Feykir - 05.02.2015, Síða 11
5/2015 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar
er snillingur dagsins.
Spakmæli vikunnar
Ef þér líkar ekki hvar þú ert, færðu þig. Þú ert ekki tré.
- Jim Rohn
Sudoku
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... engir eru duglegri en kanarnir í kaffidrykkjunni?
... yfir 5 milljón manns starfa við kaffiframleiðslu í Brasilíu?
... Evrópa er eina álfan þar sem ekki er eyðimörk?
... það tekur manneskju styttri tíma að tíma að deyja úr svefnskorti en
hungri? – Það er möguleiki að deyja eftir tíu daga án svefns en það
tekur nokkrar vikur að deyja úr hungri.
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Hahahahaha...
Mamman var að gera pönnukökur fyrir syni sína, Gylfa 5 ára og
Reyni 3 ára. Strákarnir fóru að rífast yfir því hver ætti að fá fyrstu
pönnukökuna. Móðir þeirra sá þarna tækifæri til að kenna þeim svona
smá lexíu. „Ef Jesús væri hérna, þá myndi hann segja: „Þér bróðir minn,
mátt fá fyrstu pönnukökuna. Ég get alveg beðið.““ Gylfi sneri sér þá að
yngri bróður sínum og sagði: „Reynir vert þú Jesús!“
Krossgáta
MARÍA DAGMAR MAGNÚSD.
SAUÐÁRKRÓKI
- Já, ég ætla að fara til Noregs.
INGÓLFUR VALSSON
-Já, fer líklega til Berlín með
vinnufélögum í haust.
MAGNÚS HELGASON
-- Já, ég fer til Parísar í vor.
Chili con carne a la
Daníel og Avókadó-
súkkulaðibúðingur
AÐALRÉTTUR
Chili con carne a la
Daníel
600 gr nautahakk
1 dós rauðar nýrnabaunir
1 chili
1 rauðlaukur
1-2 paprikur
nokkrir sveppir
2 hvítlauksrif
1 dós maukaðir tómatar
1 lítil dós tómatpuré
1 tsk paprikuduft
1 tsk tabasco sósa (meira ef vill)
dass af HP sósu
dass af Worchestershire sósu
skvetta af rauðvíni
ristaðar kókosflögur
50 gr rifið eða saxað
suðusúkkulaði
salt og pipar
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
„Við erum mikið matfólk,
kunnum vel að meta góðan
mat og það sama á við um
börnin okkar þrjú. Þessi tvö eldri eru alltaf til í að smakka
eitthvað nýtt og Daníel, sem er orðinn tvítugur, gerir sjálfur
ýmsar tilraunir með mat og drykk,“ segja sælkerarnir Ellen
Mörk Björnsdóttir og Magnús Eðvaldsson á Hvammstanga.
„Ásdís Aþena, sem er að verða ellefu ára, elskar humar og rækjur,
sushi, tapas og slíkt og það er virkilega gaman að fara með hana út
að borða. Sú yngsta, Valdís Freyja, er bara fimm ára og hún er meira
fyrir hefðbundinn mat, soðinn fiskur og stappaðar kartöflur með
laukfeiti (án lauks!) er algert uppáhald. Yfirleitt er nokkuð lagt í
meðlætið með matnum á heimilinu, sérstaklega ef um kjötmáltíð er
að ræða þar sem Ellen hefur ekki borðað kjöt í um 20 ár. Við
ákváðum að gefa uppskrift af Chilirétt Daníels og eftirrétturinn er
avókadó-búðingur sem er víst svo hollur að hann má jafnvel borða
í morgunmat með góðri samvisku.“
Aðferð: Steikið nautahakkið á
háum hita, kryddið með salti og
pipar. Hitinn lækkaður og
Worchestershire sósunni og HP
sósunni bætt við ásamt
niðurskornum chilipipar og
paprikudufti. Rauðvíninu hellt
yfir. Þegar hakkið er orðið
gegnsteikt og allt vel blandað
skal hella þessu yfir í stóra pönnu
eða pott og láta malla á vægum
hita. Skorið niður lauk, papriku
og sveppi, steikt á pönnu upp úr
olíu og bætið söxuðum hvítlauk
við. Bætið þessu út í hakkið.
Hrærið vel, hækkið hitann og
bæta út í maukuðum tómöt-
um, tómatpuré, nýrnabaunum,
kókosflögum og súkkulaði. Látið
malla á miðlungs hita, smakkið
til með meira rauðvíni, sósum
og kryddi eftir þörfum. Þennan
rétt er best að borða með
hrísgrjónum, jafnvel pasta,
einnig fer hann vel með góðu
brauði (ristað brauð er mjög
klassískt). Kryddin eru ekki
heilög, hakkið og baunirnar eru
grunnurinn, hitt er hægt að
smakka til og prófa sig áfram
með eftir smekk.
EFTIRRÉTTUR
Avókadó
súkkulaðibúðingur
1 l rjómi (þeyttur)
6 eggjarauður
2 egg
250 gr sykur
Aðferð: Allt sett í matvinnsluvél í
þessari röð, maukið vel þar til allt
er vel blandað og áferðin alveg
slétt. Setjið í fallega glerskál inn í
ísskáp. Berið fram með þeyttum
rjóma, jarðarberjum, ristuðu
kókosmjöli og sírópsristuðum
pekanhnetum. Einnig er gott að
taka út frosin hindber, láta þau
þiðna aðeins og bera fram með
búðingnum.
Við skorum á oddvita Húnaþings
vestra, Unni Valborgu og Alfreð
eiginmann hennar.
Verði ykkur að góðu
PÁLL FRIÐRIKSSON
--Líklega ekki. Fer í mesta lagi til
Vestmannaeyja í sumarfríinu.
Feykir spyr...
[SPURT Á FACEBOOK]
Ætlar þú
eitthvað
erlendis á
árinu?
Ellen og Magnús matreiða
Magnús og Ellen
UMSJÓN kristin@feykir.is
ELÍN GRÓA KARLSDÓTTIR
-- Við hjónin förum í helgarferð til
Parísar í lok apríl og til Spánar með
yngsta barnið með okkur í lok maí.
Svo er aldrei að vita hvort ferðirnar
verði fleiri þegar árið er búið.