Feykir - 08.01.2015, Page 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
1
TBL
8. janúar 2015 35. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Norðurland vestra
Áramótum fagnað
í rjómablíðu
Áramótunum var fagnað í blíðskaparveðri á
Norðurlandi vestra, veðurstilla var í lands-
hlutanum og aðstæður kjörnar til að kveikja
brennu og skjóta upp flugeldum.
Meðfylgjandi myndir eru frá glæsilegum flugelda-
sýningum Björgunarfélagsins Blöndu á Blönduósi og
Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar. Mikill fjöldi
fólks safnaðist saman til að fylgjast með sýningunum
við stóra bálkesti sem tendraðir voru skömmu áður.
Fleiri myndir á Feyki.is. /BÞ
Mynd frá Sauðárkróki: Berglind Þorsteins.
Mynd frá Blönduósi: Höskuldur B. Erlingsson
Skagfirðingarnir Sigurður Hansen frá Kringlumýri og
Magnús Pétursson ríkissáttasemjari og fyrrverandi
ráðuneytisstjóri frá Vindheimum voru á nýársdag
sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við
hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Sigurður fékk riddarakrossinn fyrir framlag sitt til
kynningar á sögu og arfleifð Sturlungaaldar og Magnús
fyrir störf í opinbera þágu. Alls voru ellefu sæmdir
heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. /BÞ
Heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu
Tveir Skagfirð-
ingar sæmdir
riddarakrossi
Skagfirðingarnir Magnús Pétursson og Sigurður Hansen er þeir voru
sæmdir riddarakrossi á Bessastöðum. LJÓSM: SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR