Feykir - 23.10.2014, Qupperneq 11
40/2014 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar gæti kannski
skellt sér á Menningarkvöld NFNV?
Spakmæli vikunnar
Af hverju lendum við ekki í öllum lífsins vandamálum þegar við
erum sautján ára og vitum allt? - A. C. Jolly
Sudoku
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... gíraffar geta ekki synt?
... 75% allra landa heimsins eru norðan miðbaugs?
... það tekur 4 tíma að harðsjóða strútsegg?
... það eru engar ár í Saudi Arabaíu?
... í bensíntanki júmbóþotu er nógu mikið bensín til að aka
venjulegum fjölskyldubíl fjórum sinnum í kringum jörðina?
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Hahahahaha...
Konan við húsbóndann: „-Vinur þinn er kominn, hann Kristinn sem þú
hefur ekki hitt í langan tíma!“ „-Ég vil ekki hitta hann, segðu honum
að ég sé ekki heima.“ Konan hlýðir húsbóndanum og fer til vinar hans
og segir: „Því miður er hann ekki heima!“ Vinurinn segir: „Já, það er
þannig. Segðu honum þá að ég hafi ekki komið!“
Krossgáta
SÆÞÓR MÁR HINRIKSSON
-Nei, ég hef ekki enn farið,
en hver veit nema maður skelli sér.
GUÐJÓN ÖRN JÓHANNSSON
-Nei, en sendi stelpurnar mínar
sem höfðu gaman af.
STEFÁN VAGN STEFÁNSSON
-Nei, á pantað á morgun.
Hlakka mikið til.
HALLGERÐUR ERLA
-Nei, því miður. Ég ætlaði að fara í
gær en komst ekki.
Fiskisúpa sem slær
rækilega í gegn
FORRÉTTUR
Fiskisúpa
500-600 gr fiskur
(hvaða tegund sem er)
100-150 gr rækjur
½ msk ólífuolía
1 stk laukur, smátt saxaður
1 stk paprika(hvaða lit sem er)
skorin smátt
2-3 stk gulrætur,
í þunnar sneiðar.
2-3 hvítlauksrif, marin
1 dós niðursoðnir tómatar
8 dl mjólk
2 dl matreiðslurjómi/rjómi
2 stk fiskiteningar
1 tsk timjan
salt og pipar
½ dl fersk steinselja, smátt
söxuð til skrauts
Aðferð:
Mýkið lauk og hvítlauk í
ólífuolíunni í potti við vægan
hita. Bætið gulrótunum og
paprikunni saman við og síðan
tómötunum. Látið malla í
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
„Við þökkum Hjördísi systir
kærlega fyrir þessa áskorun
enda ekkert skemmtilegra að
grúska í gamlar matarbækur og blöð og finna eitthvað sniðugt
sem maður hefur gert áður,“ segir Sólrún Heiða Sigurðardóttir
en hún og Jakob Ingi Helgason eru matgæðingar vikunnar.
„Vúhú, það hlakkaði svo í mér að velja næsta matgæðing, þar
sem við systurnar erum svo margar þá ætlum við að velja Gullu
okkar, Guðlaugu Ósk, sem næsta matgæðing.“
„Það er bara svo margt um að velja og ekki kemst allt í einu svo
við völdum fiskisúpu sem forrétt. Þessa fiskisúpu gerðum við
starfsfólkið í eldhúsinu á leikskólanum Akraseli fyrir Birtu-fund
og sló svona rækilega í gegn svo skemmir ekki að hafa gott
hvítlauksbrauð með. Í aðalrétt er það vinsæli kjúklingarétturinn.
Maður finnur ekki auðveldari kjúklingauppskrift enn þessa enda
ekkert sem þarf í hana og hann er líka dásemdin ein.“
Sólrún Heiða og Jakob Ingi sendu einnig uppskrift að eftirrétti
en vegna plássleysis bíður hann birtingar í næsta blaði.
nokkrar mín. Bætið mjólkinni
útí og fiskiteningunum. Kryddið
með timjan, salt, pipar og bætið
síðan matreiðslurjómanum/
rjómanum útí. Síðan er fiskinum
og rækjunum bætt út í súpuna og
látið rétt hitna í gegn áður en
súpan er borin fram.
Ef þið viljið hafa hana aðeins
meiri fancy...
1 ½ dl hvítvín má bæta við enn
þá minnkið annan vökva, mjólk
eða rjómann sem nemur, t.d um
1 ½ dl hvítvíni. Restina vitið þið
alveg hvað er hægt að gera við,
skál í botn. (Gott er að gera
grunninn að súpunni allt nema
rjómann, hvítvínið (ef við á)
fiskinn og rækjurnar með
nokkrum fyrirvara t.d. nokkrum
klukkustundum eða daginn áður
og þá er hún geymd í kæli og
hituð upp með öllu sem fer í
hana.)
AÐALRÉTTUR
Kjúklingur í
pestóhlynsírópi
4 stk kjúklingabringur
1 krukka rautt pesto
½ flaska af hlynsírópi
Aðferð:
Pesto og hlynsíróp hrært saman,
kjúklingurinn lagður í eldfast
mót og pesto sósunni hellt yfir.
Hafið kjúklingabringurnar þiðn-
ar í þennan rétt svo sósan haldi
sínu. Svo fer þetta inn í ofn á
200°C í um 35-45 mín. eða bara
þar til kjúklingurinn er steiktur í
gegn.
Meðlæti:
Gott ferskt salat og hrísgrjón.
Auðveldara getur það bara varla
verið.
Verði ykkur að góðu!
Sólrún Heiða.
DAGNÝ HULD
GUNNARSDÓTTIR
-Nei, ég er ekki búin að því
en ég ætla mér að fara.
Feykir spyr...
[SPURT 20. OKTÓBER
Á FACEBOOK]
Ertu búin/n
að fara á Emil
í Kattholti í
Bifröst?
Sólrún Heiða og Jakob Ingi matreiða