Feykir - 05.02.2015, Síða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
5
TBL
5. febrúar 2015 35. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Eldur í Húnaþingi 22.-25. júlí 2015
13. Unglistahátíðin
Unglistahátíðin Eldur í
Húnaþingi verður haldin
dagana 22.-25. júlí.
Vinnuhópur sem mun
annast undirbúning
ásamt framkvæmda-
stjóra hefur verið
skipaður. Framkvæmda-
stjóri er Sigurvald Ívar
Helgason.
Hátíðin hefur skapað
sér fastan sess í Húnaþingi vestra undirfarin ár. Hún
verður nú haldin í þrettánda sinn, hefur verið haldin
óslitið síðan 2003. Dagskráin hefur verið fjölbreytt og
fjölskylduvæn. /KSE
Frá Eldi í Húnaþingi.
KJARNANUM HESTEYRI 2 550 SAUÐÁRKRÓKUR SÍMI 455 4570
Bílaverkstæði
Verið velkomin í Kjarnann!
með Meguiar’s bílahreinsvörum
Eigum mikið úrval af
hágæða bílahreinsivörum frá Meguiar’s
Mikið umleikis við Sauðárkrókshöfn
Opnun þurrkverksmiðju Fisk Seafood – Málmey SK 1 og Klakkur SK 5 halda út á sjó
Mikið hefur verið um að vera við Sauðárkrókshöfn
undanfarna viku. Nýtt þurrkhús, sem hefur verið í
byggingu frá fyrri hluta árs 2013, var til sýnis
almenningi sl. sunnudag og verður tekið í gagnið í
vikunni. Um 300 manns lögðu leið sína þangað.
Að sögn Gunnlaugs Sighvatssonar, yfirmanns land-
vinnslu og eldis Fisk Seafood, er ætlunin að hefja að
tilraunakeyra búnaðinn í vikunni og segir hann að það
muni taka um tvær til þrjár vikur að stilla hann af og
fínpússa aðferðir til að fá upp full afköst í húsinu.
Málmey SK 1 fór á sunnudag í sinn fyrsta túr eftir
gagngerar endurbætur. Það gekk þó ekki klakklaust
fyrir sig þar sem bilun reyndist í teljara í togspili og
þurfti skipið því að snúa aftur eftir fimm klukkustunda
siglingu. Skipið sigldi úr höfn á ný sl. mánudagskvöld og
á sama tíma hélt Klakkur SK 5 út á sjó. Eru meðfylgj-
andi myndir teknar þegar skipin héldu úr höfn í
ljósaskiptunum. /BÞ