Feykir - 05.02.2015, Side 9
5/2015 9
Textílnemar og -listamenn fá innblástur í Kvennaskólanum
Náttúran, birtan og
stemningin heilla
UMFJÖLLUN
Berglind Þorsteinsdóttir
það byrjaði þetta að rúlla,“
útskýrir Katharina.
Hún segir starfið nú vera
markvissara og fjölþættara, t.d.
sé boðið upp á námskeið,
útsauma-smiðjur og fleira. „Í
haust voru hér nemendur frá
Listaháskóla Íslands í tæpa viku.
Þau voru að læra allskonar
aðferðir hjá Jóhönnu [Erlu
Pálmadóttur, framkvæmda-
stjóra Textílsetursins, innsk.
blm.], þau fengu að prófa vefnað
og dvöldu hér í húsinu.“
Katharina segir textíllistamenn
fremur sækjast eftir því að koma
að sumri til og telur hún
skýringuna á því vera að margir
þeirra starfi við kennslu á
veturna, eða séu sjálfir í námi, og
hafi því betri tök á því að koma á
þeim árstíma. Aðallega séu þetta
erlendir listamenn sem óska
eftir því að fá að koma. Katharina
Þekkingarsetrið á Blönduósi
hefur verið starfrækt í gamla
Kvennaskólanum frá því
haustið 2012. Starfsemina
segir Katharina Schneider
framkvæmdastjóri að mörgu
leyti enn í mótun en að hún sé
sífellt að komast í fastari
skorður. Hlutverk setursins er
m.a. að vera miðstöð fyrir
rannsókna- og þróunarverk-
efni á sviði textíls, auk
strandmenningar og laxa á
Norðurlandi vestra. Jafnframt
því að stuðla að auknu
samstarfi og samþættingu
menntunar, rannsókna og
fræðastarfs.
„Við erum að byggja upp
starfsemina og vinnum að því
að koma listamiðstöðinni við
Kvennaskólann á framfæri,
kynna starfsemina og að fá til
okkar textíllistnemendur og
textíllistamenn,“ útskýrir
Katharina en listamiðstöðin er
samstarfsverkefni Þekkingar-
setursins og Textílsetursins.
Markmiðið segir hún vera að fá
fólk til að dvelja hjá þeim allt
árið um kring. „Við fengum til
okkar fyrstu textíllistnemana
haustið 2012. Strax í janúar árið
eftir komu fyrstu alþjóðlegu
textíllistamennirnir til okkar í
tengslum við verkefni sem við
unnum að í samstarfi við Nes
listamiðstöð sem nefnist
„Summer We Go Public“. Eftir
segir þá sem þangað hafa komið
iðulega tala um tilkomumikið
umhverfið við Kvennaskólann
sem veiti innblástur – náttúruna,
íslensku birtuna og stemninguna
sem henni fylgir.
Í vetur er ætlunin að móta
betur hvernig best sé að haga
starfsemi textíllistamiðstöðvar-
innar yfir vetrarmánuðina, að
sögn Katharinu. Til að mynda
með því að bjóða upp á
námskeið eða að byggja upp
nám sem hægt væri að bjóða
upp á í lotum og fá þannig
metnar einingar, líkt og
Listaháskólinn gerði sl. haust.
Katharina segir útlitið fyrir
listamiðstöðina bjart og að
aðsókn textíllistamanna og –
nema komi til með að aukast. Þá
bætir hún við að gaman sé að
vinna að uppbyggingu náms í
þessari gamalgrónu mennta-
stofnun.
Fá kynningu á fjölbreyttri
flóru textíllistar
Þegar blaðamann Feykis bar að
garði voru starfsmenn Þekk-
ingarsetursins í þann mund að
setjast til borðs með fjórum
nemum frá textílskólanum
UCC Professionshojskolen í
Kaupmannahöfn, þeim Leu K.
Rahbek, Majken H. Jensen,
Ninu Langebek og Kirsten
Risholm, og Amy Tavern
textíllistamanni, sem allar
dvöldu í Kvennaskólanum. Þeim
var boðið upp á alíslenskt
þorrablót og var blaðamanni
Feykis boðið til borðs með þeim.
„Þetta er í fjórða sinn sem
nemar frá þessum skóla koma
hingað í starfsnám. Ég fer með
þær hingað og þangað um
svæðið en þar að auki vinna þær
að Vatnsdælureflinum, fá kynn-
ingu á sögu hans og verkefninu í
heild sinni,“ útskýrir Jóhanna
Erla Pálmadóttur sem hefur
umsjón með nemunum og
kynnir fyrir þeim fjölbreytta
flóru textíllistar á Íslandi. Á
dagskránni var m.a. að fara með
þær um söguslóðir í Vatnsdal,
að heimsækja Þingeyrarklaustur
og Sjávarleður á Sauðárkróki.
Einnig að heimsækja elsta stig
nemenda Höfðaskóla á Skaga-
strönd
Nemarnir sögðust heillaðir
af landinu og voru bersýnilega
spenntir fyrir komandi vikum á
Íslandi, þó er ekki hægt að segja
að þorramaturinn hafi vakið
jafn mikla eftirvæntingu.
Glatt var á hjalla á þorrablóti í Kvennaskólanum. MYNDIR: BÞ
Amy Tavern er bandarískur textíllistamaður
sem var við dvöl í Kvennaskólanum en hún
kom fyrst til Íslands sumarið 2013, var þá hjá
Nes listamiðstöð á Skagaströnd. Þar vann hún
útsaumsverk sem nefndist „Island of 14.264
days“ (ísl. Eyja 14.264 daga). Um er að ræða
óhlutbundið verk sem Amy byggir á eigin lífi,
það er ljóst á lit og í laginu eins og eyja.
„Ég vann að því að sumri til þegar
dagsbirtan var alls ráðandi tuttugu og fjórar
Amy Tavern
Systurverk
verða til í ljósi
og skugga
stundir sólarhringsins. Mér varð mikið hugsað
til andstæðna sem koma fyrir í lífinu og fann
mig því knúna til að gera dökkt systurverk.
Þá vildi ég koma aftur til Íslands til að vinna
það verk, að þessu sinni að vetri til, í svartasta
skammdeginu,“ útskýrir Amy og er það í raun
spegilmynd fyrra verksins. Amy áætlar að
sýna verkin tvö í aprílmánuði í Bandaríkjunum.
Amy Tavern. MYNDIR: BÞ Útsaumslistaverk Amy í vinnslu.