Feykir - 23.10.2014, Qupperneq 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
40
TBL
23. október 2014 34. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Skvetta handverk
Gaf 50 þúsund
Skagfirðingurinn Hólmfríður
Lilja Böðvarsdóttir hjá Skvettu
handverki hannaði og seldi
falleg armbönd með Bleiku
slaufunni á 2.000 kr. í
október.
Af hverju seldu armbandi
rann 1.000 kr. til styrktar Krabba-
meinsfélaginu. Hólmfríður af-
henti félaginu styrk að upphæð
50 þúsund krónur sl. föstudag.
Hólmfríður er frá Brúna-
stöðum í Lýtingsstaðahreppi
hinum forna en er nýflutt í Kópavoginn. Hún ætlar að
vera með söluborð á markaði sem auglýstur hefur verið í
Húsi frítímans á Sauðárkróki laugardaginn 1. nóvember
og þar verður m.a. hægt að fá armböndin vinsælu. /KSE
Taumlaus bræðraskemmtun í Miðgarði
Óskar, Magni og Valmar léku og sungu uppáhaldslögin
Snillingarnir Óskar Péturs Álftagerðisbróðir,
Valmar Valjaots Hvanndalsbróðir og Magni
Ásgeirs litli bróðir, spiluðu uppáhaldslögin sín og
sögðu sögur á milli laga á eldhressum tónleikum í
Miðgarði laugardagskvöldið 18. október.
Þeir félagar hófu leik með því að syngja Fyrr var oft
í koti kátt en síðan renndu þeir í hvern slagarann af
öðrum og frá byrjun voru gestir að taka vel undir. Lög
eins og Reyndu aftur, Bíddu við, Hamraborgin, Bjössi
á mjólkurbílnum, Sem lindin tær og að sjálfsögðu Ég
er kominn heim fengu að hljóma.
Stóri bróðir Magna, Áskell Heiðar Ásgeirsson, stóð
fyrir tónleikunum og í hléi kynnti hann til sögunnar
eystborgfirska skáldið Ásgrím Inga Arngrímsson sem
flutti nokkur brosleg ljóð af kæreyleysislegum alvöru-
þunga. Tónleikarnir voru vel sóttir. /ÓAB
Það má finna ýmislegt í Vélavali
Stívél og vettlingar
Reiðskór
Regnföt
Í haustverkin:
Hnífar, brýni,
frystipokar
bjúgnalangar, kjötnet,
nitritsalt o.fl.
fyrir haustverkin
Hólmfríður Lilja afhenti
Krabbameinsfélaginu 50
þúsund króna styrk.