Feykir - 23.10.2014, Blaðsíða 5
40/2014 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR
Körfuboltaveisla
Tindastólsmanna í Síkinu
Dominos-deildin í körfubolta: Tindastóll - Þór Þorlákshöfn 110-90
Fyrsti heimaleikur Tindastóls í
Dominos-deildinni í
körfubolta í einhverja 18
mánuði fór fram sl.
föstudagskvöld en þá kom lið
Þórs frá Þorlákshöfn í
heimsókn. Stólarnir voru
snöggir í gang og áttu nánast
óaðfinnanlegan leik í fyrri
hálfleik og lögðu þá grunninn
að góðum sigri. Lokatölur
urðu 110-90.
Darrel Flake var ekki með
en aðstoðarslökkviliðsstjórinn,
Svavar Bigga Hreinsa, var
mættur á parketið eftir að hafa
tosað körfuboltaskóna úr
geymslunni. Pétur Bigga Rafns
hóf leikinn með látum og átti
stórleik og næsti maður á blað,
Myron Dempsey, var sömuleiðis
í þrusustuði. Stólarnir komust í
14-2 og 27-11 og voru 33-17 yfir
eftir fyrsta leikhluta. Rosalegur
kraftur og hraði var í leik liðsins
og þá sýndu strákarnir góðan
varnarleik. Skotin fóru flest
niður og gestirnir vissu ekki
hvaðan blés í logninu á
Króknum.
Hlutirnir geta hins vegar
breyst eldsnöggt í körfunni og
stuðningsmenn Stólanna voru
ekki sáttir við byrjunina á
öðrum leikhluta því gestirnir
gerðu fyrstu 10 stigin og það
bara á 70 sekúndum. En þá kom
skagfirsk sveifla og Stólarnir
gerðu 14 stig í röð og staðan 47-
27. Helgi Rafn jók muninn í 25
stig, 59-34, og í hálfleik var
staðan 63-40.
Heldur hægðist á leiknum í
síðari hálfleik en þó ekki mikið.
Gestunum gekk illa að saxa á
forskot Tindastólsmanna sem
höfðu mikla yfirburði í frá-
köstum og nýttu sér það vel.
Munurinn var 23 stig, 89-66,
þegar síðasti leikhlutinn hófst.
Þórsarar reyndu að hleypa
leiknum upp og spiluðu vörnina
framar á sama tíma og Tinda-
stólsmenn reyndu að spila lengri
sóknir og hægðist því nokkuð á
spilinu. Þetta gekk ekki nógu vel
hjá Stólunum og um miðjan
hálfleikinn gerðu þeir sig seka
um að missa boltann klaufalega
hvað eftir annað og Tómas
Tómasson gekk á lagið og setti
niður nokkrar körfur. Þegar
fimm mínútur voru eftir
minnkaði Vincent Sanford
muninn í ellefu stig, 96-85, og
skyndilega var hlaupin spenna í
leikinn. Helgi Margeirs slökkti
að mestu vonarneista gestanna
með flottum þristi, staðan 100-
85, og síðan sigldu strákarnir
sigrinum heim af öryggi.
Varla var veikan blett að
finna á liði Tindastóls í leiknum
og leikurinn hin besta
skemmtun – nema sennilega
fyrir fáeina stuðningsmenn Þórs
í Síkinu, Benedikt þjálfara og
lærisveina hans. Á köflum virtist
allt ganga upp hjá Stólunum og
eiginlega mesta furða hvað
Þórsarar náðu að halda sér inni í
leiknum, þó svo að sigur
Tindastóls hafi í raun aldrei
verið í hættu. Sem fyrr segir
voru Dempsey og Pétur mjög
góðir og Lewis alveg ólseigur.
Allir sem komu við sögu voru
góðir og glæsilegar körfur og
troðslur litu dagsins ljós. /ÓAB
Stig Tindastóls: Demspey 27 stig/11
fráköst, Pétur 21, Lewis 19, Helgi Viggós
17, Svabbi 8/11, Helgi Margeirs 6, Ingvi
Rafn 6, Finnbogi 4 og Viðar 2.
Þorvaldur Gröndal er
forstöðumaður Húss frítímans á
Sauðárkróki. Hann hefur haldið
með Manchester United í nærri
30 ár og tók áskorun Ótthars
Edvardssonar um að svara
spurningum hér í þættinum
Liðið mitt.
Hvert er uppáhaldsliðið þitt í
enska boltanum og af hverju?
-Uppáhalds liðið mitt í ensku
deildinni er Manchester United
og hefur verið í nærri 30 ár. Á
mínum yngri árum snérist allt um
Liverpool, enda voru þeir ágætir
í þá daga, en svo var mér gefin
Manchester treyja og þá var ekki
aftur snúið. Svo fljótlega upp úr því
fóru þeir að vinna hvern titilinn á
eftir öðrum.
Hvernig spáir þú gengi liðsins á
tímabilinu?
-Ég spái ágætis gengi, endum pott-
þétt í topp fjórum og svo í fram-
haldinu taka við ár mikilla sigra.
Ertu sáttur við stöðu liðsins í
dag?
-Ekki nógu, enda góðu vanur. Það
vantar enn mikið uppá varnar-
leikinn, en á móti erum „við“
með eitraða sóknarlínu sem getur
klárað leiki.
Hefur þú einhvern tímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar á
umræddu liði?
-Nei, enda reyni ég að forðast
menn sem vaða um í villu.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn
fyrr og síðar?
-Eric Cantona án nokkurs vafa. Of
svalur!
Hefur þú farið á leik með liðinu
þínu?
-Nei ekki enn, stefnan þó sett á
leik í vetur.
Áttu einhvern hlut sem tengist
liðinu?
-Já, nokkra. Treyjur, trefil, könnur
o.fl.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi
við liðið?
-Upp og ofan. Eldri sonur minn
fylgir mér eftir, sá yngri styður
Manchester City og konan Liver-
pool, þannig að þetta getur verið
ærið skrautlegt um helgar.
Hefur þú einhvern tímann skipt
um uppáhalds félag?
-Nei og geri ekki fyrr en ég sé
fljúgandi mörgæs (sem sagt
aldrei!).
Uppáhalds málsháttur?
-Margur er knár, þótt hann sé
smár.
Einhver góð saga úr boltanum?
-Minn ferill sem knattspyrnumaður
var frekar stuttur og svo er ég líka
orðinn svo gamall að ég man svo
stutt aftur. Man þó eftir því að
hafa skorað eitt glæsilegt mark á
mínum ferli, verst var að það var í
rangt mark!
Einhver góður hrekkur sem þú
hefur framkvæmt eða orðið fyrir?
-Það kemur sem betur fer ekki oft
fyrir enda reyni ég oftast að láta
lítið fyrir mér fara og á ég frekar
auðvelt með það. En einu sinni
tókst fyrrum vinnufélaga mínum
að fá mig til að halda að ég væri
að ganga af göflunum. Þar sem ég
var að drífa mig heim úr vinnunni,
kem út á bílastæði þar sem ég var
viss um að hafa lagt bílnum, er
bara enginn bíll lengur. Ég stend
og sný mér í hringi, labba um og
leita að bílnum, viss um að hafa
lagt honum þarna. Labba svo
aftur inn, hugsandi að kannski
hafi ég bara komið labbandi í
vinnuna eða fengið far, að þá játar
vinnufélaginn að hafa fært bílinn
niður fyrir hús og réttir mér lyklana.
Spurning frá Ótthari: Hver var
markahæstur í liði Manchester
United árið sem fyrsti smellur
Rokklingana kom út?
-Þetta ætti nú Ótthar sjálfur að vita,
enda maðurinn jafnaldri hans held
ég, en það myndi vera goðsögnin
Mark Hughes.
Hvern myndir þú vilja sjá svara
þessum spurningum?
-Það myndi vera “sjarmatröllið”
Guðjón Örn
Hvaða spurningu viltu lauma að
viðkomandi?
-Ertu búinn að finna Gest?
Þorvaldur Gröndal / Manchester United
„Reyni að forðast menn
sem vaða um í villu“
( LIÐIÐ MITT ) kristin@feykir.is
Þorvaldur í gallanum.
Myron Dempsey var með 27 stig og 11
fráköst gegn Þór.
Öruggur sigur í fyrsta
leik tímabilsins
Kvennalið Tindastóls fór vel
af stað í 1. deildinni í
körfubolta um helgina en þá
sóttu stúlkurnar lið FSu/
Hrunamanna í Iðu á
Selfossi. Tindastóll náði
strax yfirhöndinni í
leiknum, héldu öruggri
forystu allt til leiksloka og
unnu tuttugu stiga sigur.
Bríet Lilja og Tashawna
Higgins, sem þjálfar og spilar
með liði Tindastóls líkt og í
fyrra, voru öflugar í liði
Tindastóls og gerðu þær til
dæmis fyrstu átta stigin í
leiknum og eftir fjögurra
mínútna leik var staðan 0-8.
Staðan var 13-18 að loknum
fyrsta leikhluta og í hálfleik 24-
38. Heimastúlkur gerðu vel í
þriðja leikhluta og unnu hann
15-13 en í lokafjórðungnum
tóku Tindastólsstúlkur aftur
völdin og sigruðu að lokum
48-68.
Fínn sigur og sem fyrr segir
voru Bríet Lilja og Tashawna
atkvæðamestar. Bríet Lilja var
með 24 stig og 14 fráköst en
Tashawna 18 stig, 8 fráköst og
11 stolna bolta. Þriggja stiga
nýting beggja liða var í
lágmarki (10%) en Tindastóll
nýtti 2 skot af 20 og
heimastúlkur 1 af 10. Fyrsti
heimaleikur Tindastóls í
kvennaboltanum er föstu-
daginn 30. október en þá mæta
þær liði Njarðvíkur kl. 21:15.
Stig Tindastóls: Bríet Lilja 24,
Tashawna 18, Linda Þórdís 8, Særós
6, Þóranna Ósk 4, Kristín Halla 3,
Valdís Ósk 3 og Erna Rut 2.a
1. deild kvenna: FSU/Hrunamenn - Tindastóll 48-68Körfubolti
Yngri flokkar Tindastóls
voru á ferðinni um helgina.
7. flokkur stúlkna stóð sig vel
á sinni fyrstu törneringu, unnu
Snæfell 30-27 en töpuðu 46-4
fyrir Njarðvík seinna um dag-
inn. Haukar drógu sig úr keppni
og voru því aðeins þessi þrjú lið
mætt til leiks.
Drengjaflokkur sigraði svo
Keflavík á laugardag. Strákarnir
fóru hreint á kostum og voru
fimm leikmenn af sjö með yfir
tíu stig í leiknum. Hannes var
stigahæstur og setti 32 stig, m.a.
í sex þriggja stiga skotum og
tveimur troðslum. Lokatölur
leiksins voru 85-65.
Unglingaflokkur tók á móti
ÍR/Fjölni á sunnudeginum
heima. Þeir báru 10 stiga sigur
úr bítum, 80-70 í ágætum leik.
/UMFT
Góður
árangur