Feykir - 05.02.2015, Page 1
FERSKUR Á NETINU
Feykir.is
Hvað er
að frétta?
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á
feykir@feykir.is
á
BLS. 6-7
BLS. 8
Textílnemar og
-listamenn fá innblástur í
Kvennaskólanum
Náttúran, birtan
og stemningin
heilla
BLS. 9
Viðtal við Sólveigu
Jónasdóttur í Stóragerði
„Fannst ég knúin
til að leggja mitt
af mörkum“
Nýir eigendur taka
Víðigerði í gegn
„Okkur langaði
að breyta til“
5
TBL
5. febrúar 2015
35. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
100 ára kosningaafmæli kvenna fagnað
Samband skagfirskra kvenna hélt afmælisfagnað í Menningarhúsinu Miðgarði
Konur voru hvattar til að koma í íslenskum búningi á hátíðina. Náðist að smala 35 konum í upphlut eða peysufötum á mynd. MYND: KSE
Síðasta sunnudag stóð Samband
skagfirskra kvenna fyrir afmælis-
fagnaði í Menningarhúsinu í Miðgarði
þar sem þess var minnst að 100 ár
eru í ár liðin frá því að íslenskar konur
fengu kosningarétt. Boðið var upp á
vandaða og fjölbreytta dagskrá og
kaffiveitingar á eftir.
Sigrún Fossberg flutti erindi Sólborgar
Unu Pálsdóttur um kosningarétt og
kjörgengi kvenna. Sigurveig Anna Gunn-
arsdóttir, nemi við FNV, ræddi um
væntingar ungrar stúlku til framtíðarinn-
ar og Björg Baldursdóttir flutti erindi í
gamansömum dúr, þar sem hún velti
meðal annars fyrir sér breytingum á
hlutverki kvenna. Kvennakórinn Sóldís
söng, undir stjórn Sólveigar S.
Einarsdóttur.
Stjórnarkonur í Sambandi skagfirskra
kvenna sögðust ánægðar með hvernig til
tókst og mætingin hefði verið framan
vonum. Fjöldi kvenna mætti íslenskum
búningum eða handprjónuðum flíkum,
sem setti skemmtilegan svip á viðburðinn.
Hátíðin var styrkt af Sveitarfélaginu
Skagafirði, Kaupfélagi Skagfirðinga og
Nefnd um 100 ára kosningarétt kvenna á
Íslandi. /KSE
Á fundi Rótarýklúbbs Sauðárkróks
fimmtudaginn 23. janúar afhenti
Pétur Bjarnason forseti Rótarý-
klúbbsins fulltrúum Kiwanisklúbbs-
ins, þeim Jónasi Svavarssyni og
Gunnari Péturssyni, fjárstyrk að
fjárhæð 400.000 kr. Styrkurinn
rennur í söfnunarsjóð til kaupa á
nýju speglunartæki fyrir Heilbrigðis-
stofnunina á Sauðárkróki til
skimunar fyrir ristilkrabbameini.
Er þar um að ræða ágóðann af
fjölsóttu jólahlaðborði sem Rótarý-
klúbburinn stóð fyrir þann 29. nóvem-
ber sl., með dyggri aðstoð fyrirtækja og
einstaklinga úr sveitafélaginu. „Var
gestum og gangandi boðið til hlaðborðs
í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki og voru
Ágóði jólahlaðborðs rennur til
kaupa á nýju speglunartæki
Rótarý-menn veita söfnun Kiwanis-manna lið
600 ókeypis aðgöngumiðar í boði.
Viðburðurinn heppnaðist ákaflega vel
og var talið vel við hæfi að styrkja
verðugt verkefni Kiwanisklúbbsins
með ágóðanum,“ segir Magnús Barðdal
Reynisson Rótarýmaður. /BÞ
Pétur, Jónas, Gunnar og Ómar Bragi við af-
hendinguna. MYND: RÓTARÝKL. SAUÐÁRKRÓKS