Feykir - 23.10.2014, Qupperneq 10
10 40/2014
Húsfreyjurnar á Vatnsnesi
Hinar árlegu sviðamessur húsfreyjanna á Vatnsnesi
fóru fram í Hamarsbúð um síðustu helgi og helgina
þar á undan. Að sögn Kristínar Jóhannesdóttur í Gröf
á Vatnsnesi var mætingin heldur minni en oft hefur
verið, enda æ fleiri aðilar farnir að standa fyrir
sviðamessum. Engu að síður komu rúmlega fimmtíu
manns hvert kvöld en sviðamessurnar voru
þrjár þetta árið og eru orðnar alls 37 á fjórtán árum.
Á sviðamessu er boðið upp á hinar fjölbreyttustu útfærslur af
sviðum, heit og köld svið, strjúpasöltuð svið, sviðalappir, reykta
sviðasultu og reykt kviðsvið, ásamt kartöflumús og rófustöppu.
Sláturhúsið á Hvammstanga gefur hráefni til húsfreyjanna sem
aftur gefa ágóðann til góðgerðarmála í héraði. Veislustjórar voru
Magnús Níelsson úr Borgarnesi, sem sá jafnframt um tónlistar-
flutning fyrsta kvöldið, Þorgrímur Guðbjartsson á Erpstöðum í
Dölum annað kvöldið og sáu þá Húnvetningarnir Sigurður
Ingvi Björnsson og Þorvaldur Pálsson um tónlistarflutning.
Þriðja og síðasta kvöldið var Kristín S. Einarsdóttir á Sauðárkróki
veislustjóri en Skúli Einarsson á Tannstaðabakka lék undir
fjöldasöng.
Meðfylgjandi myndir tóku Kristín S. Einarsdóttir, Rakel
Runólfsdóttir og Kristín Jóhannesdóttir sl. laugardagskvöld. /KSE
Sviðamessur í
Hamarsbúð
Skagafjörður
boðið í gimbrarlömb. Var síð-
asta gimbrin slegin á 35 þúsund
krónur, en þá var líka uppboðs-
haldarinn kominn í gott stuð og
reytti af sér brandara og sagði
sögur af gömlum sveitungum
sínum á þessu svæði. Talsvert
var selt af lömbum á deginum
utan uppboðsins ekki síst
dökkum og mislitum og tókst
samkoman vel og var þeim til
sóma er að henni stóðu. /ÖÞ
Líflambadagur á Melstað vel sóttur
Fjölmenni var samankomið á
Melstað í Óslandshlíð þegar
Líflambadagur var haldinn
þar í fyrsta sinn. Að deginum
stóðu tvö fjárræktarfélög þ.e.
Hjaltadals- og Viðvíkursveitar
og gömlu Fells-og
Hofshreppa.
Dagurinn hófst með sýningu
á lambhrútum. Besti hrúturinn
var frá Ytri-Hofdölum en þar á
eftir komu lömb frá Mann-
skaðahóli, Melstað og Skúfstöð-
um. Seinni liður dagskrárinnar
var uppboð á lömbum og var sá
kunni fjölmiðlamaður Gísli
Einarsson uppboðshaldari.
Ekki reyndist áhugi á að bjóða í
þau hrútlömb sem í boði voru
hinsvegar var þeim mun meira
Frá vinstri Jóhanna á Skúfstöðum, Loftur á Melstað, Bjarni á Mannskaðahóli og
Þórarinn á Ytri-Hofdölum með efstu lambhrútana á sýningunni.
Gísli vígalegur með hamarinn en Ragnheiður í Brimnesi heldur í lamb sem er um
það bil að fá nýjan eiganda.