Feykir - 23.10.2014, Side 8
8 40/2014
Íslandsmeistaramót í Kínaskák
Fyrsti Íslandsmeistarinn
úr Húnaþingi vestra
Fyrsta Íslandsmeistaramótið
í Kínaskák var haldið á
Akureyri um síðastliðna
helgi. Þar mættust sex
spilaklúbbar, þrír voru úr
Húnaþingi vestra, einn frá
Akureyri og tveir af
Austurlandi en samtals voru
31 keppandi á mótinu. Mótið
tókst mjög vel og hefur verið
ákveðið halda það aftur að ári
liðnu.
Kínaskák er spiluð með þremur
spilastokkum ásamt níu jóker-
um. Eitt spil eru átta umferðir
og líkist það að einhverju leyti
rommý. Ekki er vitað um
uppruna spilsins en forsprakki
Íslandsmeistaramótsins lærði
það í Húnaþingi vestra, en
þangað kom það frá Borgarnesi.
„Eftir að hafa flutt austur á
Reyðarfjörð var það ofarlega á
forgangslista að kenna Reyðfirð-
Sigríður Hjaltadóttir Íslandsmeistari lengst til vinstri.
ingum spilið og fljótlega var
einnig haldin kennsla á Egils-
stöðum,“ segir Helga Hinriks-
dóttir í samtali við Feyki. Á
Egilsstöðum var myndaður
klúbbur og skoruðu Reyðfirð-
ingar á Héraðsbúa á Austur-
landsmót, sem haldið hefur ver-
ið tvisvar þegar þetta er skrifað.
Það voru Akureyringarnir í
klúbbnum Philó sem sigruðu
sem lið en Sigríður Hjaltadóttir
úr Víðidal í Húnaþingi vestra
hlaut titilinn fyrsti Íslandsmeist-
arinn í Kínaskák. /BÞ
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
Gunnhildur
NAFN: Gunnhildur Gísladóttir.
ÁRGANGUR: 1986.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Trausti Valur Traustason er betri helming-
urinn og saman eigum við tvo syni Gísla Frank 4 ára og Hrólf
Leví 2 ára.
BÚSETA: Nýkomin með nýtt heimilisfang í dreifbýlinu sem er
mikill kostur Syðri-Hofdalir er nýja heimilið.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN/N: Ég er dóttir Imbu Lenu
Agga Sveins og Gísla í Álftagerðisbræðrum. Fyrstu árin var
ég alin upp í stórveldinu Háuhlíð 3 og síðan í Álftagerði.
STARF / NÁM: Ég er með grunnskólapróf frá Varmahlíðarskóla,
stúdentspróf frá Fjölbraut í Breiðholti og grafískt próf og
ljósmyndapróf frá Iðnskólanum í Reykjavík. Núna vinn ég við
að taka myndir af Skagfirðingum.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Ný eldhúsinnrétting og Glasgow í nóvem-
ber. Síðan á “ég” eftir að mála úr nokkrum lítrum áður en það
koma jól.
Hvernig nemandi varstu? -Ég hef
sennilega talað meira en góðu hófi
gegnir. En ég var mjög góð í því sem
mér fannst skemmtilegt, meðal í
því sem var minna skemmtilegt og
afburða léleg í stæðfræði.
Hvað er eftirminnilegast frá ferm-
ingardeginum? -Fermingaskórnir
mínir, rosalega ljótir skór.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? -Ég ætlaði alltaf að
verða dýralæknir.
Hvað hræðistu mest? -Áður en ég
átti börn þá var ekkert sem hræddi
mig meira en æla. Það er sem
betur fer liðið hjá, en annars er það
mikil hæð, þröng rými og svo get
ég varla sagt frá því síðasta verandi
alin upp í sveit….hænur, ég get
ekki hænur.
Besti ilmurinn? -Lavender og lyktin
af nýfæddu barni, hún er rosaleg.
Hvað varstu að hlusta á þegar
þú fékkst bílprófið? -Það hefur
pottþétt verið eitthvað íslenskt sem
jafnaldrar mínir hafa ekki verið að
hlusta á.
Hvaða lag er líklegast að þú takir
í Kareókí? -Eitthvað sem ég á
klárlega eftir að gera, tek þessa
eins og hraðaspurningu, skrifa
fyrsta lagið sem kom upp í hugann:
Total Eclipse of the Heart.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu? -Heimsókn. Það er
sennilega forvitnin,
Besta bíómyndin? -Engin ákveðin
bíómynd sem hefur þennan stimpil
en Denzel Washington og Sean
Connery eiga það sameigilegt að
vera í miklu uppáhaldi.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? -Þessi er
auðveld það er að sjálfsögðu
körfuboltahetjan úr Blönduhlíðinni,
Axel Kárason.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir á
þínu heimili? -Finna staði fyrir dót
sem enginn veit hvað á að gera við.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? -Æ ég er bara svona
meðalkokkur, reyni að dassa nógu
mikið og dvelja ekki lengur en ég
þarf þar inni. Trausti sagði Lasagna.
Hættulegasta helgarnammið?
-Möndlur og rúsínur blandað
saman við kókosflögur…okey þetta
var grín, súkkulaði er veikleiki.
Hvernig er eggið best? -Pakkað í
plast með gulum unga á toppnum.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari þínu? -Frestunaráráttan og
hvað ég er fljót að fara úr einu í
annað.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari annarra? -Ég á erfiðast með
að hafa þolinmæði fyrir þráhyggju.
Uppáhalds málsháttur eða til-
vitnun? -Less is more, svo er bara
að temja sér að fara eftir því.
Hver er elsta minningin sem þú
átt? -Þegar Hella systir mömmu
fann 4 blaða smára á Akreyri og
splæsti einni ósk á mig og son
sinn. Ég óskaði að ég fengi bleikan
dúkkuvagn. Svo var það mjög skírt
að það mætti ekki segja frá henni
þá myndi hún ekki rætast. Ég
passaði mig á því að trúa réttum
manni fyrir óskinni sem lét hana
rætast.
Hvaða teiknimyndapersóna höfð-
ar mest til þín? -Næsta spurning.
Hvaða fræga manneskja mundir
þú helst vilja vera? -Innihalds-
lausar spurningar fá innihaldslaust
svar. Angelina Jolie – ekki bara af
því að hún er svo sæt heldur af því
að hún er gift Brad Pitt.
Hver er uppáhalds bókin þín
og/eða rithöfundur? -Bækur
sem ég les þurfa að vera svolítið
spennandi til þess að hvetja mig
áfram við lesturinn. En annars
fannst mér Konan í dalnum og
dæturnar sjö stórmerkileg bók.
Anna frá Stóruborg er líka bók sem
ég þarf að lesa aftur. Dalalíf kom
líka skemmtilega á óvart. Annars
er Náðarstund á náttborðinu núna
og mig langar helst að loka mig af
þangað til hún er búin.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? -Ég blóta of mikið.
Hver var mikilvægasta persóna
síðustu 100 ára að þínu mati?
-Amma Fríða.
Ef þú gætir farið til baka í
tímann, hvert færirðu? -Æ, lifum
bara í núinu og hættum að velta því
sem er liðið fyrir okkur, annars færi
ég sennilega bara aftur og bjargaði
risaeðlunum frá útrýmingu, já eða
geirfuglinum.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? -Það yrði aldrei nein
ævisaga, ég myndi alltaf fresta
útgáfu.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, þá
færirðu... í sól, bláan himin og
H&M.
Spennuþrungin andartök í Kínaskákinni.