Feykir - 05.02.2015, Page 10
10 5/2015
„Löngu tímabært
að stofna slíkan klúbb“
Bjórklúbbur Microbar & Bed á Sauðárkróki
Nýr félagsskapur hefur verið
stofnaður á Sauðárkróki,
Bjórklúbbur Microbar & Bed,
og stóð hann fyrir fyrsta
viðburðinum síðast liðið
föstudagskvöld. Að sögn
Þorgeirs Gunnarssonar, á
Microbar & Bed, mættu alls
25 manns á viðburðinn og
voru viðstaddir sammála því
að kvöldið hefði verið mjög
skemmtilegt og löngu
tímabært að stofna slíkan
klúbb.
Tilurð klúbbsins segir Þorgeir
mega rekja til þess þegar Árni
Hafstað, eigandi Microbar &
Bed, var einu sinni sem oftar að
vinna á barnum. „Einn við-
skiptavinurinn var orðinn býsna
drukkinn og þvoglumæltur.
Hávaði var líka mikill og gekk
Árna illa að skilja hvað mað-
urinn vildi og taldi líklegast að
hann væri að biðja um að
stofnaður yrði bjórklúbbur sem
Árna þótti bara hið besta mál og
gekk með þessa hugmynd í
maganum í nokkra daga áður en
hann lét til skarar skríða. Seinna
kom svo í ljós að mann greyið
var að biðja um tvöfaldan gin í
tonic, svona geta hlutirnir
skolast til hjá barþjónum,“ segir
Þorgeir. Hann segir þó að
umræddur maður hafi ekki
komið á fyrsta kvöld klúbbsins
þó eflaust megi þakka honum
stofnun hans. Hann bætir við að
dkBúbót bókhaldskerfið
námskeið og kynningarfundur
Fyrirhugað er námskeið í dkBúbót
bókhaldskerfinu á Löngumýri í Skagafirði
ef næg þátttaka fæst:
Grunnnámskeið
Mánudaginn 9. febrúar kl. 13.00-17.00
Framhaldsnámskeið
Þriðjudaginn 10. febrúar kl. 9.00-13.00
Þá verður stuttur kvöldfundur á sama stað, mánudags-
kvöld 9. febrúar kl. 20.00 þar sem helstu breytingar verða
ræddar og farið yfir ársuppgjör og framtalsgerð.
Á námskeiðunum er gert ráð fyrir að hver og einn komi
með sína tölvu með dkBúbót uppsettri og sitt bókhald og
vinni í því. Þar verða einnig tekin fyrir þau atriði sem eru
til umfjöllunar á kvöldfundinum. Ef viðkomandi er ekki
áskrifandi að dkBúbót þarf að láta vita af því fyrirfram.
Bændur geta sótt um styrk úr starfsmenntasjóði BÍ
vegna námskeiðanna.
Til að skrá sig á námskeið skal senda tölvupóst
á jle@rml.is þar sem fram kemur:
· nafn og heimilisfang
· hvaða námskeið viðkomandi vill fara á (hvar, hvenær)
· símanúmer
· kt. greiðanda
Skráningarfrestur til föstudagskvölds 6. febrúar.
Nánari upplýsingar veitir
Jóhanna Lind, rekstrarráðunautur RML,
netfang jle@rml.is eða s. 516-5028
Sjá nánar um námskeiðið á heimasíðu RML www.rml.is
einnig megi geta þess að Jón
Sveinsson, oft nefndur „ríkis-
stjóri“, hafi líka orðað þetta við
Árna sama kvöld svo að sjálfs-
markið sem Árni skoraði, megi
skrá á Jón.
Steinn Stefánsson, Gunnar
Óli Sölvason og Bergur Gunn-
arsson, allir starfsmenn Micro-
bars í Reykjavík, og Eymar
Pledel Jónsson vín og bjórsér-
fræðingur stjórnuðu fyrsta
kvöldinu. Þessa fjóra menn segir
Þorgeir trúlega vera á meðal
fremstu bjórsérfræðinga lands-
ins, eða svokallaða ss-menn
(sérfræðingar að sunnan).
„Farið var yfir sögu og gerð
ýmissa bjórstíla og smakkaðir
þrír bjórar sem féllu vel í kramið
hjá klúbbmeðlimum,“ útskýrir
Þorgeir.
Gert er ráð fyrir að klúbb-
meðlimir hittist fyrsta föstudag í
hverjum mánuði (þó ekki næsta
föstudag) og fræðist um bjór og
smakki á nýjum tegundum. Ekki
verða alltaf sérfræðingar sem
stjórna þessum kvöldum, að
sögn Þorgeirs, heldur er gert ráð
fyrir að tala sem minnst og
smakka sem mest, þó megi gera
ráð fyrir góðum gestum annað
slagið sem geta frætt menn um
bjór og bjórmenningu. Ekkert
sérstakt gjald þarf að greiða fyrir
að vera í klúbbnum heldur borga
menn hvert kvöld sem þeir
mæta og verður verði stillt í hóf.
Næsta föstudag, þann 6.
febrúar, mun Microbar & Bed
opna kl. 16:00 og verður það
þannig fyrsta föstudag í hverjum
mánuði. „Er þetta sérstaklega
gert fyrir vinnustaðahitting og
mun tilboðið „stór er lítils virði“
verða frá kl. 16–22,“ segir
Þorgeir að endingu. /BÞ
Frá fyrsta viðburði Bjórklúbbsins. MYND: ÞORGEIR GUNNARSSON
„Þetta er alveg hundrað
prósent starfsþjálfun“
9. og 10. bekkur Höfðaskóla með veitingahúskvöld
Nemendur í 9. og 10. bekk
Höfðaskóla á Skagaströnd
héldu veitingahúsakvöld á
Borginni sem fjáröflun
fimmtudagskvöldið 29.
janúar sl. Verkefnið sem
var fjáröflun krakkanna
var unnið í samstarfi við
Þórarinn Ingvarsson vert
og Markús Inga Guðnason
kokk. Hugmyndina átti
Þórarinn, en hann hafði
unnið svipað verkefni í
Mývatnssveit.
Verkefnið hófst á skipulags-
fundi með Þórarni, þar sem
matseðill var útbúinn og verk-
efnum skipt milli nemenda.
Ákveðið var að láta veitinga-
staðinn heita „Borgin besta“ og
sáu nemendur um að auglýsa
viðburðinn á Skagaströnd og í
Skagabyggð. Áhugasamir þurftu
síðan að panta veitingar fyrir-
fram.
„Þetta er náttúrulega 100%
starfsþjálfun,“ sagði Þórarinn
þegar Feykir sló á þráðinn til
hans á fimmtudaginn, en veður
og færð hömluðu því að
blaðamaður gæti þegið gott boð
um að taka þátt í kvöldverðinum.
„Krakkarnir gera þetta sjálf frá
A-Ö, undir leiðsögn okkar
Markúsar. Borgin skaffar svo
hráefnið, gos og kaffi,“ sagði
Þórarinn og kvaðst ánægður
með að geta orðið að liði á
þennan hátt.
Á fimmtudeginum mættu
nemendur kl. 14:30 og hófust
handa við sín verkefni. Fólk fór
að streyma að uppúr 18:30 og kl.
19:00 byrjaði samkoman. Nem-
endur stormuðu fram og sungu
kynningu á matseðlinum við
mikinn fögnuð gesta, texta eftir
Trostan Agnarsson við lagið
Hafið bláa hafið:
Humarsúpa og grafin gæs í forrétt.
Færir gleðibros á mey og svein.
Lambið litla kætir alltaf einhvern
líkt og kjúklingur á grænni grein.
Eftirrétturinn
eplakaka er,
eða pannacotta sæt.
Setjumst hér að borðum
kætumst svo með orðum,
um eilífð vakir fögur minningin.
Því næst var þriggja rétta
máltíðin borin fram með
tilþrifum og stóðu kokkar og
þjónar sig með stakri prýði. Fólk
var almennt ánægt með
veitingarnar og þjónustuna en
alls komu 75 gestir. Öll innkoma
kvöldsins rennur óskipt í
ferðasjóð skólafélagsins Ránar,
en Þórarinn gaf allt hráefni,
vinnuframlag sitt og Markúsar
og lagði til aðstöðuna.
/KSE Myndir: Árni Geir
mt...