann var
særður. Ekki þótti líklegt að
hann kæmist aftur til móður
sinnar sem var hvergi nálæg.
Haft var samband við lögreglu
og ákvörðunin tekin í samráði
við hana. /KSE
Kópurinn umkomulaus rétt við Vesturfarasetrið. MYND: MARGRÉT BERGLIND
Eldað fyrir Ísland
Mikilvægt að vita um
fjöldahjálparstöðvarnar
Rauði krossinn á Íslandi stóð
fyrir landsæfingu síðastliðinn
sunnudag og bauð þjóðinni
jafnframt í mat. Alls voru um
50 fjöldahjálparstöðvar
opnaðar um allt land þar sem
sjálfboðaliðar Rauða krossins
stóðu vaktina, rétt eins og
um alvöru neyðarástand væri
að ræða. Markmið verkefnis-
ins var að æfa deildir Rauða
krossins í að taka á móti
stórum hópi fólks, eins og um
opnun fjöldahjálpastöðvar
væri að ræða.
Að sögn Guðnýjar Zoega hjá
Rauða krossinum í Skagafirði
gekk verkefnið vel þar á bæ. Í
fjöldahjálparstöðina, sem stað-
sett er í bóknámshúsi FNV,
komu alls 40 manns og sjö
sjálfboðaliðar voru á staðnum til
að taka á móti gestunum.
„Fræddu þeir gesti um hlutverk
Rauða Krossins í neyðarvörnum
auk þess að bjóða upp á dýrindis
alíslenska ketsúpu sem gerður
var góður rómur að. Mikilvægt
er að menn séu meðvitaðir um
hvar finna má næstu fjölda-
hjálparstöð ef neyðarástand
skapast,“ sagði Guðný.
Þegar hættuástand skapast
vegna náttúruhamfara eða
annarra stórslysa fer neyðar-
varnarkerfi Rauða krossins í
gang. Hlutverk Rauða krossins í
almannavörnum ríkisins er
fjöldahjálp og félagslegt hjálpar-
starf sem felst einkum í því að
útvega fæði, klæði og húsaskjól
og veita upplýsingar til fólks á
neyðarstundu.
„Það er einnig mikilvægt
fyrir sjálfboðaliða sem að koma
til með að starfa í fjölda-
hjálparstöðvum að kunna rétt til
verka, komi til hættuástands og
þeir þurfi e.t.v. að taka á móti
stórum hópum fólks. Svona
æfingar eru því ómetanlegar og
viljum við þakka kærlega öllum
þeim sem komu og tóku þátt í
æfingunni,“ sagði Guðný enn-
fremur.
Rauði krossinn er mannaður
með sjálfboðaliðum sem koma
að mörgum mikilvægum sam-
félagslegum verkefnum þ.m.t.
neyðarvörnum. Það er alltaf
þörf fyrir fólk sem vill bjóða
fram krafta sína og taka þátt í
sjálfboðastarfinu og eru nýir
sjálfboðaliðar ævinlega vel-
komnir. Hægt er að skrá sig sem
sjálfboðaliða á heimasíðu Rauða
krossins, www.rki.is undir flip-
anum „taka þátt.“ /KSE
Gestir gerðu góðan róm að kjötsúpunni sem RKÍ bauð upp á. MYNDIR: KSE