Feykir - 05.02.2015, Síða 5
5/2015 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR >> Þú finnur fleiri íþróttafréttir á www.feykir.is
Pardusfélagar standa sig
vel á Afmælismóti JSÍ
Júdó
Ort um
Guðrúnu frá Lundi
Mörg er kallar minning sterk
mig að vinafundi.
Finnst mér gott að grípa í verk
Guðrúnar frá Lundi.
Mér finnst sem ég þekki þar
þá sem um er skrifað.
Fá þar gefið sögu svar
sem er reynt og lifað.
Guðrún þar frá hugar hlíf
hæfði margan kjarna.
Fjöldinn allur las um líf
lands og þjóðar barna.
Hærra skráðir höfundar
heldur grettu fésin.
Fundu æ til öfundar
af því hún var lesin.
Hengdu þeir oft hatt sinn á
hina og þessa galla.
En Guðrún mátað gat samt þá
gjörsamlega alla.
Því að vinning þeim hún gaf,
þannig viljann hvatti.
Drjúgan hag þeir höfðu af
hennar söluskatti.
Hún þeim gerði göfug skil,
gjöldin þau ég kenni.
Þótt þeir litu lágt þar til,
lifðu þeir á henni.
Leidd af pundi hugar hrings
hélt hún áfram verki.
Átti hylli almennings
undir tryggðamerki.
Sást að hennar sögum réð
sigur góðra arta.
Andi er samleið átti með
Íslands þjóðar hjarta.
Þegar næði lífs við loft
lyftir vinafundi.
Skilar góðri skemmtun oft
skáldkonan frá Lundi.
FRÁ LESENDUM RÚNAR KRISTJÁNSSON YRKIR
Kapparnir í Júdófélaginu
Pardusi á Blönduósi stóðu sig
með prýði á Afmælismóti JSÍ í
yngri aldursflokkum, þ.e.
U13, U15, U18 og U21 árs,
sem fór fram í Reykjavík um
helgina. Keppendur á mótinu
voru 63 talsins frá níu
félögum, þar af átta frá
Pardusi.
„Í tölfræðinni yfir bestan
árangur gerði yngsta Júdófélag
Frímann Hilmarsson var í 3. sæti í Dr.U18 -73 á Afmælismóti JSÍ um sl. helgi.
MYND: JUDO.IS
Tindastólssigur í fyrsta leik
Knattspyrnudeild Tindastóls
M.fl. karla í knattspyrnu lék
sinn fyrsta leik á
undirbúningstímabilinu sl.
sunnudag þegar liðið spilaði
við KA2 í Boganum á
Akureyri.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá Knattspyrnudeild Tindastóls
hefur KA2 verið að ná góðum
úrslitum undanfarið, m.a. gerði
liðið jafntefli við 1. deildarlið
Þórs og sigraði KF 2-0 í
svokölluðu Kjarnafæðismóti en
þar hafnaði liðið í efsta sæti síns
riðils.
„Þetta var hinsvegar fyrsti
leikur okkar manna sem hafa
æft við afar erfiðar aðstæður
undanfarnar vikur undir stjórn
Sigga Donna og varla getað
sparkað í bolta. Æfingarnar hafa
flestar farið fram á svölunum
inni í íþróttahúsinu og í
tröppunum á sama stað þar sem
litli sparkvöllurinn hefur ekki
náð að bræða af sér,“ segir í
tilkynningunni.
Tindastóll sigraði hinsvegar í
leiknum og það var Ingvi
Hrannar Ómarsson sem skoraði
með skalla eftir fyrirgjöf frá
Pálma Þórssyni eina mark
leiksins. „Þrátt fyrir að KA væri
meira með boltann vörðust
okkar menn vel og uppskáru
sigur eins og áður sagði,“ segir í
tilkynningunni. /BÞ
landsins, Pardus á Blönduósi,
sér lítið fyrir og skutu sér fram
fyrir eldri og reyndari klúbba en
þeir urðu í öðru sæti á eftir JR.
Þessum árangri náðu þeir þrátt
fyrir að hafa verið á löngu
ferðalagi fyrir keppnina en þeir
lögðu af stað frá Blönduósi kl. 5 í
morgun og voru mættir til leiks
kl. 9,“ segir í frétt um mótið á
Júdó.is.
Árangur Pardusa var eftirfarandi:
Björn Jónsson
1. sæti í Drengir U13 -55
Helgi Heiðarr Sigurðarson
1. sæti í Drengir U13 -60
Daníel Heiðarsson
1. sæti í Drengir U15 -55
Viktor Heiðarsson
1. sæti í Dr. U18 -55
Benedikt Þór Magnússon
2. sæti í Drengir U13-30
Leon Paul Suska
2. sæti í Drengir U18 -66
Hlíðar Örn Steinunnarson
3. sæti í Drengir U13 -38
Frímann Hilmarsson
3. sæti í Drengir U18 -73
/BÞ
Verðlaunað fyrir bætingar
Fjöldi Skagfirðinga og Húnvetninga á Stórmóti ÍR
19. stórmót ÍR í frjálsíþrótt-
um fór fram í Laugardals-
höllinni í Reykjavík helgina
31. janúar-1. febrúar. Var
þetta fjölmennasta mótið frá
upphafi en um 800
keppendur voru skráðir til
leiks, frá 31 félagi eða
sambandi og þeirra á meðal
var fjöldi Skagfirðinga og
Húnvetninga.
Á mótinu var keppt í öllum
aldursflokkum, frá átta ára til
fullorðinna. Sú nýbreytni var
tekin upp að veita viðurkenn-
ingar í öllum keppnisgreinum
fyrir mestu framfarir, en það er
mögulegt með nýju mótaforriti
FRÍ. Því voru fjórir einstakl-
ingar kallaðir til verðlaunaaf-
hendingar í hverri grein, þrír
efstu og sá sem bætti
persónulegan árangur sinn
mest. Á íþróttasíðu Feykis.is
má sjá lista yfir persónulegar
bætingar og þau met sem
keppendur UMSS og USAH
settu á mótinu. /KSE
Tindastóll féll úr leik í DHL-höllinni
Körfuboltinn: KR - Tindastóll 88-80
Enginn var á ferli á götum
Sauðárkróks sl. mánudag og
mátti sennilega rekja það til
þess að þá fór fram leikur
Tindastóls og KR í DHL
höllinni í Reykjavík, en
leikurinn var sendur beint á
RÚV Sport. Leikurinn var
hörkuspennandi frá upphafi
til enda og endaði með því
að KR tryggði sér sæti í
úrslitaleik Powerade-
bikarsins með átta stiga
sigri, 88-80.
Hart var barist og úrslita-
bragur á leik liðanna, varnirnar
voru sterkar, liðin spiluðu fast
og leikmenn fengu ekkert
gefins. Þrátt fyrir að Stólarnir
hafi gefið allt sem þeir áttu í
leikinn og spilað vel á köflum
voru KR-ingar með yfirhöndina
allan tímann og Stólarnir voru
alltaf að elta Íslandsmeistar-
ana, en Tindastóll náði aldrei
forystunni í leiknum.
KR leiddi með fjórum
stigum, 21-17, að loknum 1.
leikhluta og voru yfir í hálfleik,
44-35. Stólarnir klóruðu í
bakkann í þegar líða tók á
leikinn þrátt fyrir takmarkaða
þátttöku hjá Myron Dempsey
sem ekki gekk heill til skógar
eftir að hafa meiðst í leiknum
gegn Njarðvík nokkrum
dögum áður.
Í fjórða leikhluta fóru
villuvandræði að há Tindastóli
og menn að detta á bekkinn
með 5 villur. Alls voru dæmdar
29 villur á gestina og fengu KR-
ingar 37 vítaskot í leiknum sem
þeir nýttu til að skora rúmlega
35% stiga sinna í heildina. KR
nýtti sér villuvandræði Tinda-
stóls einnig á annan hátt en þeir
hirtu sjö sóknarfráköst í fjórða
leikhluta og skoruðu í kjölfarið
9 stig og var það ansi dýrkeypt.
Stólarnir héldu allan leikinn
í við KR-inga en sem fyrr segir
höfðu Vesturbæingar sigur og
mæta Stjörnunni í Höllinni í
úrslitaleik Powerade-bikarsins.
Njarðvík - UMFT 107-99
Síðastliðinn fimmtudag léku
Stólarnir við Njarðvík suður
með sjó. Heimamenn byrjuðu
sterkt og rúlluðu yfir Stólana í
öðrum leikhluta. Hægt og
sígandi minnkuðu Tindastóls-
menn muninn í síðari hálfleik
og komust yfir rétt fyrir leikslok
en Njarðvíkingar jöfnuðu með
þristi og tryggðu sér framleng-
ingu þar sem þeir voru skrefinu
á undan gestunum og tryggðu
sér sigur, 107-99.
Næsti leikur er hér heima í
kvöld gegn ÍR. /BÞ og ÓAB