Feykir - 23.10.2014, Page 7
40/2014 7
veitingahússins sem áður hét
Kántríbær. Þá var Þórarinn
búsettur í Mývatnssveit og hafði
verið þar frá árinu 2008, ásamt
eiginkonu sinni, Önnu
Grétu Eyþórsdóttur
frá Blönduósi, og
börnum þeirra tveim-
ur, Karitas Líf og Elíasi
Eyþóri. Í Mývatnssveit
hafði Þórarinn starfað
sem yfirkokkur á
Hótel Reynihlíð frá
2009-2013 og á Hótel
Seli í eitt ár. „Ég fékk
símtal og var spurður
hvers vegna enginn
maður í minni stétt,
það er kokkur eða
veitingamaður, væri
fyrir löngu búinn að
opna gamla Kántríbæ
aftur, en hann hafði verið
lokaður allt sumarið. Þannig að
ég gerði mér ferð heim til að
heimsækja mömmu og kíkja
aðeins á staðinn,“ útskýrir
Þórarinn, en eftir heimsóknina
segir Þórarinn að ekki hafi verið
aftur snúið. „Þarna sá ég að ég
gæti komið að góðu gagni og
hefði margt fram að færa. Ég
sagði ég við konuna mína að ég
yrði að skoða þetta aðeins nánar
og á leiðinni frá Skagaströnd, á
milli Blönduóss og Skaga-
strandar, hringi ég tvö eða þrjú
símtöl. Þar með fór boltinn af
Þórarinn Brynjar í góðum félagsskap á verönd Borgarinnar.
Úr veitingasal Borgarinnar.
Þórarinn á æskuárunum. MYND: LJÓSMYNDASAFN SKAGASTRANDAR
stað,“ segir hann. „Ég þurfti að
athuga með fjármagn, gera
áætlanir, tala við birgja, fá leyfi -
allt gekk þetta snurðulaust. Öll
skriffinskan rann í gegn og allt
small, svona hefur þetta verið frá
fyrsta degi - frá því hugmyndin
kviknaði þangað til ég opnaði og
fram til dagsins í dag,“ segir
hann glaður í bragði. Frá því að
staðurinn opnaði hefur Borgin
iðað af lífi og ekki liðið sá dagur
sem ekki hefur verið fullt að
gera, fullsetið öll hádegi á virkum
dögum og nóg að gera á kvöldin.
Þórarinn sér einnig um matinn
fyrir skólann á Skagaströnd en
þann samning við sveitarfélagið
segir hann hafa verið grund-
völlinn fyrir því að hann gat
ráðist í að opna staðinn, að hafa
þá föstu tekjulind.
Þórarinn þurfti einungis að
gera minni háttar breytingar á
staðnum en að öðru leyti var
hann í raun tilbúinn til reksturs.
Fjölskylda hans verður áfram í
Mývatnssveit fyrst um sinn á
meðan Þórarinn kemur veit-
ingarekstrinum af stað en því
fylgir mikil vinna og eru
dagarnir hans á Borginni langir.
„Þetta er búið að vera mikil
vinna. Ég var einn í september
en er nú búinn að ráða mér
kokk, svo hef ég ráðið stelpu sem
þjónar á kvöldin en ég þarf að
bæta við manneskju,“ segir
Þórarinn en opnunartímar
Borginnar eru frá kl. 10:00 til
21:00 á kvöldin en á föstudögum
er opið lengur, til kl. 1:00 en á
laugardögum er opið frá kl.
11:30 til 1:00 og á sunnudögum
frá kl. 11:30 til 21:00.
Þórarinn ætlar að blása til
sérstakra viðburða til að brjóta
upp daglegt starf veitinga-
staðarins og ætlar að bjóða upp á
fjölbreyttar matarupplifanir í
takti við þemað sem hann
vinnur með hverju sinni. Sá
fyrsti verður nú um helgina,
dagana 24. og 25. október, þá
mun Þórarinn galdra fram sjö
rétta villibráðarmatseðil með
sérvaldri íslenskri villibráð, þar
með talið gæs, lunda, villtan
silung, hreindýr og íslenska osta.
Verður þetta gert að fyrirmynd
villibráðarveislu sem Þórarinn
stóð fyrir á Hótel Reynihlíð og
hafði gefið góða raun og nú vill
hann taka upp þráðinn á
Skagaströnd. Helgina þar á eftir
ætlar hann að slá upp villi-
bráðarhlaðborði, föstudaginn og
laugardaginn 31. október og 1.
nóvember, en eftir hlaðborðið á
laugardagskvöldið er ætlunin að
halda ball í Borginni.
Þegar jólamatseðil Borgar-
innar bar á góma nefndi Þórar-
„Einu sinni afgreiddum við
7500 manns, þrjá daga í röð.
Á þeim tveimur árum sem ég
var þar var þetta langsamlega
stærsta dæmið og ég fékk að
gera sósuna fyrir þessa veislu.
Þá var kálfakjöt í matinn borið
fram á fati, ásamt grænmeti
og kartöflum og sósan var í
skál með. Þegar svona er þarf
að gera meiri sósu en notuð er
þannig að ég gerði 1100 lítra af
sósu þennan dag.“
inn hvern girnilega réttinn á
eftir öðrum sem hann mun
reiða fram til að koma
matargestum í hátíðarskapið.
Jólamatseðill verður helgina 28.
og 29. nóvember en hlaðborð
helgina 5. og 6. desember,
helgina þar á eftir verður svo
aftur matseðill. „Þá gerum við
það svolítið á danska mátann og
byrjum á því að láta fólk hafa
úrval af síld og rúgbrauð, svo
kemur lifrapate með beikoni og
sveppum. Næst verður boðið
upp á rækjur og loks kemur
jólasteikin sjálf. Í eftirrétt verður
Ris a la mande. Þannig að þú
færð jólamatinn borinn til þín á
disk en hlaðborðið verður með
öllu því húllum hæi sem við
þekkjum.“
Það er því í mörg horn að líta
hjá Þórarni næstu mánuði en
hann segist líta björtum augum
á framtíðina. Hann segir tilfinn-
inguna að vera kominn aftur til
Skagastrandar afar sérstaka,
hann hafi oft komið í heimsókn
en ekki stoppað af neinu viti.
„Að finna dásamlega sjávar-
loftið á ný, hlusta á sjávarniðinn
og heyra bátana sigla inn
höfnina. Svo að sjá fjallið mitt,
Spákonufellsborgina, eins og ég
kalla það og við Skagstrendingar.
Við segjum að þetta sé fallegasta
fjallið á landinu þó víðar væri
leitað – það er Borgin, og þess
vegna heitir staðurinn minn
Borgin. Mér finnst að mér hafi
verið ætlað að koma hingað og
gera nákvæmlega þetta,“ segir
Þórarinn að endingu.
Söfnin líklega lokuð í
einhverja mánuði
Í september voru opnuð
tilboð í uppsetningu lyftu og
endurbætur á Safnahúsi
Skagfirðinga, sem hýsir
Héraðsskjala- og Héraðs-
bókasöfn Skagfirðinga.
Kostnaðaráætlun var uppá
76.845.855 krónur og bárust
tvö tilboð í verkið. Annað var
frá K-tak ehf. að upphæð kr.
78.874.901 (102,6%) en hitt
frá Trésmiðjunni Ýr ehf. á kr.
79.661.043 kr. (103,7%).
Á síðasta fundi byggðaráðs
Sveitarfélagsins Skagafjarðar
var samþykkt að ganga til
samninga við K-tak, ásamt því
að panta lyftu í húsið. Var
sviðsstjóra veitu- og fram-
kvæmdasviðs falið hvort
tveggja. Ekki er gert ráð fyrir
allri framkvæmdinni á fjár-
hagsáætlun sveitarfélagsins
2014, en það sem út af stendur
verður sett á framkvæmda-
áætlun ársins 2015. Ekki er
þörf á að breyta þriggja ára
áætlun 2015-2017 vegna þessa.
Á meðan á framkvæmd-
um stendur verður að loka
söfnunum. Framkvæmdir
munu hefjast 7. nóvember
en Þórdís Friðbjörnsdóttir,
forstöðumaður Héraðsbóka-
safnsins, segir því miður ekki
hægt að segja til um hversu
lengi þær standa. Hún segir
að á meðan framkvæmdum
standi verði tækifærið notað
og safnkosturinn skráður í
Landskerfi bókasafna, Gegni.
Því verði að innkalla allar þær
bækur sem eru í útláni fyrir 6.
nóvember. /KSE
Framkvæmdir við Safnahús Skagfirðinga
Stór verkefni framundan
Vetrarstarf Karlakórs
Bólstaðarhlíðarhrepps hófst
í vikunni í Húnaveri. Mikil
dagskrá er framundan en
ákveðið var að æfa upp lög
sem að Vilhjálmur Vil-
hjálmsson og Ellý Vilhjálms
gerðu ódauðleg.
Verður sú dagskrá flutt á
nýju ári. Einnig er framundan
90 ára afmæli kórsins á næsta
ári og verður haldið upp á það
með einhverjum hætti á vori
komanda.
Síðast en ekki síst hefur
verið ákveðið í samráði við
Íslendingafélagið í Gimli, að
kórfélagar verði aðalgestir á
Íslendingadeginum í Gimli í
Kanada í byrjun ágúst á næsta
ári. Það er því mikið og spenn-
andi starf framundan.
Kórinn tekur nýjum kór-
félögum opnum örmum og er
ekkert annað að gera en að
mæta á æfingu eða setja sig í
samband við kórfélaga. Æft er
á mánu- og fimmtudögum
kl. 20:30 í Húnaveri nema
annað sé tekið fram, eins og
fram kemur á vefnum huni.is.
/KSE
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps