Feykir - 05.02.2015, Síða 2
2 5/2015
Lífið úthlutar okkur ýmsum verkefnum og þær eru misbrattar
brekkurnar sem okkur er ætlað að klífa. Ein þeirra sem fengið
hefur að kynnast þessu er Sólveig Jónasdóttir í Stóragerði í
Skagafirði, en hún er í opnuviðtali Feykis að þessu sinni.
Eiginmaður Sólveigar, Gunnar
Þórðarson, greindist með MND
sjúkdóminn árið 2008 þegar
þau höfðu nýlega söðlað um og
byggt upp Samgönguminjasafn
af miklum myndarbrag ásamt
því að gróðursetja mikinn fjölda
trjáplantna á jörðinni. Bíla-
dellunni deilir Sólveig með
eiginmanninum og á sama hátt
hefur hún verið honum stoð og
stytta í veikindunum.
Eins og fram kemur í viðtalinu
er MND ólæknandi sjúkdómur sem gengur oft hratt fyrir sig.
Segja má að menn verði fangar í eigin líkama, þar sem um
lömun er að ræða en sjúkdómurinn veldur ekki heilabilun.
MND er í minni hluta tilfella arfgengur heldur orsakast hann
af stökkbreytingu í genum. Undanfarin ár hafi óvenju margir
Íslendingar greinst með MND. Þannig voru um 20 sjúklingar
í MND félaginu þegar Sólveig gekk til liðs við það, en nú eru
félagar rúmlega þrjátíu.
Góðu fréttirnar eru þær að ýmsar rannsóknir eru í gangi.
„Það er heilmikið að gerast í þeim heimi, sem betur fer. Þessi
ísfötuáskorun hún gerði kraftaverk, algjört kraftaverk,“ sagði
Sólveig í samtalinu. Og ekki veitir af, því sjaldgæfir sjúkdómar
á borð við MND eru ekki efst í forgangsröð rannsakenda og
lyfjafyrirtækja.
Um þessar mundir taka Íslendingar þátt í mjög stórri
alþjóðlegri rannsókn. Er það í fyrsta skipti sem að Íslendingar
eru rannsakaðir sérstaklega, en íslenskur læknir búsettur í
Danmörku mun stýra þeirri rannsókn. Þess má geta að þegar
hefur verið skilgreint að einkenni Íslendinga með MND eru
aðeins öðruvísi en annarra. Helst má finna samsvörun meðal
MND veikra í Japan. Þá hefur verið gerð mjög athyglisverð
genarannsókn sem bendir til að þeir sem hafa greinst eiga
flestir sameiginlegan forföður, sem uppi var í kringum árið
1500.
Þrátt fyrir að sjúkdómurinn sé ólæknandi er alltaf verið að
þróa lausnir sem bæta eiga lífsgæði fólks með MND. Um
nokkurt skeið hafa verið til lyf sem talin eru hægja á gangi
sjúkdómsins og tæki sem örva þindina, aðstoða við öndun
og hósta. Sömuleiðis má nefna meðhöndlun taugaverkja. Þá
hefur umönnun og eftirfylgni þróast í áranna rás.
En betur má ef duga skal og með stuðningi við MND
félagið og þátttöku í verkefnum á borð við ísfötuáskorunina
getur hver og einn lagt sitt af mörkum. Tákn MND félagsins er
kletturinn og það má sannarlega yfirfæra á fólk eins og
Sólveigu í Stóragerði sem stendur sem klettur við hlið
eiginmannsins í hans æðrulausu baráttu.
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Brekkur lífsins Veruleg stefnubreyting að mati þingmanns
Umræða um skólagjöld við Háskólann á Hólum
Nokkur umræða hefur
spunnist um hugsanlega
upptöku skólagjalda við
háskólana á Hvanneyri og
Hólum. Í svari Mennta- og
menningarmálaráðherra við
fyrirspurn Katrínar
Jakobsdóttur á Alþingi fyrr í
vikunni útilokaði hann ekki
breytt rekstrarform og kvaðst
opinn fyrir öllum hugmyndum.
Eins og fram hefur komið í Feyki
hefur mikil umræða spunnist
um mögulega sameiningu
skólanna tveggja og fjárhags-
vandræði þeirra.
Katrín spurði ráðherra jafn-
framt hvort gerð hefði verið
fýsileikakönnun af hálfu ráðu-
neytisins á annars vegar fag-
legum ávinningi og hins vegar
fjárhagslegum ávinningi af
sameiningu skólanna. Einnig
spurði hún um áform um
rekstrarform sameinaðs háskóla
og hvort til stæði að taka upp
skólagjöld eins og gert er á
Bifröst.
Katrín telur að ef tekin yrðu
upp skólagjöld til að mennta
bændur og fleiri stéttir, yrði það
„veruleg stefnubreyting sem
kallaði á miklu meiri umræðu á
vettvangi Alþingis ef sú væri
ætlunin.“ /KSE
Vetrarhátíð í Skagafirði
Mikill hugur
í skipu-
leggjendum
Hin árlega Vetrarhátíð í
Skagafirði verður haldin
dagana 19.-22. febrúar nk.
Það er Skíðadeild
Tindastóls sem hefur haft
veg og vanda af hátíðinni
en fengið til liðs við sig
fjölmarga aðila í
Skagafirði, svo sem
Sveitarfélagið Skagafjörð,
Skagfirðingasveit,
Slökkviliðið,
Sauðárkrókskirkju,
Byggðasafn Skagfirðinga
og fleiri aðila.
Í síðustu viku var hald-
inn spjallfundur um hátí-
ðina á Kaffi Krók, þar sem
aðilum að Félagi ferðaþjón-
ustunnar í Skagafirði gafst
tækifæri til að kynna sér
hátíðina og taka þátt í
undirbúningi og framkvæmd
hennar.
Mikill vilji er fyrir
þátttöku sem flestra aðila á
svæðinu og geta áhugasamir
komið hugmyndum að
viðburðum eða þjónustu
sem þeir vilja auglýsa
samhliða dagskrár hátíðar-
innar til verkefnastjóra,
Áróru Ragnarsdóttur, gegn-
um netfangið aroracalvert@
gmail.com. /KSE
Sveitarfélagið
Skagafjörður
Ákveðið hefur verið að
framlengja niðurfellingu á
gatnagerðargjöldum
tímabundið af byggingum
íbúðarhúsnæðis af hálfu
einstaklinga og verktaka á
lóðum við þegar tilbúnar
götur á Sauðárkróki,
Hofsósi og Varmahlíð.
Framlengingin, sem gildir
til 31. desember 2015, var
samþykkt á sveitarstjórnar-
fundi í síðustu viku. Nánari
upplýsingar um lausar lóðir er
að finna á heimasíðu Svf.
Skagafjarðar. /BÞ
Tímabundin
niðurfelling
gatnagerðar-
gjalda
framlengd
Minnir á að gera ráð-
stafanir með heimferð
Lögreglan á Norðurlandi vestra
Nú er tími þorrablótana í
algleymingi og því hefur
Lögreglan á Norðurlandi
vestra minnt á nokkur
heilræði sem gott er að hafa í
huga á þessum tíma sem
öðrum. Hálka og kuldi eru
dauðans alvara sem allir
þurfa að bera virðingu fyrir og
sérstaklega þegar haldið er
heim af blóti.
„Reynum því öll að passa upp
á hvort annað og fylgjast vel með
því að allir komi heilir heim. Þá
er líka vert að muna það að
akstur ökutækja eftir áfengis-
neyslu er bannaður á Íslandi,
jafnvel þótt það sé bara upp
heimkeyrsluna. Og að lokum;
göngum hægt um gleðinnar dyr
og skemmtum okkur fallega.
Þorrablótskveðja frá lögreglunni
á Norðurlandi vestra,“ segir á
fésbókarsíðunni. /KSE
Starfshópur skili til-
lögum í þessum mánuði
Uppbygging fjölnota íþróttahúss á Sauðárkróki
Íþrótta- og tómstundanefnd
Svf. Skagafjarðar samþykkti á
fundi sínum í gær tillögu um
skipun starfshóps, innan
Sveitarfélagsins Skagafjarðar,
sem komi með tillögu að
uppbyggingu vetraríþrótta-
aðstöðu á Sauðárkróki.
Starfshópurinn skal koma
með tillögu til félags- og
tómstundanefndar um
staðsetningu og gerð
mannvirkisins. Stefnt skal að
því að tillögur liggi fyrir í
febrúar.
Í fundargerð segir að
samkvæmt tillögunni skuli í
starfshópnum sitja: Formaður
félags- og tómstundanefndar
sem stýrir fundum, einn aðili frá
veitu- og framkvæmdasviði
sveitarfélagsins, einn frá fjöl-
skyldusviði sveitarfélagsins, einn
frá Árskóla, tveir frá Ung-
mennafélaginu Tindastóli og
einn frá UMSS. Fulltrúar Vinstri
grænna og óháðra sátu hjá við
afgreiðsluna og gerðu athuga-
semd við skipunina, telur að
höfða þurfi til breiðari hóps, eins
og segir í fundargerðinni.
Ómar Bragi Stefánsson,
formaður knattspyrnudeildar
Umf. Tindastóls, sagði að um
ánægjulegt skref sé að ræða í
áralangri baráttu fyrir bættri
aðstöðu, þegar Feyki leitaði
viðbragða frá honum við gerð
fréttarinnar. „Vonandi verður
góð samstaða um framhaldið,
það skiptir miklu máli þegar um
svona stórt verkefni er um að
ræða. Það er börnum og
unglingum á svæðinu til heilla
að klára málið alla leið.“ /BÞ