Feykir - 05.02.2015, Qupperneq 8
8 5/2015
„Okkur langaði
að breyta til“
Nýir eigendur taka Víðigerði í gegn
Hjónin Guðlaug
Jónsdóttir og
Hallgrímur
Hallgrímsson keyptu
veitingaskálann
góðkunna Víðigerði,
ásamt syni sínum
Kristni Bjarnasyni,
síðast liðið vor og
vinna nú að miklum
endurbótum á
staðnum. Staðurinn
hefur verið lokaður frá því í
október en áætlað er að
opna hann á ný um páskana.
Feykir heyrði í hinum nýju
eigendum og spurði þau út í
framkvæmdirnar.
Guðlaugur og Hallgrímur eru
úr Reykjavík og ráku
pizzastaðinn Hróa hött í
Hafnarfirði áður en þau
keyptu Víðigerði ásamt syni
sínum í maí síðast liðnum.
„Þetta var nú hrein ævintýra-
mennska, okkur langaði að
breyta til. Við vissum frá
upphafi að það þyrfti að taka
staðinn í nefið því hér var allt í
mikilli niðurníðslu,“ segja
Guðlaug og Hallgrímur um
stakkaskiptin í samtali við
Feyki.
Helstu framkvæmdir felast
í að taka efri hæðina alveg í
gegn og breyta í gistirými.
Eftir breytingar verða þar níu
herbergi, öll með sér baði; eitt
Dýpkun að ljúka
Sauðárkrókshöfn
Framkvæmdum við dýpkun á
Sauðárkrókshöfn er að ljúka,
eins og sagt var frá á
heimasíðu Sveitarfélagsins
Skagafjarðar í síðustu viku.
Síðustu daga hefur verktaki
verið að ljúka við dýpkun á
svæði fyrir framan öldubrjót
við hafnarmynnið.
Samtals hefur verið dælt um
20.000 rúmmetrum úr höfn-
inni, úr fyrrnefndu svæði við
hafnarmynnið og svæði innan
hafnar. Dýpkun innan hafnar-
innar gekk erfiðlega sökum þess
hversu fínt efnið í botninum er
og því erfitt og tímafrekt að dæla
því um borð í skipið.
Dýpið á dýpkunarsvæðinu
innan hafnar er nú á bilinu 8 til
8,5 m. Lokauppgjör verksins
liggur ekki fyrir. Hluta efnisins
var dælt í landfyllingu þar sem
gamla smábátahöfnin var
staðsett. Þeirri uppfyllingu er
lokið. Aðeins er eftir að keyra
þunnu lagi af burðar-lagsefni
ofan á sandinn. /KSE
eins manns herbergi, eitt
fjölskylduherbergi og svo þau
sem eftir eru tveggja manna.
Einnig munu þau öll vera með
32" sjónvörp og Interneti.
„Svo verður sæt setustofa þar
sem hægt er að spila, tefla eða
bara sitja og spjalla við aðra
gesti,“ segir Guðlaug. Þjón-
ustuna segja þau breytast á
þann veg að nú sé ætlunin að
vera með morgunverðar-
hlaðborð, bæði fyrir gesti og
gangandi, og einnig að opna
sjálfan staðinn mun fyrr á
morgnana.
Auk endurbótanna mun
Víðigerði öðlast nýtt nafn og
segir Guðlaug nú sé verið að
útbúa nýtt lógó fyrir staðinn.
„Þegar það er tilbúið þá förum
við að auglýsa á fullu nýja
nafnið, sem er North-West.
Svo kemur annaðhvort Hotel
eða –Inn, en það er ekki alveg
ákveðið,“ segir Guðlaug að
endingu. /BÞ
Hallgrímur, Kristinn og Guðlaug.
MYND: ÚR EINKASAFNI
hjónin hafa alltaf verið samhent,
hvort sem það er í rekstri fyrir-
tækjanna, byggingu íbúðarhúss-
ins eða því verkefni sem þeim var
úthlutað, að takast á við illvígan
sjúkdóm. Verkefnin eru raunar
óþrjótandi. „Það er verið að gera
upp svolítinn gullmola, það er
gamli bíllinn hans Sigurmons
heitins í Kolkuósi, hann verður
kláraður núna og verður tilbúinn
í vor. Hann er voða fallegur,“
segir Sólveig um það sem
framundan er.
Þegar blaðamaður hefur
skoðað jógaaðstöðuna og kíkt
inn á safnið er Gunnari farið að
leiðast eftir hádegismatnum og
reynir að sjálfsögðu að bjarga sér.
Hann stendur við eldavélina og er
að hita hádegismatinn. „Þú
verður að kíkja í vor og sjá
Kolkuósbílinn,“ segir Gunnar
brosandi. Á meðan hann stendur
upp kemur heimilishundurinn
Goði sér makindalega fyrir í
hjólastólnum og fær svo far að
eldhúsborðinu, enda segir
Sólveig að hann víki ekki mikið
frá húsbónda sínum. Hver veit
nema í vor verði líka komnar
nokkrar rolluskjátur og land-
námshænur í hlaðið, en það er
eitt af því sem Sólveig lætur sig
dreyma um.
„Ég man alveg eftir því að maður sat um kallana á vörubílunum til að fá að sitja
í einn og einn túr. Fyrsta skiptið sem ég fór upp í drossíu, var í endann á síldar-
ævintýrinu. Ég man eftir tveimur skvísum sem voru á svaka drossíu og ég snerist í
kringum í þær, fimm sex ára gömul, til að fá að fara einn rúnt, þvílíkt sem mér fannst
þetta flott.“ MYND: ÚR SAFNI FEYKIS
Fjölmenningarleg matarhátíð
hjá ferðamálanemum
Matur frá Kúbu, Frakklandi, Þýskalandi og Úkraínu
Nemendur í ferðamáladeild
Háskólans á Hólum stóðu á
mánudaginn fyrir
fjölmenningarlegri
matarhátíð í matsal skólans.
Viðburðurinn var hluti af
námskeiði sem heitir Matur
og menning. Verkefnið var að
kynna sér matarhefðir
mismunandi þjóða.
Skipt var í fjóra hópa sem unnu
hver með sitt land og töfruðu
fram nokkra rétti frá við-
komandi landi. Einnig var sett
upp kynning á landinu, borðin
skreytt með einhverju sem
minnti á löndin og jafnvel
klæðst í búninga frá þeim.
Að sögn Laufeyjar Haralds-
dóttur, lektors við ferðamála-
deild, sem kennir námskeiðið
eru þátttakendur í námskeiðinu
allir íslenskir en nutu aðstoðar
erlendra nema í fiskeldisdeild
við verkefnið, sem m.a. að-
stoðuðu við að útvega upp-
skriftir.
Þrátt fyrir að þessi fjögur
lönd yrðu fyrir valinu eru
nemendur frá mun fleiri
þjóðum við skólann, einkum
við fiskeldis- og hestadeildir, og
telur Laufey að þeir komi frá um
15 löndum. Laufey segir að
hráefnið hafi verið sótt víða,
m.a. var hráefnið í kúbversku
réttina sótt í Kolaportið. Ýmis
fyrirtæki styrktu verkefnið með
því að leggja til hráefni, eða
fjármagn. Nemendum og
starfsfólki Hólaskóla og íbúum í
nágrenninu var boðið að taka
þátt í hlaðborðinu gegn vægu
gjaldi og rennur ágóðinn til
Heilbrigðisstofnunarinnar á
Sauðárkróki. Alls söfnuðust hátt
í 90 þúsund krónur.
„Við leggjum áherslu á að
námið sé hagnýtt og þetta er ein
leið til þess, að þau fái raun-
veruleg verkefni að fást við. Í
fyrra vorum við með íslenskt
kaffihlaðborð en nú ákváðum
við að vera með eitthvað fjöl-
þjóðlegt.“ Algengt er að nem-
endur ferðamáladeildar reki
fyrirtæki í ferðaþjónustu og
stundi námið í fjarnámi. „Þetta
er því praktískt og fjarnámið
hefur verið mjög vinsælt,“
útskýrir Laufey og bætir við að
alls stundi um 130 nemendur
nám á ferðamálabraut. /KSE
Þessi voru í þýska hópnum og höfðu útvegað sér klæðnað við hæfi.
Þessi hópur eldaði kúbverskan mat og var því vel við hæfi að kveikja sér
í Kúbuvindlum. MYNDIR: KSE